Erlent
70 71 72 73 74 75 76 77 78 … 334 ›
Felldu einn af leiðtogum Kataib Hezbollah í drónaárás Einn af æðstu leiðtogum vígahópsins Kataib Hezbollah var felldur í drónaárás Bandaríkjamanna í Bagdad í Írak í gær. Hann er sagður hafa komið með beinum hætti að skipulagningu og framkvæmd árása á bandaríska hermenn í Írak, Sýrlandi og Jórdaníu. Erlent 8.2.2024 09:46
Hafnar kröfum um vopnahlé og spáir fullnaðarsigri Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael hafnaði í dag vopnahléstillögu Hamas. Þá sagði hann fullnaðarsigur á Gasa væntanlegan á næstu mánuðum. Erlent 7.2.2024 23:08
Segir alþjóðasamfélagið gleyma Súdan og vill 570 milljarða í aðstoð Yfirmaður hjálparsamtaka sameinuðu þjóðanna biðlaði í dag til a að gleyma ekki því neyðarástandi sem nú stendur yfir í Súdan, en þar hefur stríð geisað í landinu í tíu mánuði. Erlent 7.2.2024 19:29
Sár árásarmannsins gætu reynst banvæn Maðurinn sem skvetti sýru framan í 31 árs gamla konu og tvær dætur hennar í Lundúnum síðasta miðvikudag áður en hann lagði á flótta, er enn ófundinn. Sár hans gætu að sögn lögreglu reynst banvæn komist hann ekki undir læknishendur. Erlent 7.2.2024 17:59
Leitin hefur ekki borið árangur Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Færeyjum í gær hefur ekki skilað árangri í dag. Leitað hefur verið úr lofti og á sjó en einn neyðarsendir úr skipinu hefur fundist. Erlent 7.2.2024 17:00
Hlakkar í Rússum vegna heimsóknar Carlson Tucker Carlson, fyrrverandi sjónvarpsmaður Fox News, hefur tekið viðtal við Vladimír Pútín, forseta Rússlands. Þetta er fyrsta viðtal forsetans af þessu tagi frá því Rússar hófu innrásina í Úkraínu í febrúar 2022. Erlent 7.2.2024 16:28
Höfðar mál gegn Disney og Lucasfilm með stuðningi Musks Leikkonan Gina Carano hefur höfðað mál gegn Walt Disney og Lucasfilm, með stuðningi auðjöfursins Elons Musk. Carano heldur því fram að hún hafi ranglega verið rekin frá þáttunum Mandalorian árið 2021 vegna þess að hún hafi dreift íhaldssömum stjórnmálaskoðunum sínum á samfélagsmiðlum. Erlent 7.2.2024 14:24
Óreiðan á þingi nær nýjum hæðum Óreiðan á bandaríska þinginu náði nýjum hæðum í gær. Á meðan Repúblikanar í öldungadeildinni gerðu útaf við samkomulag um hernaðaraðstoð og aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, samkomulag sem þeir höfðu krafist um mánaða skeið, guldu Repúblikanar afhroð í tveimur atkvæðagreiðslum í fulltrúadeildinni. Erlent 7.2.2024 11:49
Leit haldið áfram við Færeyjar í dag Leit að tveimur sjómönnum sem saknað er eftir að línuskipið Kambur sökk suður af Suðurey í Færeyjum í gær verður haldið áfram í dag. Sextán manns voru um borð í skipinu þegar það fékk á sig brotsjó í gærmorgun og mikil slagsíða kom á það. Erlent 7.2.2024 10:22
Tucker Carlson í Moskvu til að taka viðtal við Vladimir Pútín Hinn umdeildi sjónvarpsmaður Tucker Carlson er staddur í Moskvu, að eigin sögn til að taka viðtal við Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Hann segir nauðsynlegt að upplýsa Bandaríkjamenn um stríð sem þeir eru að fjármagna en vita fátt eitt um. Erlent 7.2.2024 08:06
Móðir dæmd samsek fyrir skotárás sem sonurinn framdi í skóla Kviðdómur í Michigan í Bandaríkjunum komst að þeirri niðurstöðu í gær að kona á fimmtugsaldri væri sek um manndráp af gáleysi, fyrir að hafa ekki komið í veg fyrir það þegar sonur hennar skaut fjóra samnemendur sína til bana í gagnfræðaskóla í bæ þeirra. Erlent 7.2.2024 07:53
Laut í lægra haldi fyrir valkostinum „Enginn af þessum frambjóðendum“ Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, mátti þola mikla niðurlægingu í gær þegar forval fyrir forsetakosningarnar fór fram í Nevada í gær. Erlent 7.2.2024 07:23
Umfangsmiklar loftárásir á borgir Úkraínu í morgunsárið Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði í morgun eftir að Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á höfuðborgina og aðrar borgir í Úkraínu. Erlent 7.2.2024 06:52
Fyrrverandi forseti Síle lést í þyrluslysi Sebastian Pinera, fyrrverandi forseti Síle, lést í dag þegar þyrla sem hann ferðaðist með féll ofan í stöðuvatn í suðurhluta Síle. Pinera var 74 ára gamall. Erlent 6.2.2024 23:55
