Grindavík komið upp í Pepsi-deildina Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. september 2016 15:59 Grindvíkingar hafa spilað frábærlega í sumar. vísir/hanna
Grindavík er komið upp í Pepsi-deild karla eftir fjögurra ára fjarveru. Þetta var ljóst eftir 1-0 sigur liðsins á Fjarðabyggð í dag. Grindvíkingar eru sem stendur með 41 stig á toppi Inkasso-deildarinnar en KA-menn geta endurheimt toppsætið með sigri á Selfossi í leik sem var að hefjast. Andri Rúnar Bjarnason skoraði eina mark leiksins í Grindavík í dag á 61. mínútu. Alexander Veigar Þórarinsson átti stoðsendinguna en átta mínútum síðar klúðraði hann vítaspyrnu. Það kom þó ekki að sök og Grindvíkingar unnu leikinn og eru komnir upp í Pepsi-deildina þar sem þeir hafa ekki leikið frá árinu 2012. Grindvíkingar enduðu í 5. sæti í fyrra en það var snemma ljóst að þeir ætluðu sér upp í ár. Þeir gulu hafa aðeins tapað tveimur af 19 leikjum sínum í sumar og skorað langflest mörk (46) allra liða í Inkasso-deildinni. Fjarðabyggð er enn í ellefta og næstneðsta sæti deildarinnar með 17 stig. Liðið í botnsætinu, Leiknir F., hélt lífi í vonum sínum um að halda sér í deildinni með 3-2 sigri á Þór í dag. Fáskrúðsfirðingar eru nú aðeins þremur stigum frá öruggu sæti þegar þrjár umferðir eru eftir. Leiknismenn leiddu 2-0 í hálfleik þökk sé mörkum Guðmundar Arnars Hjálmarssonar og Almars Daða Jónssonar. Ármann Pétur Ævarsson minnkaði muninn í 2-1 á 68. mínútu en Ignacio Poveda Gaona jók muninn aftur í tvö mörk þegar þrjár mínútur lifðu leiks. Ingi Freyr Hilmarsson lagaði stöðuna í uppbótartíma en nær komust Þórsarar ekki. Þeir eru enn í 4. sæti deildarinnar með 29 stig.Upplýsingar um úrslit og markaskorara eru fengnar frá Fótbolta.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Sjá meira