Alþingi
286 287 288 289 290 291 292 293 294 … 296 ›
Vandi heimilislausra ræddur á Alþingi í dag Um fimmtíu manns eru heimilislausir á Íslandi, samkvæmt nýrri skýrslu sem félagsmálráðherra kynnti á Alþingi í morgun. Félagsmálaráðherra segir lausn vera í sjónmáli fyrir um tuttugu hinna heimilislausu, og að unnið sé að lausn alls vandans. Innlent 18.11.2005 22:07
Nokkuð greiðfært um Alþingi í hjólastól Aðgengi fatlaðra um Alþingishúsið er ótrúlega gott, þótt enn megi bæta um betur, segir eini þingmaðurinn sem er í hjólastól. Innlent 18.11.2005 19:17
Nær fjórðungur fyrrum ráðherrar Sex fyrrum ráðherrar hafa verið skipaðir sendiherrar frá árinu 1995. Meirihluti sendiherra á þessu tímabili kemur þó úr störfum innan utanríkisþjónustunnar, eða fimmtán af 27 sendiherrum. Innlent 16.11.2005 18:07
Frjálshyggjan á hröðu undanhaldi Frjálshyggjan er á hröðu undanhaldi um allan heim, líka á Íslandi, sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingar á flokksstjórnarfundi í morgun. Hún sagði stjórnmálabaráttuna á Íslandi standa milli Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks. Innlent 12.11.2005 12:10
ASÍ óánægt með fjárlagafrumvarpið Miðstjórn ASÍ lýsir yfir vonbrigðum með þá efnahags-, atvinnu- og félagsmálastefnu sem birtist í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórarinnar. Innlent 23.10.2005 15:02
Talaði ekki um ógn verðbólgunnar Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra sagði í stefnuræðu sinni á Alþingi í gærkvöldi að aukning verðbólgu umfram spár mætti alfarið rekja til hækkunar á fasteignaverði og olíuverði. Hann vék hins vegar ekki að því að verðbólgan ógnar nú vinnufriði í landinu. Innlent 23.10.2005 15:02
Utandagskrárumræða um mál Arons Óskað hefur verið eftir utandagskrárumræðu á Alþingi í dag </font />um málefni Arons Pálma Ágústssonar. Ríkisstjórinn í Texas hafnaði í gær náðunarbeiðni Arons Pálma sem verið hefur um árabil í stofufangelsi í ríkinu. Innlent 23.10.2005 16:58
Einungis bundnir sannfæringu sinni Sigurður Líndal, lagaprófessor við Háskóla Íslands, segist efast stórlega um að erindi Frjálslynda flokksins varðandi þingsæti Gunnars Örlygssonar sé tækt til meðferðar hjá umboðsmanni Alþingis. Sigurður segir stjórnarskrána skýra hvað þetti varði. Þingmenn séu ekki bundnir öðru en eigin sannfæringu. Innlent 23.10.2005 15:02
Ummæli Magnúsar ekki svaraverð Sólveig Pétursdóttir, nýkjörinn forseti Alþingis, segir ummæli Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, þingmanns Frjálslynda flokksins, um að henni sé ekki stætt á því að gegna embætti þingforseta meðan að eiginmaður hennar sæti rannsókn vegna olíusamráðsins, ekki svaraverð. Innlent 23.10.2005 15:02
Tölvan áhrifameiri en þingið? Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sagði í þingsetningarræðu sinni í dag að frjálsræði hvers og eins til að velja sér upplýsingar væri nú meira en nokkru sinni og forræði valdsmanna á fréttum og umræðuefnum nánast horfið. Hann sagði þessa þróun geta á margan hátt orðið lýðræðinu til aukins þroska. Þá velti forsetinn upp þeirri spurningu hvort tölvan væri orðin þingmönnum öflugra áhrifatæki en ræðustóll Alþingis. Innlent 23.10.2005 15:01
Sólveig nýr forseti Alþingis Sólveig Pétursdóttir var kjörin forseti Alþingis við setningu þess í gær. Hún þakkaði þingmönnum það traust sem þeir sýndu henni með því að kjósa hana. Innlent 23.10.2005 15:01
Alþingi Íslendinga sett Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, talaði meðal annars um lýðræði og þær breytingar sem orðið hafa á fréttaflutningi í ræðu sinni við setningu 132. löggjafarþings Íslendinga í gær. Innlent 23.10.2005 15:01
Árni segist aldrei hafa sagt ósatt Árni Magnússon félagsmálaráðherra segist aldrei hafa sagt Alþingi ósatt. Hann segir Íbúðalánasjóð ekki fara út fyrir lánaheimildir sínar og að sjóðurinn sé ekki að lána eftir tveimur leiðum, beint til lántakenda og til lántakenda í gegnum banka og sparisjóði. Innlent 13.10.2005 19:29
Nefndin komin á hreint Helstu hagsmunagæslumenn allra stjórnmálaflokkanna eiga sæti í nefnd sem Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra skipaði í gær til að fjalla um lagalega umgjörð stjórnmálastarfssemi á Íslandi og þar með aðgang að fjármálum flokkanna. Innlent 13.10.2005 19:28
Samfylkingin tilnefnir síðust Samfylkingin hefur tilnefnt fulltrúa í nefnd um endurskipulagningu lagalegrar umgjarðar um stjórnmálastarfsemi á Íslandi, síðust flokka á Alþingi. Dregist hefur í meira en mánuð að halda fyrsta fund í nefndinni, þar sem beðið var tilnefningar frá Samfylkingunni, en nú er undirbúningur að starfsemi nefndarinnar hafinn. Innlent 13.10.2005 19:27
