Innlent
61 62 63 64 65 66 67 68 69 … 334 ›
Grunaður um hnífaárás eftir strok frá Stuðlum Einn þeirra þriggja sem handtekinn var í póstnúmeri 108 í Reykjavík í nótt í tengslum við hnífstunguárás skömmu áður var í stroki frá Stuðlum. Hann hefur verið vistaður aftur á meðferðarheimilinu. Innlent 10.9.2024 14:42
Vilja losna við einkaþotur og þyrlur af Reykjavíkurflugvelli Félagar í samtökunum Hljóðmörk - Íbúasamtök gegn óþarfa flugumferð á Reykjavíkurflugvelli krefjast þess að óþarfa flug hverfi frá Reykjavíkurflugvelli. Að baki samtökunum standa íbúar úr Hlíðum, Vesturbæ Reykjavíkur og Kársnesi. Samtökin vilja einnig fá aðild að opinberum nefndum og samráðshópum um stefnumótun flugvallarins. Innlent 10.9.2024 14:33
Hlaupið í rénun Jökulhlaup sem staðið hefur yfir í Skálm undanfarna sólarhringa er í rénun. Innlent 10.9.2024 14:05
Nú er of seint að fara í parísarhjólið Unnið er að því að taka parísarhjólið við Miðbakka í Reykjavík niður. Hjólið fékk að standa á bakkanum frá því um miðjan júní en í könnun kom fram að fimmtán prósent landsmanna hyggðust fara hring í hjólinu í sumar. Innlent 10.9.2024 13:43
Sigmundur veit ekki hvort hann á að hlæja eða gráta „Ég er búinn að vera í þessum bransa í 15 ár og mér er til efs að ég hafi nokkru sinni séð eins gott fjárlagafrumvarp, það nálgast það að geta heitið fullkomið,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins, inntur eftir viðbrögðum við nýju fjárlagafrumvarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson fjármálaráðherra kynnti í morgun. Innlent 10.9.2024 13:29
Albert mætir fyrir dóm á fimmtudag Aðalmeðferð í máli knattspyrnumannsins Alberts Guðmundssonar fer fram í Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtudag og föstudag. Albert kemur til landsins og mun gefa skýrslu fyrir dómi. Innlent 10.9.2024 13:25
Svona var setning Alþingis með nýjum forseta og biskup Setningarathöfn Alþingis hefst klukkan 13:30 með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskup Íslands, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu. Innlent 10.9.2024 12:49
Viðbúinn átökum á Alþingi í vetur Það er viðbúið að átakavetur sé framundan í stjórnmálum að sögn forseta Alþingis, sem vonar þó að þingstörf fari fram með skikkanlegum hætti. Síðasti þingvetur fyrir alþingiskosningar hefst í dag þegar þing verður sett síðdegis. Yfir tvö hundruð mál eru á þingmálaskrá. Innlent 10.9.2024 12:17
Ríkisstjórn í megrun en borðar jafn mikið og hreyfir sig ekkert Ríkisstjórnin axlar enga ábyrgð á verðbólgunni að mati formanns flokks Fólksins sem gefur nýju fjárlagafrumvarpi falleinkunn. Þingmaður Viðreisnar segir ráðherra í engum takti við raunveruleikann. Innlent 10.9.2024 12:08
Tæma laugina og skella í lás í tvær vikur Laugardalslaug verður lokuð almenningi næstu tvær vikurnar þar sem til stendur að tæma laugina og sinna framkvæmdum og ýmsu viðhaldi. Innlent 10.9.2024 11:50
Fjármálaráðherra segir engar kollsteypur í fjárlagafrumvarpinu Útgjöld ríkissjóðs halda áfram að aukast að raungildi á næsta ári samkvæmt fjárlagafrumvarpi sem lagt var fram í morgun. Fjármálaráðherra segir frumvarpið engu að síður styðja við markmið Seðlabankans um hjöðun verðbólgu og lækkun vaxta. Innlent 10.9.2024 11:45
