Innlent
73 74 75 76 77 78 79 80 81 … 334 ›
Halla og Björn hittu Macron-hjónin í París Forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason hittu frönsku forsetahjónin Emmanuel og Brigitte Macron í Elysee-höll í París í gær. Innlent 29.8.2024 11:39
Hnullungar á fleygiferð: „Ég man ekki eftir öðru eins“ Bæjarstjóri Bolungarvíkur segir mikinn mun á Óshlíðinni suðaustan við bæinn vegna grjóthruns í sumar. Fólki er ráðlagt að fara varlega. Innlent 29.8.2024 11:33
Þýðing nýjustu skoðanakannana og verðbólga þokast niður Einungis yrði hægt að mynda þriggja flokka ríkisstjórn með þáttöku Samfylkingarinnar yrðu kosningaúrslit samkvæmt nýjustu könnun Maskínu. Í hádegisfréttum förum við yfir stöðuna í stjórnnmálunum. Innlent 29.8.2024 11:32
Flýgur þyrlunni á myndbandinu og braut engar reglur Þyrluflugmaður segir að drónaflugmenn hafi verið að fljúga drónum sínum alltof hátt við gosstöðvarnar síðustu daga, og það skapi hættu fyrir þyrlur. Drónaflugmaður segir að það séu pottþétt einhverjir drónaflugmenn sem fljúgi of hátt, en það sé aðallega almenningur með dróna. Innlent 29.8.2024 11:09
Engar nýjar vísbendingar borist lögreglu Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Hamraborgarmálinu svokallaða stendur enn yfir. Engar nýjar vísbendingar eða upplýsingar hafa borist og hefur sá sem handtekinn var nokkrum vikum eftir þjófnaðinn enn einn stöðu sakbornings í málinu. Innlent 29.8.2024 10:14
Segir sveitarfélögin á landsbyggðinni „eins og þriðja heims ríki“ „Ég hef sagt það í langan tíma að þessi sveitarfélög úti á landi sem eru með orkumannvirki eru eins og þriðja heims ríki þar sem aðrar þjóðir koma og taka auðlindirnar og fara með þær.“ Innlent 29.8.2024 08:55
Fjórðungur landsmanna vill Kristrúnu í forsætisráðuneytið Um það bil 24 prósent landsmanna vill sjá Kristrúnu Frostadóttur, formann Samfylkingarinnar, sem næsta forsætisráðherra Íslands. Næstur er Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, með níu prósent. Innlent 29.8.2024 08:22
Björguðu manni úr sjálfheldu nærri Rauðfeldsgjá Björgunarsveitarmenn björguðu í gær manni sem hafði komið sér í sjálfheldu í gili austan Rauðfeldsgjár á Snæfellsnesi. Innlent 29.8.2024 07:30
Engin gosmóða í dag Litlar breytingar hafa orðið á gosstöðvunum í nótt og ekki má búast við gosmóðu yfir suðvesturhorninu í dag. Innlent 29.8.2024 07:27
Vilja koma í veg fyrir að börnin taki lögin í eigin hendur Elísabet Ósk Maríusdóttir hefur verið lögreglumaður í fjögur ár og þar af þrjú sinnt svokallaðri samfélagslöggæslu. Hún sinnir því meðfram almennum löggæslustörfum einn dag í viku. Samfélagslögreglan vinnur markvisst að því að stytta boðleiðir og efla traust í nærsamfélaginu. Innlent 29.8.2024 07:01
Fullviss að Guðrún standi með sér Helgi Magnús Gunnarsson, vararíkissaksóknari, segist fullviss um að dómsmálaráðherra hafni beiðni Sigríðar Friðjónsdóttur, ríkissaksóknara, um að hann verði tímabundið leystur frá störfum. Innlent 29.8.2024 06:28
Sífellt fleiri verði nærsýnir vegna snjalltækja Ólafur Már Björnsson, augnlæknir hjá Sjónlagi, segir að nærsýnisfaraldur herji á heimsbyggðina. Þegar krakkar sitji klukkutímunum saman fyrir framan snjalltæki fari augað að aðlaga sig að breyttum aðstæðum. Innlent 28.8.2024 23:59
„Ég horfði á stykkið og sólina baka það“ Birgir Þór Júlíusson kom að bandaríska manninum sem lést í slysi á Breiðamerkurjökli á sunnudag. Hann reyndi endurlífgun en án árangurs. Birgir Þór er einn eigenda ferðaþjónustufyrirtækisins Niflheima sem skipuleggur íshellaskoðun í jöklinum. Birgir var í hellinum rétt áður en hann hrundi og varaði annan leiðsögumanninn sem var á leið inn við því að stykki í hellinum gæti hrunið. Innlent 28.8.2024 23:38
Katrín tekur sæti í háskólaráði HÍ Katrín Jakobsdóttir fyrrverandi forsætisráðherra hefur tekið sæti í háskólaráði Háskóla Íalands til næstu tveggja ára. Meðal verkefna háskólaráðs er að marka heildarstefnu í málefnum háskólans og setja reglur um starfsemi háskólans á grundvelli laga. Þá fer háskólaráð með úrskurðarvald í málefnum skólans. Innlent 28.8.2024 21:49
Safnaði 700 þúsund krónum: „Ég hreinlega bara elska Barnaspítalann svo mikið“ Ólavía Þorkelsdóttir Skarstad, tíu ára frá Akranesi, tók upp á því fyrir um tíu dögum síðan að teikna myndir af Akrafjalli sem hún gekk með á milli húsa og seldi á 200 krónur stykkið. Þetta gerði hún til styrktar Barnaspítala Hringsins og hafa nú safnast rúmlega 700 þúsund krónur. Innlent 28.8.2024 21:32
