Handbolti

„Það mikilvægasta sem við eigum“
Janus Daði Smárason segir íslenska landsliðið ávallt vera það sem er honum mikilvægast á ferlinum. Hann fagnaði þrítugsafmæli á dögunum en býr sig nú undir HM sem hefst í næstu viku.

Enn óvíst að stuðningsmenn Íslands fái HM-treyjur: „Afskaplega leitt“
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur leik á HM í Zagreb næsta fimmtudagskvöld. Nýjar landsliðstreyjur úr smiðju Adidas eru enn ófáanlegar fyrir stuðningsmenn, og í versta falli fara treyjurnar ekki í sölu fyrr en eftir heimsmeistaramótið.

Sveinn kallaður inn í landsliðið vegna meiðsla Arnars Freys
Íslenska karlalandsliðið í handbolta varð fyrir áfalli í kvöld þegar línumaðurinn Arnar Freyr Arnarsson meiddist í leik á móti Svíum.

Uppgjörið: Svíþjóð - Ísland 31-31 | Góð fyrirheit fyrir HM
Ísland og Svíþjóð skildu jöfn, 31-31, í fyrri vináttulandsleik þjóðanna í handbolta karla í kvöld. Leikið var í Kristianstad. Svíar tryggðu sér jafntefli með því að skora síðustu tvö mörk leiksins.

Tómarúm eftir brotthvarf Landins og Hansens úr landsliðinu
Henrik Møllgaard viðurkennir að Niklas Landin og Mikkel Hansen skilji eftir sig stór skörð í danska handboltalandsliðinu og talar um tómarúm í þeim efnum.

Dagur hundóánægður eftir sigur og saknar lykilmanns
Króatar verða væntanlega mótherjar Íslands í milliriðli á HM í handbolta í þessum mánuði. Dagur Sigurðsson, þjálfari Króatíu, var vægast sagt óhress með lið sitt í gærkvöld.

Eyjaför hjá bikarmeisturunum
Valur mætir ÍBV á útivelli í átta liða úrslitum Powerade-bikars kvenna í handbolta. Valskonur eiga titil að verja.

Fengið spark í rassgatið frá Guðjóni Val
Teiti Erni Einarssyni gefst stórt tækifæri á komandi heimsmeistaramóti að stimpla sig inn í íslenska landsliðið í fjarveru sveitungs síns Ómars Inga Magnússonar. Þetta er tækifæri sem Teitur hyggst grípa báðum höndum.

„Vonandi eitthvað til að byggja á í Evrópuleiknum“
„Ég er mjög ánægður, fannst við spila mjög vel og sérstaklega í seinni hálfleik. Vorum mjög sannfærandi og vinnum í raun bara nokkuð sannfærandi,“ sagði stoltur og sáttur Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, eftir 31-28 sigur sinna kvenna í toppslag Olís deildarinnar gegn Fram. Eftir tvo leiki á fimm dögum í upphafi árs flýgur liðið svo til Spánar í nótt.

Haukakonur byrja nýtt ár á tveimur sigurleikjum
Haukar sóttu tvö stig á Seltjarnarnesi í kvöld í Olís deild kvenna í handbolta.

Díana Dögg kom að fjórum mörkum í stórsigri á gömlu félögunum
Díana Dögg Magnúsdóttir og félagar hennar í Blomberg-Lippe unnu öruggan heimasigur í þýsku deildinni í kvöld.

Uppgjörið: Valur - Fram 31-28 | Valskonur láta ekkert undan
Valskonur eru enn ósigraðar í Olís deildinni eftir að hafa unnið 31-28 í toppslag gegn Fram í elleftu umferð. Valur er með fullt hús stiga og sex stiga forskot á Fram í efsta sæti deildarinnar.

Dana Björg ekki tapað síðan hún kom til baka af EM
Íslenski landsliðshornamaðurinn Dana Björg Guðmundsdóttir hefur fagnað sigri í öllum leikjum sínum síðan hún kom heim af Evrópumótinu þar sem hún tók þátt í sínu fyrsta stórmóti með íslenska landsliðinu.

Tapaði fyrir Þóri í úrslitaleik EM og er líka hættur
Jesper Jensen hefur ákveðið að hætta sem þjálfari danska kvennalandsliðsins í handbolta. Danska handboltasambandið segist vera mjög vonsvikið með ákvörðun þjálfarans.

Reynir að halda fókus á meðan Snorri gasar
Bjarki Már Elísson var nokkuð hress þrátt fyrir örlitla þreytu fyrir landsliðsæfingu handboltalandsliðsins í gærmorgun. Hann er klár í slaginn fyrir komandi heimsmeistaramót.