Segir þrásetu ríkisstjórnarinnar stórskaðlega Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar sér fátt eitt jákvætt í nýju fjárlagafrumvarpi. Þráseta ríkisstjórnarinnar sé þegar farna að valda verulegum skaða í efnahagsmálum. Innlent 10.9.2024 11:37
Halla og Guðrún í nýjum hlutverkum og aðhald í ríkisrekstri Ríkisstjórnin boðar aðhald til að ná tökum á verðbólgu og vöxtum í nýju fjárlagafrumvarpi. Gert er ráð fyrir að hallarekstur ríkissjóðs dragist saman um sextán milljarða króna á milli ára og nemi 41 milljarði króna árið 2025. Þing verður sett í dag þar sem tvær konur, nýr forseti og biskup taka þátt í fyrsta skipti. Innlent 10.9.2024 11:31
Hinn grunaði í Selfossmálinu er látinn Karlmaður á þrítugsaldri sem grunaður var um að hafa orðið Sofiu Sarmite Kolsenikovu að bana á Selfossi í apríl í fyrra lést í vikunni. Rannsókn málsins verður lokið þrátt fyrir að ljóst sé að ákæra verði ekki gefin út í því. Innlent 10.9.2024 11:30
Tímabært að stækka bráðamóttökuna á Landspítalanum Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra segir tímabært að stækka bráðamóttökuna á Landspítalanum. Íslendingum hafi fjölgað hratt síðustu ár og móttakan ekki haldið í við þá þróun. Þá segir hann einnig til skoðunar að taka álag af bráðamóttöku með sérstakri smáslysamóttöku. Innlent 10.9.2024 11:23
Framboð Höllu Hrundar kostaði rúmar 27 milljónir króna Forsetaframboð Höllu Hrundar Logadóttur kostaði 27,4 milljónir króna en það skilaði rúmlega 82 þúsund króna afgangi. Halla Hrund lagði framboðinu til hátt í tvær milljónir króna af eigin fé. Innlent 10.9.2024 10:54
Fyrsta Airbus-þotan komin í liti Icelandair TF-IAA, fyrsta Airbus-þotan sem Icelandair mun taka við, kom út af málningarverkstæði Airbus í Hamborg í gærkvöldi. Áætlað er að þotan, sem er af gerðinni Airbus A321 LR, komi til landsins í nóvember og verði fáum dögum síðar tekin í notkun á áætlunarleiðum Icelandair. Innlent 10.9.2024 10:20
Þrettán nýjar heimildir ráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson fjármála- og efnahagsráðherra fær ýmsar nýjar heimildir verði fjárlagafrumvarp hans samþykkt á Alþingi eins og reikna má fastlega með. Þar má meðal annars finna leyfi til að vinna með losunarheimildir, selja fasteignir í sveitum, kaupa húsnæði fyrir Rannsóknarnefnd samgönguslysa og stofnun sjóðs um verk Jóns Leifs. Innlent 10.9.2024 10:12
Dómsmálaráðherra hafi ekki staðið með tjáningarfrelsinu Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari segir þungu fargi létt af sér eftir að dómsmálaráðherra tilkynnti að hann yrði ekki leystur frá störfum. Hann segist þó ekki ánægður með rökstuðning dómsmálaráðherra og að hún hafi ekki staðið með tjáningarfrelsinu. Ríkissaksóknari segir ekki unnt að upplýsa um næstu skref að svo stöddu. Innlent 10.9.2024 09:36
Svona var kynning Sigurðar Inga á fjárlagafrumvarpinu Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra boðar til fréttamannafundar í fjármála- og efnahagsráðuneytinu klukkan 09 í dag. Á fundinum kynnir ráðherra fjárlagafrumvarp fyrir árið 2025. Innlent 10.9.2024 08:31
