

Héraðsdómur hefur sýknað Fjölmiðlanefnd og íslenska ríkið af öllum kröfum Sýnar í máli sem sneri að hálfrar milljónar króna sekt, sem nefndin lagði á Sýn vegna dulinna auglýsinga í raunveruleikaþáttunum LXS, sem sýndir voru á Stöð 2 og Stöð 2+. Sýn krafðist þess að sektin yrði endurgreidd og vísaði meðal annars til þess að félagið hefði ekkert fengið greitt fyrir auglýsingar í þættinum.
Fjöldi vara sem merktar eru lágvöruverði í Kjörbúðinni eru í raun þriðjungi til helmingi dýrari en í Bónus eða Prís samkvæmt athugun verðlagseftirlits ASÍ.
Benjamín Julian verkefnastjóri verðlagseftirlits ASÍ segir hækkanir hjá birgjum á kjötvöru helstu ástæðu hækkunar á matvöru. Greint var frá því í gær að eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hafi hún hækkað „með rykk“.
Pekingendur sem verið var að selja í verslunum Bónuss og Hagkaupa um allt land hafa verið innkallaðar eftir að salmonella greindist í sýni.
Eftir tveggja mánaða lækkun á verðlagi matvöru hækkar það nú með nokkrum rykk. Hækkunin milli september og október nemur einni prósentu, að mestu leyti vegna hækkunar á kjötvöru.
Gert er ráð fyrir sex milljarða tekjum á næsta ári vegna gjaldtöku á nikótínvörur. Að auki má búast við því að hliðaráhrif vegna virðisaukaskatts gætu unið 1,5 milljörðum króna. Þetta kemur fram í mati á áhrifum frumvarps til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld.
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga lækki úr 5,4 prósentum í 5,1 prósent milli mánaða í október. Verðbólgan var síðast í 5,1 prósenti í desember árið 2021.
Forstjóri Samkaupa segir að viðbrögð íbúa í Búðardal við vildarkerfi í Krambúðinni hafi verið afar góð, þvert á fullyrðingar sveitarstjóra Dalabyggðar. Hann segir nánast alla íbúa vera aðilar að vildarkerfinu og sjötíu prósent þeirra séu reglulegir viðskiptavinir.
Arion banki hefur tilkynnt vaxtalækkun í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að lækka stýrivexti. Formaður Neytendasamtakanna fagnar þessu en segir ekki mega gleyma að íbúðalánavextir á Íslandi séu með þeim hæstu á Vesturlöndum og bankarnir séu nýbúnir að hækka þá.
Hótelgestur sem kom hingað til lands og var ósáttur með hótelherbergið sitt, og endaði á að fara úr landi talsvert fyrr en fyrirhugað var, fær ekki endurgreitt. Það er niðurstaða kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, sem vísaði kröfu gestsins frá.
Kona sem hætti á námskeiði fyrir hunda og eigendur þeirra fær endurgreitt fyrir þann hluta námskeiðsins sem eftir var þegar hún hætti. Konan hætti vegna þess að henni misbauð meðferð hundaþjálfarans á hundunum.
Brúðhjón sem fengu hrærivél í brúðkaupsgjöf skulu fá nýja glerskál fyrir hrærivélina frá söluaðilanum eftir að sprunga myndaðist í þriðja eða fjórða handþvotti.
Orka náttúrunnar, ON, mun á næstu vikum setja upp tugi hleðslustöðva í Kópavogi í samstarfi við bæinn. Hleðslustöðvar við Hálsatorg í Hamraborg voru teknar í notkun í vikunni. Þær eru fyrstu af 98 hleðslustöðvum á 14 stöðum í Kópavogsbæ sem verða sett upp í haust.
Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju, segir að bílaumboðið hafi ávallt og muni áfram leggja sig mikið fram við að leiðbeina og aðstoða viðskiptavini eins hægt er. Hann segir fyrirtækið hafa lagt sig fram við að ná lausn í máli ósátts viðskiptavinar þó að bíll viðkomandi hafi ekki lengur verið í ábyrgð. Niðurstaðan hafi líka verið sú að hann hafi ekki greitt neitt vegna málsins.