Mikið áfall fyrir Eyjakonur
Sennilegt þykir að markvörðurinn frábæri Marta Wawrzynkowska hafi þegar spilað sinn síðasta leik fyrir ÍBV á þessari leiktíð, í Olís-deild kvenna í handbolta.

Gamli landsliðsmarkvörðurinn í íslenska teymið
Roland Valur Eradze verður markvarðaþjálfari íslenska karlalandsliðsins á komandi heimsmeistaramóti í handbolta. Hann snýr aftur í stöðuna eftir að hafa gegnt henni í þjálfaratíð Geirs Sveinssonar.

„Á örugglega eftir að sjá eftir því á einhverjum tímapunkti“
Hvernig fer maður að því að vinna til 17 verðlauna á stórmótum á 15 árum? Fáir þekkja slíka velgengni en Þórir Hergeirsson gerir það svo sannarlega. Nokkrir þættir þurfa að vera til staðar.

Meiðslin sett strik í undirbúning
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, kveðst bjartsýnn fyrir komandi verkefni. Ísland leikur tvo æfingaleiki við Svía í vikunni áður en keppni hefst á HM í næstu viku.

Slagsmál í æfingaleik hjá mótherjum Íslands á HM
Slóvenar eru með okkur Íslendingum í riðli á HM í handbolta í þessum mánuði og þeir undirbúa sig meðal annars með leikjum við Katarbúa. Allt varð hins vegar vitlaust í æfingaleik þjóðanna í dag.

Frábærar fréttir fyrir Frakka
Frakkar hafa endurheimt hægri skyttuna Dika Mem fyrir komandi átök á HM karla í handbolta sem hefst í næstu viku. Þónokkuð meiðslavesen hefur verið á franska hópnum.

Aron spilar ekki fyrr en í milliriðli
Aron Pálmarsson, landsliðsmaður Íslands í handbolta, mun ekki spila með liðinu í riðlakeppninni á komandi heimsmeistaramóti vegna kálfameiðsla. Búist er við því að hann mæti til leiks í milliriðli.

Júlíus Þórir sannaði sig í starfinu
Júlíus Þórir Stefánsson hefur verið fastráðinn sem þjálfari Gróttu í Olís deild kvenna.

„Get skilið að þetta komi mörgum spánskt fyrir sjónir“
Viggó Kristjánsson verður í burðarhlutverki í íslenska landsliðinu á komandi heimsmeistaramóti í ljósi fjarveru Ómars Inga Magnússonar og í aðdraganda mótsins hefur mikið gengið á.

ÍR byrjar nýja árið með besta hætti
ÍR byrjar árið 2025 af krafti í Olís-deild kvenna í handbolta og tvöfaldaði sigurfjölda sinn með góðum sigri á ÍBV í Vestmannaeyjum í dag.

Alfreð Gísla: „Hljómar kannski hrokafullt en svona er þetta“
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands í handbolta, vill sjá lið sitt sýna á HM í þessum mánuði að verðlaunin á Ólympíuleikunum í París voru engin tilviljun. Hann segir Þýskaland með sterkasta liðið í sínum riðli.

Mun aldrei hitta neinn sem byggir upp lið eins og Þórir
Þórir Hergeirsson var heiðraður samtímis á tveimur verðlaunahófum í gærkvöld, á Íslandi og í Noregi. Ein af stjörnunum sem hann þjálfaði svo lengi í norska handboltalandsliðinu, Stine Oftedal Dahmke, þakkaði Þóri fyrir allt í verðlaunaræðu.

Tognun í rassi en Elvar telur HM ekki í hættu
Elvar Örn Jónsson, einn af burðarásum íslenska handboltalandsliðsins, vonast til þess að geta brátt tekið fullan þátt í lokaundirbúningnum fyrir HM. Hann er á toppi þýsku 1. deildarinnar með liði sínu Melsungen.

Díana Dögg öflug í sigri
Díana Dögg Magnúsdóttir átti góðan leik þegar Blomberg-Lippe vann átta marka sigur á Göppingen í efstu deild kvenna í þýska handboltanum, lokatölur 34-22. Þá skoraði Sandra Erlingsdóttir eitt mark í tíu marka útisigri Metzingen á Bensheim-Auerbach.

Uppgjörið: Stjarnan - Haukar 29-32 | Hafnfirðingar byrja árið af krafti
Haukakonur lönduðu sínum sjöunda sigri í Olís-deild kvenna þegar liðið sigraði Stjörnuna, 32-29, í Garðabæ í dag.Stjörnukonur voru staðráðnar að koma sterkari til leiks eftir að hafa fengið stóran skell þegar liðin mættust í september. Það var mikil barátta í heimakonum í upphafi leiks og héldu þær Haukum í skefjum.