Ósætti í fjárlaganefnd Meirihluti fjárlaganefndar samþykkti í dag, í trássi við vilja stjórnarandstöðunnar, að hætta athugun á einkavæðingu bankanna. Stjórnarandstaðan segir mörgum spurningum enn ósvarað. Lúðvík Bergvinsson alþingismaður segir að stjórnarandstaðan muni nú íhuga hvort þess verði krafist að þing verði kallað saman vegna málsins. Innlent 13.10.2005 19:20
Setur ofan í við umboðsmann Landbúnaðarráðherra setur ofan í við umboðsmann Alþingis og segir ákveðna hluti í nýju áliti hans ekki vera í verkahring umboðsmanns eða á hans valdi. Innlent 13.10.2005 19:19
Telur að skipun rektors standi Umboðsmaður Alþingis telur að landbúnaðarráðherra, Guðni Ágústsson, hafi ekki verið vanhæfur til að ákveða hver skyldi skipaður í embætti rektors Landbúnaðarháskóla Íslands. Þá telur umboðsmaður ólíklegt að skipunin verði talin ógildanleg. Innlent 13.10.2005 19:19
Landbúnaðarstofnun á Suðurlandi? Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að vilji sé til þess innan þingsins að ný Landbúnaðarstofnun verði staðsett utan höfuðborgarsvæðisins. Reykir í Ölfusi og Selfoss koma helst til greina. Innlent 13.10.2005 19:13
Hraðamet í afgreiðslu þingmála Alþingi fór í sumarleyfi skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld eftir að Halldór Blöndal, fráfarandi þingforseti, hafði slegið hraðamet í afgreiðslu mála. Innlent 13.10.2005 19:12
Fyrningarfrumvarp ekki afgreitt Til snarpra orðaskipta kom á Alþingi fyrir stundu þegar Halldór Blöndal, forseti Alþingis, tilkynnti að framvarp Ágústs Ólafs Ágústssonar, þingmanns Samfylkingar, um afnám fyrningar á kynferðisbrotum gegn börnum yrði ekki afgreitt fyrir þinghlé eftir að breytingartillaga kom fram frá Jónínu Bjartmarz, þingmanni Framsóknarflokks. Innlent 13.10.2005 19:11
Sakaði stjórnarflokkana um svik Margir þingmenn gagnrýndu í dag að þinghald tæki mið af sauðburði á vorin og göngum og réttum á haustin. Ágúst Ólafur Ágústsson sakaði stjórnarflokkana um svik í morgun þegar frumvarp hans um afnám fyrningar kynferðisbrota fór ekki á dagskrá. Innlent 13.10.2005 19:12
Atkvæði greidd í dag Meirihluti Alþingis samþykkti nú fyrir hádegi að þrjú lagafrumvörp viðskiptaráðherra um breytingar á samkeppnislögum gengju til þriðju umræðu með þeim breytingum sem meirihluti nefndarinnar lagði til. Greidd verða atkvæði um lögin eftir hádegi í dag. Innlent 13.10.2005 19:11
Þingmenn ekki óþekktarlýður Halldór Blöndal, forseti Alþingis, stýrði sínum síðasta þingfundi í kvöld. Aðspurður hvernig honum væri innanbrjósts fyrir lokasprettinn í starfinu sagði hann það vera mikinn létti yfir því að vorið væri að koma. Hann stefnir á að fara norður í sveitina strax á föstudag þar sem hann ætlar m.a. að ganga um bakka Laxár. Innlent 13.10.2005 19:12
Tilraun til afvegaleiðingar Fjármálaráðherra hafnar því alfarið að ríkissjóður nýti sér upptöku olíugjalds til tekjuöflunar. Hann segir slíkan málflutning vera tilraun til að villa mönnum sýn og afvegaleiða. Innlent 13.10.2005 19:12
Mótmæli við Alþingishúsið Ungir jafnaðarmenn og ungliðahreyfingar úr öllum flokkum hafa boðað til mótmæla við Alþingishúsið klukkan 17.45 í dag. Ástæðan er ákvörðun forseta þingsins að hleypa ekki í gegnum þingið frumvarpi um afnám fyrningarfrests í kynferðisafbrotum gegn börnum. Innlent 13.10.2005 19:11
Tillögur Gunnars felldar Breytingartillögur Gunnars Birgissonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, við samgönguáætlun samgönguráðherra á árunum 2005 til 2008 voru felldar á Alþingi skömmu fyrir hádegi. Þar er nú verið að ræða samgönguáætlunina. Innlent 13.10.2005 19:11
Flokkarnir fá 295 milljónir Hið opinbera styrkir stjórnmálaflokkana um 295 milljónir á ári. Þetta kom fram í nýrri skýrslu forsætisráðherra sem rædd var á Alþingi í dag en þar er ekki tekið á styrkjum fyrirtækja og einstaklinga. Skýrslan var unnin að beiðni Jóhönnu Sigurðardóttur sem sagði að tekið hefði tvö ár að knýja hana í gegn. Innlent 13.10.2005 19:12
Samkeppnislögin rædd eftir helgi Þingmenn ræddu breytingar á samkeppnislögum í allan gærdag þar til þingfundi var slitið um klukkan hálf sjö. Lengstu ræðurnar voru á þriðju klukkustund. Þrettán voru á mælendaskrá þegar fundi lauk og verður því umræðunni haldið áfram á mánudag. Innlent 13.10.2005 19:10
Bakka ekki með frumvörpin Forsætisráðherra segir að ríkisstjórnin bakki hvorki með frumvarp um samkeppnislög né hin um fjarskiptalögin og Ríkisútvarpið, þótt umdeild séu. Þingmenn ræddu breytingar á samkeppnislögum í allan gærdag þar til þingfundi var slitið um klukkan hálf sjö. Innlent 13.10.2005 19:10