Betra að blása eða skola nornahárin af til að koma í veg fyrir skemmdir Bergrún Arna Óladóttir, gjóskulagafræðingur á Veðurstofu Íslands, segir nornahár ekki ný af nálinni. Það þurfi ekki að óttast þau en hún hvetur þó fólk frekar til að skola eða blása þau burt en að bursta þau eða nudda þau burt liggi þau á bíl eða trampólíni. Bergrún ræddi nornahárin í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Innlent 28.8.2024 21:02
Neyðarkassinn eigi að skapa ró Rauði krossinn hvetur fólk til að útbúa neyðarkassa með helstu nauðsynjun ef hættuástand á borð við náttúruhamfarir steðjar að. En hvað þarf að vera í kassanum? Innlent 28.8.2024 20:02
Bylting í skipulagi miðbæjar Hafnarfjarðar Í dag var gengið frá samkomulagi um mestu framkvæmdir í miðbæ Hafnarfjarðar í áratugi. Alger bylting verður á í nýjum húsakosti bókasafns bæjarins, að sögn bæjarstjórans. Innlent 28.8.2024 19:21
Miðflokkurinn að taka fram úr Sjálfstæðisflokknum í fylgi Miðflokkurinn er orðinn næst stærsti flokkurinn á Alþingi, en ekki er marktækur munur á fylgi hans og Sjálfstæðisflokksins. Formaður Miðflokksins segir þetta til marks um að skynsemin sé farin að ná til kjósenda. Innlent 28.8.2024 18:32
Ungmenni með hníf í skólanum Tilkynnt var um ungmenni með hníf í skólanum á lögreglustöð 1, sem sér um Austurbæ, Miðbæ, Vesturbæ og Seltjarnarnes. Málið var afgreitt með foreldrum, barnavernd og lögreglu. Innlent 28.8.2024 18:25
Tíðindi í nýrri könnun, neyðarkassi og hundahlaup í beinni Nokkur tíðindi eru í nýrri könnun Maskínu á fylgi stjórnmálaflokkanna. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 rýnum við í hana og fáum viðbrögð frá hástökkvara. Innlent 28.8.2024 18:16
Hafnar því að nokkuð saknæmt sé í greininni um MAST Ester Hilmarsdóttir hafnar því alfarið að nokkuð saknæmt sé að finna í skrifum hennar um „glyðrugang eftirlitsstofnana“ en forstjóri Matvælastofnunar og tveir starfsmenn hennar hafa kært ummælin til Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra. Greint var frá því fyrr í dag. Innlent 28.8.2024 17:44
Styttur af Bakkabræðrum afhjúpaðar á Dalvík Styttur af Bakkabræðrunum þeim Gísla, Eiríki og Helga voru afhjúpaðar í morgun á göngustíg ofan Dalvíkur af nemendum Dalvíkurskóla. Ástæðan er sú að bræðurnir voru frá bænum Bakka í Svarfaðardal en skemmtilegu sögurnar af þeim bræðrum þekkja flestir. Innlent 28.8.2024 17:06
Þjóðarhöll sleppur við mat á umhverfisáhrifum Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að Þjóðarhöll í Laugardal skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Innlent 28.8.2024 16:21
Skaftárhlaupið í rénun: Kemur úr Eystri-Skaftárketli en ekki þeim vestri Skaftárhlaup er nú í rénun samkvæmt tilkynningu Veðurstofunnar. Rennsli mælist um 160 rúmmetrar á sekúndu og segir í tilkynningu að út frá breytingum á yfirborði Eystri-Skaftárketilsins, sem sjást af gervihnattamyndum, megi ætla að hlaupið komi þaðan en ekki úr þeim vestari eins og áður var talið líklegast. Innlent 28.8.2024 16:00
Samþykkja nafnið Buffý en hafna tveimur nöfnum Mannanafnanefnd hefur samþykkt eiginnöfnin Buffý og Amira og hafa þau verið færð á mannanafnaskrá. Innlent 28.8.2024 15:01
Sex bílum stolið af Heklu Brotist var inn í höfuðstöðvar Heklu við Laugaveg 174 í Reykjavík seint í gærkvöldi og sex bifreiðum stolið. Bifreiðarnar eru bæði í eigu fyrirtækisins og viðskiptavina þess. Innlent 28.8.2024 14:59
Annar skemmdarvargurinn handtekinn en hinn á bak og burt Tvo daga í röð voru framin eignaspjöll í og við bygginguna sem stendur við Guðrúnartún 1 í Reykjavík. Í gærmorgun braust þangað inn maður sem braut rúðu og olli öðrum eignaspjöllum innandyra og á mánudagsmorgun gekk annar maður berserksgang fyrir utan húsið, braut þar flísar af klæðningu hússins og framdi önnur skemmdarverk á bílastæðinu við húsið. Innlent 28.8.2024 14:54
Konan sem lenti undir ísfarginu er ólétt Kona sem slasaðist alvarlega þegar hún varð fyrir ísfargi við Breiðamerkurjökul á sunnudaginn er ólétt. Samkvæmt heimildum fréttastofu er konan á batavegi og barnið sakaði ekki. Innlent 28.8.2024 14:50
Erfitt að fylgja þræði í hugmyndum borgarfulltrúans Framkvæmdastjóri Betri samgangna segir leiðinlegt að Borgarlínuframkvæmdir séu ekki komnar lengra en með nýjum samgöngusáttmála verði farið á fullt. Hann botnar lítið í hugmyndum borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins sem ýmist stingur upp á fimmfalt dýrari lausn eða ódýrari. Innlent 28.8.2024 14:31