
Erlent

Forsætisráðherra Taílands vikið tímabundið úr embætti
Æðsti dómstóll Taílands hefur tilkynnt að forsætisráðherranum Prayuth Chan-ocha hafi verið vikið tímabundið úr embætti.

Selenskí segir úkraínsku þjóðina hafa „endurfæðst“ við innrás Rússa
Úkraínumenn eru undir það búnir að Rússar geri stórfelldar árásir í landinu í dag, þegar Úkraínumenn fagna því að 31 ár er liðið frá aðskilnaði Úkraínu frá Sovétríkjunum. Í dag eru einnig sex mánuðir liðnir frá því að innrás Rússa hófst.

Meintum nauðgara sleppt úr haldi vegna diplómatafriðhelgi
Diplómata hjá Sameinuðu þjóðunum í New York borg í Bandaríkjunum, sem hefur verið sakaður um nauðgun, hefur verið sleppt úr haldi lögreglu vegna diplómatafriðhelgi.

Fundu sjö hundruð blaðsíður með leynilegum gögnum í fyrstu sendingunni frá Trump
Starfsmenn Þjóðskjalasafns Bandaríkjanna fundu meira en sjö hundruð blaðsíður með leynilegum upplýsingum meðal þeirra gagna sem Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, tók með sér til Flórída þegar hann flutti úr Hvíta húsinu í janúar 2021. Þar á meðal voru upplýsingar um einhverjar leynilegust aðgerðir leyniþjónusta Bandaríkjanna.

Lúxussnekkja rússnesks auðjöfurs seld á uppboði á Gíbraltar
Lúxussnekkja rússnesks auðjöfurs, sem er einn þeirra sem viðskiptaþvinganir Vestuvelda hafa beinst gegn, var sett á uppboð og seld á Gíbraltar í dag. Verð snekkjunnar var metið á 75 milljónir Bandaríkjadala, eða um 10,5 milljarða íslenskra króna.

Fyrrverandi lögreglumaður játar sök í máli Breonna Taylor
Fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður í Louisville hefur játað að hafa falsað leitarheimild sem leiddi til dauða blökkukonunnar Breonna Taylor.

Spænskum skotárásarmanni sem vildi deyja hjálpað yfir móðuna miklu
Spænsk fangelsisyfirvöld hjálpuðu í dag manni, sem skaut og særði fjóra í desember, yfir móðuna miklu. Maðurinn særðist alvarlega og lamaðist eftir að hafa verið skotinn af lögreglu í kjölfar árásarinnar og fór hann þess á leit við fangelsisyfirvöld að fá að deyja.

Tveir sem ætluðu að ræna ríkisstjóra dæmdir
Tveir menn hafa verið dæmdir fyrir ráðabrugg sem gekk út á að ræna Gretchen Whitmer, ríkisstjóra Michigan í Bandaríkjunum. Þeir tilheyrðu hópi sem ætlaði að ræna ríkisstjóranum vegna aðgerða hennar til að sporna gegn útbreiðslu Covid-19. Mennirnir ætluðu að halda einhverskonar „réttarhöld“ gegn Whitmer og mögulega taka hana af lífi.

Flótti frá Kænugarði fyrir þjóðhátíðardaginn: „Bregðumst kröftuglega við hverri árás“
Margir flýja nú frá Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, vegna ótta við árás á borgina á þjóðhátíðardegi Úkraínu sem verður á morgun, 24 ágúst. Þann dag árið 1991 lýsti Úkraína yfir sjálfstæði frá Sovétríkjunum, fjórum mánuðum fyrir fall Sovíetríkjanna.

Tóku mynd berar að ofan í forsætisráðherrabústaðnum
Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur beðist afsökunar á mynd sem áhrifavaldur tók inni á baðherbergi forsætisráðherrabústaðarins. Á myndinni var áhrifavaldurinn, ásamt annarri konu, búinn að lyfta bol sínum. Brjóst þeirra voru falin með skilti sem Sanna fékk á blaðamannafundi hjá Evrópusambandinu.

Kínverjar refsa 27 manns fyrir „frekar ljótar“ teikningar í kennslubók
Yfirvöld í Kína hafa refsað 27 manns fyrir að gefa út stærðfræðibók með „frekar ljótum“ teikningum. Rannsókn málsins hefur staðið yfir í marga mánuði.

NASA deildi óhugnanlegri hljóðupptöku af svartholi
NASA deildi síðastliðinn sunnudag hljóðupptöku af svartholi úr miðju Perseusar-stjörnuþokuklasanum sem er meira en tvö hundruð milljón ljósár frá jörðinni.

Níu ára stúlka skotin til bana í Liverpool
Níu ára stúlka var skotin til bana í íbúð í ensku borginni Liverpool í gær. Auk stúlkunnar urðu karl og kona í íbúðinni einnig fyrir skotum og voru þau flutt á sjúkrahús til aðhlynningar, en árásarmannsins er leitað.

Google lokar á föður sem tók myndir af syni sínum til að senda lækni
Netrisinn Google hefur neitað að opna aftur fyrir aðgang manns sem lokað var á eftir að hann tók myndir af kynfærum sonar síns til að fylgjast með bólgu sem var að angra hann.

Yfirmenn ungversku Veðurstofunnar reknir vegna rangrar veðurspár
Tveir æðstu yfirmenn ungversku Veðurstofunnar hafa verið reknir eftir að veðurspá stofnunarinnar gekk ekki eftir.