Telur röð tilviljana hafa orðið til þess að árásin átti sér stað Þrír geðlæknar sem gáfu skýrslu í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær varðandi stunguárás sem átti sér stað í Vesturbænum í janúar voru á sama máli um að karlmaður sem er ákærður í málinu væri sakhæfur. Það er þrátt fyrir að hann hafi verið í erfiðu andlegu ástandi þegar atvikin sem málið varða áttu sér stað. Innlent 10.9.2024 06:46
Óvissustig og viðvaranir enn í gildi Óvissustig almannavarna er í gildi i fyrir Norðurland og á Ströndum. Þar eru appelsínugular viðvaranir í gildi vegna hvassviðris og snjókomu til klukkan níu. Talsverð snjókoma og hálka er á fjallvegum, einkum austan til. Innlent 10.9.2024 06:37
661 barn á biðlista eftir plássi í leikskólum Reykjavíkurborgar Alls bíður 661 barn nú eftir því að fá pláss í leikskóla á vegum Reykjavíkurborgar, samkvæmt svörum skóla- og frístundaráðs við fyrirspurn Mörtu Guðjónsdóttur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Innlent 10.9.2024 06:29
Þrír handteknir í tengslum við hnífstunguárás Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók þrjá einstaklinga í gærkvöldi eða nótt í tengslum við hnífstunguárás. Árásarþoli leitaði á bráðamóttöku en meiðsl voru talin minniháttar. Innlent 10.9.2024 06:13
Gætu þurft að taka fram fyrir hendur Seðlabankans Stjórnvöld verða að grípa inn í, hafi peningastefnunefnd Seðlabankans ekki hug á því að lækka vexti í bráð. Þetta segir þingmaður Flokks fólksins sem hvetur fólkið til þess að mótmæla við þingsetningu á morgun. Innlent 9.9.2024 23:17
Flýta göngum til að forða fé af fjöllum Appelsínugular viðvaranir hafa tekið gildi á Norðurlandi og varað er við miklu hvassviðri og snjókomu þar til klukkan níu í fyrramálið. Bændur hafa hafist handa við að koma fé af fjöllum. Innlent 9.9.2024 22:32
Sagði hótelið hafa sagt sér upp vegna meðgöngu maka Kærunefnd jafnréttismála féllst ekki á að Hótel Grímsborgir hafi brotið gegn lögum með uppsögn kokks en hann sakaði hótelið um að hafa sagt sér upp vegna meðgöngu maka hans og vegna þjóðernisuppruna hans. Innlent 9.9.2024 22:00
„Það er bannað að klípa í rassinn á flugfreyjunum“ Flugfreyjurnar í gamla daga fengu stundum að stýra flugvélunum og þær höfðu sín ráð til að takast á við dónakarla. Fyrrverandi flugfreyjur hjá Flugfélagi Íslands, sem kalla sig sexurnar, deildu slíkum sögum í þættinum Flugþjóðin. Innlent 9.9.2024 21:21
Segja að ekkert muni breytast nema fólkið sýni samstöðu Verkalýðshreyfingin hefur boðað til mótmæla við þingsetningu á morgun. Verkalýðsforkólfar segjast skynja mikla reiði vegna langvarandi verðbólgu og háum vöxtum og krefjast þess að stjórnvöld setji heimilin í landinu í forgang. Innlent 9.9.2024 20:02
„Við sáum átta metra ofan í jörðina“ Sprungan sem liggur í gegnum Hópið í Grindavík nær niður á grunnvatn, allt að þrettán metra niður í jörðina. Ekki er öruggt að vera í húsinu og þarf þónokkur vinna að fara fram áður en hægt yrði að hleypa fólki þar inn. Bæjarfulltrúar kynntu sér aðstæður í skemmdum byggingum í Grindavík í dag og menningarmiðstöðin Kvikan var opin í fyrsta sinn í tíu mánuði. Innlent 9.9.2024 20:02