Erlent

Andrew hand­tekinn á heimili sínu

Breska lögreglan mætti í morgun heim til Andrew fyrrverandi Bretaprins við Sandringham höll og handtók hann. Vísir fylgist með málinu í vakt sem finna má neðst í fréttinni. Andrew á afmæli í dag og er 66 ára gamall.

Erlent

Rétta yfir fjór­tán ára gömlum leigu­morðingja

Saksóknari ætlar að láta rétta yfir fjórtán ára gömlum pilti í Norrköping í Svíþjóð fyrir morð, tilraun til manndráps og fleiri brot. Pilturinn er talinn hafa drepið mann á þrítugsaldri gegn greiðslu og reynt að myrða annan.

Erlent

Um­deilt Friðarráð fundar í Washington í dag

Tugir þjóðarleiðtoga og sendinefnda munu mæta á stofnfund Friðarráðs Donald Trump Bandaríkjaforseta í Washington í dag. Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands verða hins vegar fjarri góðu gamni, þar sem ríkin hafa afþakkað boð um sæti í ráðinu.

Erlent

Verjast fregna af við­ræðum dagsins

Þríhliða viðræðum Rússa, Úkraínumanna og Bandaríkjamanna um endalok innrásarstríðs Rússa í Úkraínu lauk í dag án eiginlegrar niðurstöðu. Viðræðurnar stóðu yfir í tvo daga í Genf í Sviss, en fundurinn í dag stóð yfir í aðeins tvær klukkustundir.

Erlent

„Stjórinn“ að fá nóg og líkur á á­rásum

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er líklegri en ekki til að hefja stríð gegn klerkastjórninni í Íran og slíkt stríð gæti hafist á næstunni. Árásir yrðu umfangsmiklar og stæðu líklega yfir í að minnsta kosti nokkrar vikur. Trump er sagður vera að missa þolinmæðina gagnvart klerkastjórninni.

Erlent

Kennir Selenskí um mis­heppnaða gagn­sókn

Maðurinn sem talinn er helsti pólitíski andstæðingur Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, hefur lengi forðast það að ræða pólitíkina þar í landi. Hann hefur nú opnað á þá umræðu í viðtali og varpað í leiðinni ljósi á deilurnar milli hans og Selenskís.

Erlent

Reyna aftur á morgun

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu gera aðra tilraun til að dæla eldsneyti á eldflaugina Space Launch System (SLS), sem á að nota til að senda geimfara til tunglsins á næstunni. Fyrst var það reynt í byrjun mánaðarins en þá fundust eldsneytislekar á eldflauginni og var Artemis 2 geimskotinu frestað.

Erlent

Á­kærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu

Réttarhöld hefjast á morgun yfir kærasta Kerstin G, sem lést af völdum ofkælingar á fjallinu Grossglockner í Austurríki fyrir um mánuði síðan. Ákæruvaldið segir að þar sem kærastinn hafi verið mun reynslumeiri en konan, hafi hann gerst sekur um alvarlega vanrækslu þegar hann yfirgaf hana á fjallinu og snéri ekki aftur eða leitaði aðstoðar í tíma.

Erlent

Banda­rískir her­menn í Nígeríu

Um hundrað bandarískir hermenn hafa verið sendir til Nígeríu, þar sem þeir munu þjálfa þarlenda hermenn og hjálpa þeim í átökum við uppreisnar-, víga- og glæpahópa. Þeim er ekki ætlað að taka þátt í átökum með hermönnunum sem þeir munu þjálfa.

Erlent

Colbert bannað að birta við­tal við Demó­krata

Stephen Colbert, sem stýrir þættinum Late Show á CBS í Bandaríkjunum, var meinað að birta viðtal við James Talarico, þingmann Demókrataflokksins á ríkisþingi Texas. Það voru lögmenn CBS sem bönnuðu birtingu myndbandsins, á grunni væntanlegra nýrra viðmiða frá Fjarskiptastofnun Bandaríkjanna (FCC) um suma spjallþætti.

Erlent

Skutu eld­flaugum á Hormuz-sund þegar við­ræður hófust

Yfirvöld í Íran tilkynntu í dag að Homuz-sundi hafi verið lokað og það yrði lokað í nokkrar klukkustundir vegna heræfinga. Eldflaugum hefur verið skotið út á sundið í þessum æfingum, sem eru haldnar á sama tíma og bandarískir og íranskir erindrekar funda í Genf. Bandaríkjamenn hafa hótað árásum á Íran, semji klerkastjórnin ekki um kjarnorkuvopnaáætlun ríkisins og önnur málefni.

Erlent

Reyna að stöðva ein á­tök og koma í veg fyrir önnur

Úkraínskir, bandarískir og rússneskir embættismenn eiga að hittast í Genf í Sviss í dag og ræða mögulega leið að friði. Ekki eru þó miklar væntingar á kreiki um að fundurinn muni reynast afdrifaríkur en þetta er í þriðja sinn sem erindrekar ríkjanna þriggja koma saman á þremur vikum.

Erlent

Gamall sófi og múr­steinar komu upp um barnaníðing

Gamall sófi, múrsteinar og ótrúleg samvinna urðu til þess að stúlku var bjargað úr klóm barnaníðings í Bandaríkjunum. BBC greinir frá málinu en teymi frá BBC World Service hefur fylgst með störfum rannsakenda barnaníðsmála í Bandaríkjunum, Rússlandi og víðar í fimm ár.

Erlent

Við­ræður Írana og Banda­ríkja­manna að hefjast í Genf

Viðræður Írana og Bandaríkjamanna hefjast í dag í Genf í Sviss. Spennan á milli ríkjanna hefur magnast síðustu vikur, ekki síst eftir að Bandaríkjamenn ákváðu að senda stóran flota með flugmóðurskipið Abraham Lincoln í broddi fylkingar að ströndum Írans.

Erlent

Fluttu kjarna­kljúf með flug­vél í fyrsta sinn

Bandarískir hermenn fluttu um helgina smáan kjarnakljúf með flugvélum milli herstöðva í Kaliforníu og Utah. Var það í fyrsta sinn sem kjarnakljúfar sem þessi er fluttur með flugvélum en ríkisstjórn Donalds Trump hefur lagt mikla áherslu á þróun og notkun kjarnakljúfa.

Erlent