Úkraínskir sérsveitarmenn sagðir berjast gegn Wagner í Súdan Úkraínskir sérsveitarmenn eru sagðir hafa um nokkuð skeið barist gegn málaliðum Wagner-Group. Nýtt myndband sem úkraínskur fjölmiðill hefur birt er sagt sýna rússneskan málaliða og meðlimi sveita sem kallast RSF í haldi úkraínskra sérsveitarmanna á vegum leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR). Erlent 6.2.2024 17:01
Trump nýtur ekki friðhelgi, í bili Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er ekki með friðhelgi gegn ákærum. Þetta er úrskurður áfrýjunardómstóls í Washington DC en málið fer líklega fyrir hæstarétt Bandaríkjanna. Erlent 6.2.2024 15:25
Mótmæla líkt og franskir starfsbræður sínir Spænskir bændur hafa nú bæst í hóp þeirra fjölmörgu úr starfsstéttinni sem hafa mótmælt undanfarið víða um Evrópu. Erlent 6.2.2024 14:39
Tveggja saknað eftir að færeyskt línuskip sökk Tveggja manna er saknað eftir að færeyska línuskipið Kambur fékk á sig brot í morgun. Mikil slagsíða kom á skipið og sendi áhöfn þess út neyðarkall um klukkan sjö í morgun. Erlent 6.2.2024 12:27
Snerist hugur nokkrum tímum eftir að hann sagði aðgerðir nauðsynlegar Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ráðlagði meðlimum þingflokks síns í gærkvöldi að greiða atkvæði gegn nýju frumvarpi um aukna gæslu og hertar aðgerðir á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og Ísraelum, auk annars. Erlent 6.2.2024 11:38
Fyrrverandi forsætisráðherra Írlands látinn John Bruton, fyrrverandi forsætisráðherra Írlands, er látinn, 76 ára að aldri. Hann gegndi embætti forsætisráðherra (Taoiseach) á árunum 1994 til 1997. Erlent 6.2.2024 10:50
Tíu létust í hákarlaárásum í fyrra Tíu létust í kjölfar hákarlaárása árið 2023 en aðeins fimm árið á undan. Alls voru 69 bitnir í árásum í óvæntum árásum, ívið fleiri á brimbretti en að synda eða vaða. Erlent 6.2.2024 10:21
Haley biður um aukna vernd Nikki Haley, sem berst enn við Trump um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember, hefur óskað eftir vernd frá lífvarðasveit forseta Bandaríkjanna (e. Secret service). Ástæðan ku vera sú að henni hefur borist alvarlegar hótanir að undanförnu. Erlent 6.2.2024 10:07
Ræddu nauðsyn þess að draga úr spennu Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er nú á leið til Kaíró til að funda með Abdel Fattah El-Sisi, forseta Egyptalands. Blinken átti fund með Mohammed bin Salman, krónprins Sádi Arabíu í gær. Erlent 6.2.2024 07:59
Milljarða tjón hjá Karolinska Institutet þegar frystir bilaði um jólin Milljarða tjón varð og ómetanleg sýni eyðilögðust á Karolinska Institutet í Svíþjóð á dögunum þegar stór frystiskápur bilaði. Erlent 6.2.2024 07:22
Hefur margbrotið sig en annars verið við ágæta heilsu Harry Bretaprins mun ferðast frá heimili sínu í Los Angeles á næstu dögum til þess að heimsækja föður sinn, Karl III Bretakonung, sem hefur greinst með krabbamein. Erlent 6.2.2024 06:58
Camembert og Brie í bráðri útrýmingarhættu Sveppirnir sem eru notaðir til að framleiða camembert og brie eru í hættu á að deyja út vegna stöðlunar í framleiðslu ostanna. Erlent 6.2.2024 06:00
Mannýgir flóðhestar Escobars valda usla Afkomendur fjögurra flóðhesta sem voru í eigu fíkniefnabarónsins Pablo heitins Escobar hafa verið að valda usla í Kolumbíu undanfarið. Þeir eru sagðir mannýgir. Erlent 5.2.2024 23:35
Karl Bretakonungur með krabbamein Karl III Bretakonungur hefur greinst með krabbamein. Erlent 5.2.2024 18:07
Stofna til óháðrar rannsóknar á UNRWA António Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur stofnað óháðan rannsóknarhóp sem á að skoða starfsemi Palestínuflóttamannaaðstoðar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) í kjölfar ásakana um að nokkrir af þúsundum starfsmanna stofnunarinnar hafi tekið þátt í árásum Hamas-liða á Ísrael þann 7. október. Erlent 5.2.2024 16:56
Langar viðræður um landamærin og hernaðaraðstoð skila „dauðu“ frumvarpi Öldungadeildarþingmenn úr báðum flokkum Bandaríkjaþings birtu í gær nýtt frumvarp um öryggi á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð til Úkraínu og Ísrael. Frumvarpið var samið eftir langar viðræður en ef þingmönnum tekst að fá það samþykkt í öldungadeildinni þykir líklegt að það verði ekki svo gott sem tekið til umfjöllunar í fulltrúadeildinni. Erlent 5.2.2024 15:02