Bíó og sjónvarp

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Spacey sleppur við dóm­salinn með sátt við þrjá menn

Leikarinn Kevin Spacey hefur gert sátt við þrjá menn sem sökuðu hann um kynferðisofbeldi yfir margra ára tímabil. Málið átti að fara fyrir dómara í Lundúnum síðar á þessu ári en ekki verður af því. Fjöldi karlmanna steig fram í MeToo-bylgjunni og sakaði Spacey um kynferðisbrot en málin hafa ýmist verið felld niður eða hann sýknaður.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Hvernig fer Óskarinn?

Óskarsverðlaunahátíðin fer fram í 98. sinn um helgina og ríkir mikil spenna í ýmsum flokkum. Stóru spurningar eru nokkrar: Hvort hefur One Battle After Another eða Sinners betur? Er Timothee Chalamet búinn að skemma fyrir sjálfum sér með stælum og hroka? Er Jessie Buckley alveg gulltryggð og hvað verður um aukahlutverkin?

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Stikla úr Jóhönnu af Örk

Jóhanna af Örk er nýjasta kvikmynd leikstjórans Hlyns Pálmasonar en um er ræða 62 mínútna mynd úr sama heimi og Ástin sem eftir er. Vísir frumsýnir hér stiklu úr myndinni sem fylgir þremur systkinum gegnum árstíðirnar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Sverja af sér sam­særis­kenningar um klónaðan Carrey

Skipuleggjendur César-kvikmyndahátíðarinnar, sem haldin er ár hvert í París, hafa slegið á sögusagnir um að Jim Carrey, stórleikari og heiðursverðlaunahafi hátíðarinnar, hafi ekki verið viðstaddur hana. Samsæriskenningar um að leikarinn hafi fengið eftirhermu til að mæta í hans stað á hátíðina hafa dreifst um netheima síðustu daga.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Báðust af­sökunar á niðrandi hljóðkækjum

Kynnir BAFTA-hátíðarinnar bað gesti afsökunar á óviðeigandi orðfæri eftir að John Davidson, þekktasti baráttamaður Breta fyrir Tourette-heilkenninu, hrópaði niðrandi orð á hátíðinni. Leikarinn Robert Aramayo, sem leikur Davidson í nýrri mynd, kom honum jafnframt til varnar. 

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Gyða semur tón­list fyrir kvik­mynd Bad Bunny

Gyða Valtýsdóttir mun semja tónlistina við kvikmyndina Porto Rico í leikstjórn rapparans René „Residente“ Pérez Joglar. Stórstjarnan Benito Martinez Ocasio, betur þekktur sem Bad Bunny, fer með aðalhlutverkið og munu Viggo Mortensen, Edward Norton og Javier Bardem einnig leika í myndinni.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Tæklar næst ítalskar kynlífskómedíur

Leikstjórinn Sean Baker, sem hreppti fjögur Óskarsverðlaun fyrir kvikmyndina Anoru í fyrra, hefur loks uppljóstrað um næstu kvikmynd sína. Hún verður tekin upp á Ítalíu og er ástarbréf til kynlífskómedía Ítalíu á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Múmían rís í fjórða sinn

Hollywood-stjörnurnar Brendan Fraser og Rachel Weisz munu snúa aftur í fjórðu myndinni í Múmíu-myndaröðinni. Sú fyrsta kom út 1999, varð gríðarvinsæl og gat af sér tvær framhaldsmyndir.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Ungir hjartaknúsarar mæta á hvíta tjaldið

Maron Birnir, Helgi T og fleiri ungar poppstjörnur fara með aðalhlutverk í væntanlegri kvikmynd sem heitir Undir ísnum. Hópurinn hefur undanfarið unnið hörðum höndum að verkefninu og hlakka strákarnir mikið til að athjúpa afraksturinn á hvíta tjaldinu. Þeir frumsýna stiklu fyrir kvikmyndina hér fyrir neðan. 

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Meryl Streep verður Joni Mitchell

Stórleikkonan Meryl Streep mun leika tónlistargoðsögnina Joni Mitchell í óhefðbundinni ævisögumynd í leikstjórn Cameron Crowe. Anya Taylor-Joy hefur verið orðuð við yngri útgáfu af Mitchell en það er enn óstaðfest.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Dragi úr trú­verðug­leika Eddunnar og úti­loki fag­fólk

Leikstjórinn Davíð Óskar Ólafsson segir Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) útiloka fjölda fagfólks með því að bæta við nýjum flokkum í Edduverðlaununum fyrir leikið sjónvarpsefni en einungis fyrir leikara. Ákvörðunin dragi úr trúverðugleika og máli upp ranga mynd af bransanum. Fjöldi þekkts bransafólks tekur undir skrif Davíðs.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Leikið sjón­varps­efni aftur hluti af Eddunni

Stjórn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar (ÍKSA) hefur opnað fyrir innsendingar til Eddunnar 2026 og ákveðið að verðlauna leikið sjónvarpsefni á ný. Þar bætist við fimm nýir flokkar: besta leikna sjónvarpsefnið auk besta leikara og leikkonu í aðal- og aukahlutverkum.

Bíó og sjónvarp