Trump vill að þriðji aðili fari yfir gögnin úr húsleitinni
Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur höfðað mál vegna húsleitarinnar í Mar-a-Lago, sveitarklúbbinum í Flórída þar sem Trump býr. Hann vill að utanaðkomandi aðili verði fenginn til að fara yfir gögn sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lögðu hald á í húsleitinni.

Gæði nýrra mynda af Júpíter komu á óvart
Geimvísindamenn birtu í dag nýjar myndir af gasrisanum Júpíter sem teknar voru með James Webb-geimsjónaukanum. Júpíter er áhugaverð reikistjarna og vonast vísindamenn til þess að skilja hana mun betur með gögnunum frá James Webb.

Segja morðingjann hafa verið með tólf ára dóttur sinni
Ráðamenn í Rússlandi saka leyniþjónustu Úkraínu um að bera ábyrgð á því að rússnesk kona dó í bílasprengju nærri Moskvu um helgina. Úkraínsk kona er sögð hafa gert árásina og flúið til Eistlands. Yfirlýsingar Rússa hafa mætt miklum efasemdum.

Sprengja fannst í miðborg Stokkhólms í gær
Lögreglan í Stokkhólmi hefur staðfest að sprengja fannst í bakpoka í Kungsträdgården í miðborg Stokkhólms í gær. Sprengjusveit tókst að gera sprengjuna óvirka á vettvangi.

Fauci fetar í fótspor Þórólfs
Sóttvarnarlæknir Bandaríkjanna, Anthony Fauci mun láta af störfum í desember á þessu ári. Fauci mun því feta í fótspor kollega síns, Þórólfs Guðnasonar, sem lætur af störfum sem sóttvarnarlæknir hér á landi í byrjun september. Báðir hafa þeir háð hetjulega baráttu við veiruna skæðu.

Sanna sannar að hún hafi ekki tekið eiturlyf
Niðurstöður úr fíkniefnaprófi sem Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, tók fyrir helgi sýna að hún hafi ekki tekið nein eiturlyf síðustu daga.

Lögreglumenn létu höggin dynja á manni sem þeir héldu niðri
Tveir lögreglumenn hafa verið sendir í leyfi eftir að myndband af þeim að kýla og sparka í mann sem þeir héldu niðri fór í dreifingu á samfélagsmiðlum.

Herskip, Búddastyttur og ýmsar fornminjar komið í ljós vegna þurrka
Hitabylgjur og þurrkar um Evrópu og í Kína hafa leitt til þess að vatnsborð í ám og stöðuvötnum hefur lækkað gríðarlega. Við það hafa ýmsar gersemar, sem áður voru á bólakafi, komið í ljós. Þar á meðal forsögulegir spænskir bautasteinar, kínverskar búddastyttur og fornminjar úr seinni heimsstyrjöldinni.

Útilokar friðarviðræður og segir langt stríð framundan
Gennady Gatilov, fastafulltrúi Rússlands við Sameinuðu þjóðirnar, segir beinar viðræður milli Vladimir Pútín Rússlandsforseta og Vólódimírs Selenskís Úkraínuforseta ekki koma til greina.

Konur dansa til stuðnings Sönnu
Myllumerkið #SolidarityWithSanna, lauslega þýtt sem samstaða með Sönnu, hefur slegið í gegn á Twitter í kjölfar þess að myndbönd af Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands, dansa láku á netið. Undir myllumerkinu hafa konur byrjað að birta myndbönd af sér að dansa til stuðnings við forsætisráðherrann.

Telja sig hafa fundið móður barnanna í ferðatöskunum
Lögreglan í Seúl í Suður-Kóreu telur sig hafa fundið móður barnanna sem fundust látin í ferðatöskum í borginni Auckland í Nýja-Sjálandi í síðustu viku. Við krufningu kom í ljós að börnin voru á aldursbilinu fimm til tíu ára.

Krókódíll synti meðfram brú með lík í kjaftinum
Gestum Carpintero-lónsins í Mexíkó brá í brún þegar krókódíll synti meðfram og undir göngubrú með lík í kjaftinum. Stranglega bannað er fyrir fólk að synda í lóninu vegna fjölda krókódíla sem búa þar.

Rauðpanda kom eins og kraftaverk í heiminn mánuði eftir dauða föðurins
Fæðingu rauðpöndu í dýragarði í Bretlandi í síðasta mánuði hefur verið lýst sem kraftaverki. Bæði vegna þess að rauðpöndur eru í útrýmingarhættu og af því að faðir dýrsins lést fyrir mánuði síðan eftir margra ára æxlunarátak dýragarðsins.

Svíþjóðardemókratar mælast stærri en Moderaterna
Fylgi Svíþjóðardemókrata mælist umtalsvert meira en hægriflokksins Moderaterna í nýrri könnun, nú þegar um þrjár vikur eru til þingkosninga í Svíþjóð. Jafnaðarmannaflokkurinn, undir stjórn forsætisráðherrans Magdalenu Andersson, mælist sem fyrr stærstur.

Ætla að þvinga rigningu úr skýjum í von um að bjarga uppskerum
Yfirvöld í Kína hyggjast framkalla rigningu með því að sá efnum í ský til að vernda kornuppskeru landsins. Sumarið í ár er það heitasta og þurrasta frá því mælingar hófust í Kína fyrir 61 ári. Vegna þess hafa uppskerur visnað og uppistöðulón eru helmingi vatnsminni en venjulega.