Fréttir
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 334 ›
Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Á þriðjudag vakti myndband af uppátæki starfsmanns Hvals hf. sem lék sér að limi hvalhræs sem Hvalur 8 dró að landi mikla athygli. Uppátækið virðist ekki vera einsdæmi en ljósmynd frá árinu 2023 sýni starfsmann Hvals í svipuðu látæði. Innlent 2.7.2026 17:36
Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Svala Jóhannesdóttir segir bann- og refsistefnu þegar kemur að vímuefnum ekki hafa skilað neinum árangri og kominn sé tími á að afleggja hana. Hún segir að sú stefna sem skili bestum árangri sé sú sama og í áfengismálum þar sem ríkið stjórni aðgengi. Skatttekjur af nýju kerfi myndu nægja til að fjármagna forvarnir og meðferðarstarf. Svala er formaður Matthildar, samtaka um skaðaminnkun og mannréttindi fólks sem notar vímuefni. Innlent 2.7.2026 17:09
Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Tekin hefur verið ákvörðun um að loka fimm heitum pottum sem næst eru stúkunni við Laugardalslaug í Reykjavík. Jafnframt verður öll starfsemi færð úr stúkunni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Innlent 2.7.2026 16:36
Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heilbrigðisráðherra, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands og forseti Heilsustofnunar NLFÍ undirrituðu í dag nýjan fjögurra ára þjónustusamning um sérhæfða endurhæfingu. Innlent 2.7.2026 16:05
Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Á fimm ára tímabili kom 621 heimilislaus einstaklingur, tæplega 60 prósent hópsins, á bráðamóttökur Landspítalans, samtals 9.491 sinnum. Flestar komur voru í Fossvogi. Meðalfjöldi koma á hvern einstakling var fimmtán en sá sem kom oftast gerði það 292 sinnum á fimm ára tímabili. Innlent 2.7.2026 14:52
Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Gary Glitter, fyrrverandi poppstjarna og dæmdur barnaníðingur, hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn þrettán ára stúlku. Meintu brotin ná aftur til ársins 1978. Glitter var dæmdur í sextán ára fangelsi árið 2015 fyrir að brjóta á stúlkum, átta til þrettán ára. Erlent 2.7.2026 14:44
Reyndist ekki vera hópuppsögn Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg í júní reyndist ekki vera hópuppsögn líkt og borgin lýsti yfir. Átján var sagt upp. Innlent 2.7.2026 14:29
Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir Að minnsta kosti átján eru látnir eftir að Rússar gerðu umfangsmikla árás á höfuðborg Úkraínu. Borgarstjóri segir að um sé að ræða stærstu árás Rússa á borgina frá upphafi átakanna. Erlent 2.7.2026 13:40
Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Í nýju umræðuskjali Samkeppniseftirlitsins um olíufélögin kemur fram að álagning á dísilolíu hafi frá árinu 2022 hækkað um fimmtíu prósent að raunvirði en álagning á bensínlítrann hækkað um 25% að raunvirði á sama tímabili. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins segir frumniðurstöður kalla á dýpri umræðu um verðlag olíufélaganna á Íslandi. Innlent 2.7.2026 13:32
Tugir vilja feta í fótspor Fannars Fyrrverandi þingmenn, fyrrverandi bæjarstjórar og bílasali eru meðal þeirra sem vilja verða bæjarstjóri Grindavíkurbæjar. Innlent 2.7.2026 13:11
Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir tilkynningum um vasaþjófnað hafa fjölgað síðastliðna daga og vikur og segir þjófnaðinn vera „þaulskipulögð brotastarfsemi“ brotahópa sem koma til landsins. Lögreglan á Suðurlandi hefur gripið til aukinna aðgerða vegna viðvarandi vasaþjófa á helstu ferðamannastöðum. Meðal annars sinni ómerktir lögreglumenn eftirliti. Innlent 2.7.2026 12:55
Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður MAST hefur fengið ábendingar um einstakling sem fór á milli hesthúsa á Suðurlandi og villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður stofnunarinnar. Innlent 2.7.2026 12:15
„Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ „Ég held að tala látinna eigi eftir að hækka,“ segir tónlistarmaðurinn landskunni, Páll Óskar Hjálmtýsson, um hörmungarnar í Venesúela. Skjálfti að stærð 7,5 reið þar yfir á miðvikudag í liðinni viku og er tala látinna komin upp í 2295 samkvæmt yfirvöldum. Eiginmaður Páls Óskars, Antonio, er venesúelskur. Erlent 2.7.2026 11:56
Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Í hádegisfréttum verður fjallað um nýtt umræðuskjal Samkeppninseftirlitsins um eldsneytisverð hér á landi. Innlent 2.7.2026 11:37
Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Allir prestar og fylgjendur Bræðralags Píusar X (SSPX) hafa verið bannfærðir, eftir að bræðralagið stóð fyrir vígslu fjögurra biskupa í Sviss í gær. Vígslan fór fram gegn vilja Leó páfa, sem hafði varað hreyfinguna við því að valda frekari sundrung innan kirkjunnar. Erlent 2.7.2026 11:24
Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Ellefu ára kanadískur drengur lést úr hundaæði eftir að hafa vaknað við að leðurblaka var sest á andlit hans en atvikið átti sér stað árið 2024. Foreldrar drengsins leituðu með hann til læknis um tveimur vikum seinna þegar hann fór að finna fyrir doða og bólgu í andliti. Illa gekk að greina einkenni hans og á tímabili var gert ráð fyrir að hann væri með svokallaða Bell-lömun og seinna herpes-munn- og gómsýkingu. Þegar hann var loks greindur með hundaæði átti hann rétt rúmar tvær vikur ólifaðar. Erlent 2.7.2026 11:21
Ein hópuppsögn í júní Vinnumálastofnun barst ein tilkynning um hópuppsagnir í júní. Uppsögnin var á sviði fiskeldis. Innlent 2.7.2026 11:19
Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Mennta- og barnamálaráðuneytið undirbýr útgáfu landsviðmiða um skólasókn grunnskólanemenda fyrir skólaárið 2026–2027. Markmiðið er að skrá, bregðast við og koma í veg fyrir skólaforðun barna í grunnskólum á samræmdan hátt á landsvísu. Innlent 2.7.2026 10:25
Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Karlmaður sem var handtekinn í gær vegna gruns um innbrot í Efstaleitisapótek flúði vettvang á Hopp-deilibíl. Maðurinn var handtekinn eftir eftirför í bíl og á fæti. Innlent 2.7.2026 09:13
Agnes var meira en bara morðingi Þemasýning um líf og starf síðustu konunnar sem tekin var af lífi á Íslandi, Agnesar Magnúsdóttur, verður opnuð í Vatnsdalshólum næstkomandi laugardag. Listakonan á bak við verkefnið vill sýna mannlegu hliðina á Agnesi en ekki bara að fjallað sé um hana sem morðingja. Innlent 2.7.2026 09:12
Saka ríkisstjórnina um svik Sveitarstjórn Múlaþings sakar ríkisstjórnina um svik með því að samþykkja samgönguáætlun þar sem Fjarðarheiðargöng eru sett aftar í forgangsröðunina. Innlent 2.7.2026 09:12
Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Barna- og menntamálaráðherra segir misræmi í einkunnagjöf við útskrift nemenda úr grunnskóla búa til falskt öryggi. Verið sé að mismuna nemendum sem komast ef til vill ekki í sitt fyrsta val um framhaldsskóla vegna þessa. Þá er hún döpur yfir fylgi Flokks fólksins sem mælist utan þings. Innlent 2.7.2026 08:20
Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Dýraverndarsamband Íslands, Hvalavinir – vernd hafsins, Náttúruverndarsamtök Íslands og Samtök um dýravelferð hafa sent Matvælastofnun (MAST) formlega kröfu um að hvalveiðar Hvals hf. verði stöðvaðar tafarlaust og að hafin verði ítarleg rannsókn á meintum brotum á lögum um velferð dýra. Innlent 2.7.2026 08:18
Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þúsundir söfnuðust saman fyrir utan þorpið Écône í Sviss í gær til að verða vitni að því þegar fjórir meðlimir Bræðralags Píusar X (SSPX) voru vígðir til biskups. Allir mega eiga von á því að verða bannfærðir. Erlent 2.7.2026 08:06
Hlýjast fyrir austan Hlýjast verður norðaustanlands í dag en hitatölur á landinu verða frá sex til sautján stig. Búast má við rigningu með köflum. Veður 2.7.2026 07:15
Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Að minnsta kosti þrettán létu lífið í viðmikilli drónaárás sem Rússar gerðu á Kænugarð höfuðborg Úkraínu í nótt. Erlent 2.7.2026 07:13
Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gærkvöldi eða nótt vegna yfirstandandi innbrots í apótek. Þegar komið var á vettvang var gerandinn farinn en sá sem tilkynnti hafði farið á eftir honum. Innlent 2.7.2026 07:03
Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Nefnd á vegum Evrópuþingsins sem heimsótti Albaníu á dögunum hefur varað við því að áframhaldandi framkvæmdir við lúxusparadís Jared Kushner, tengdasonar Donald Trump Bandaríkjaforseta, ógni aðildarviðræðum Albaníu við Evrópusambandið. Erlent 2.7.2026 06:54
Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Lögregla hafði afskipti af ökumanni sem ók deilibíl frá Hopp á hjólastíg í Fossvogi í Reykjavík í kvöld. Óljóst er hvað ökumanni gekk til og segir framkvæmdastjóri að málið sé í höndum lögreglu. Ekki sé talið að ökumaður hafi valdið skemmdum. Innlent 1.7.2026 22:10
Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér „Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar. Innlent 1.7.2026 21:47