Brynhildur Pétursdóttir, framkvæmdastjóri Neytendasamtakanna, segir það mjög furðulegt ef matvöruverslanir myndu ekki stytta opnunartíma sína ef það gæti gert þeim kleift að lækka verð á matvörum. Hún telur það áhugavert álitamál og bendir á að matvöruverslanir eru með rúman opnunartíma hér á landi.
Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur gjaldtöku á bílastæðum á ferðamannastöðum komna út í öfgar, ekki síst hvað varðar himinhá vangreiðslugjöld. Lóðarhafar, landeigendur og bílastæðafyrirtæki stundi rányrkju með því að fénýta sér aðkomu að náttúrperlum.
Steinþór Skúlason, forstjóri Sláturfélags Suðurlands, SS, segir fyrirtækið taka það mjög alvarlega ef fólk upplifi einhver frávik í vörum fyrirtækisins. Þónokkrir hringdu inn í Bítið á Bylgjunni í gær til að ræða breytt bragð af pylsunum. Þáttastjórnendur sögðust sjálfir hafa upplifað það líka.
Framkvæmdastjóri Tes og kaffis segir kaffiverð líklega koma til með að hækka á næstu mánuðum. Hann telur ekki að nýir samkeppnisaðilar myndu geta náð verðinu niður, líkt og á matvörumarkaði með tilkomu Prís.
Neytendastofa hefur sektað þrjú fyrirtæki í Múlunum í Reykjavík fyrir ófullnægjandi verðmerkingar. Um er að ræða EG skrifstofuhúsgögn, Innréttingar og tæki og Kölska.
Íslendingar elska fátt meira en góðan skyndibita. En skyndibiti getur verið ansi dýr hér á klakanum.
Fyrirtæki sem býður upp mottuhreinsun hefur verið gert að greiða viðskiptavini sínum 75 prósent af kaupverði gólfmottu eftir að skemmdir urðu á einni slíkri við hreinsun. Brúnir blettir höfðu þar myndast við hreinsun sem ekki reyndist unnt að ná úr.
Vilhjálmur Birgisson segir ákvörðun Arion banka um að hækka vexti á verðtryggðum lánum með ólíkindum og merki um taumlausa græðgi, sem hann segir hafa fengið að viðgangast á íslenskum fjármálamarkaði um árabil.
Útlánavextir Arion banka hækka talsvert frá og með deginum í dag. Hinir stóru viðskiptabankarnir tveir hafa ekki tilkynnt vaxtahækkun.
Samkvæmt greiningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins gæti greiðslubyrði þrjátíu milljóna króna óverðtryggðs íbúðaláns á breytilegum vöxtum lækkað um fimmtíu þúsund króna á mánuði á næsta ári.
Neytendastofa hefur ákveðið að skoða heildstætt merkingar og framkvæmd gjaldtöku bílastæða hjá ellefu fyrirtækjum. Þetta kemur fram í svari stofnunarinnar við fyrirspurn fréttastofu.
Prís er enn ódýrasta matvöruverslunin tæpum fjórum vikum eftir opnun. Það er niðurstaða nýjasta verðlagseftirlits ASÍ. Frá upphafi ágústmánaðar hafa fjórar stærstu matvöruverslanir landsins lækkað verð sín. Verðlag á matvöru lækkaði um 0,5 prósent á milli júlí og ágúst.
Fasteignasali þarf að bera tjón kaupanda sem þurfti að greiða þinglýsingargjöld tvisvar vegna rangra upplýsinga sem fasteignasalinn veitti honum.
Sérfræðingur hjá Alþýðusambandinu telur frumvarp fjármálaráðherra um upptöku kílómetragjalds koma verst niður á tekjulægri hópum. Þá hefur hún áhyggjur af því að olíufélögin nýti tækifærið til að auka gróðann.
Kínverskir markaðsrisar líkt og Temu og Shein hika ekki við að selja föt sem í eru skaðleg efni. Mastersnemi í líf- og læknavísindum segir það sérstakt áhyggjuefni hvað varðar börn og segist neminn óttast að fólk versli jólagjafir á síðunum.
Neytendur eru sífellt meðvitaðri um svokallaða shrinkflation, magnskerðingu, sem matvælaframleiðendur hafa gripið til svo hægt sé að forðast beinar verðhækkanir. Framkvæmdastjóri Bónuss segir erfitt að bregðast við magnskerðingu; helsta vopnið sé að halda vöruúrvali fjölbreyttu.