Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Ekki láta smámuni draga úr þér kjarkinn og aftra þér frá því að láta drauma þína rætast. Þú getur það sem þú ætlar þér.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Það sem í fyrstu virðist áhugaverð hugmynd gæti reynst illa þegar á hólminn er komið. Þú ert virkur í dag í samræðum um mál sem þú ert vel að þér um. Vertu þolinmóður við vini þína þó að þeir geri glappaskot.

Menning

Nautið (20.apríl - 20.maí)

Þú gerist frumkvöðull á einhverju sviði og leitað verður til þín um ráðleggingar. Gættu þess að þetta stígi þér ekki til höfuðs.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú finnur fyrir viðkvæmni hjá fólki í dag og veist ekki hvernig best er að bregðast við. Vertu óhræddur við að sýna tilfinningar þínar.

Menning

Vogin (23.sept - 23.okt)

Greiðvikni vinnufélaga þíns hefur góð áhrif á andrúmsloftið á vinnustað þínum. Þú tekur frumkvæði í vandamáli sem upp kemur heima fyrir.

Menning

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Fjármálin valda þér nokkrum áhyggjum en verulegar líkur eru á að þau muni fara batnandi á næstunni. Ekki er ólíklegt að brátt dragi til tíðinda í ástarlífinu.

Menning

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)

Þér leiðast þessi hefðbundnu verkefni og þig langar til þess að eitthvað nýtt og spennandi gerist. Mundu að tækifærin fást ekki af sjálfu sér.

Menning

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)

Þér gengur óvenjuvel að aðlagast breyttum aðstæðum og átt auðvelt með samskipti við fólk. Tækifærin bíða þín á næstu grösum.

Menning

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ert með lítið sjálfstraust þessa dagana án þess að í rauninni sé nokkur ástæða til þess. Taktu vel á móti þeim sem eru vinsamlegir í þinn garð.

Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)

Vinabönd styrkjast á næstunni. Þú finnur fyrir stuðningi við áform þín en jafnframt er ætlast til þess af þér að þú sýnir öðrum áhuga og stuðning.

Menning

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)

Vinur leitar til þín eftir aðstoð við verkefni. Þú kannt að vera óviss um hvernig þú getur hjálpað honum en þú ættir að minnsta kosti að sýna andlegan stuðning.

Menning

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)

Þó að dagurinn verði annasamur og þú fáir krefjandi verkefni í hendurnar veitir það þér ánægju. Þér tekst vel upp með allt sem þú tekur þér fyrir hendur.

Menning

Bogamaður (22.nóv - 21.des)

Þér finnst vera til mikils mælst af þér og þú ekki metinn að verðleikum fyrir það sem þú gerir. Vinur þinn segir þér eitthvað sem þér bregður við að heyra.

Menning