Menning

Steingeit (22.des - 19.jan)
Ekki vera of viss um að þú hafir á réttu að standa í ágreiningsmáli. Þú værir maður að meiri ef þú viðurkenndir ósigur þinn strax og þú uppgötvar hann.

Bogamaður (22.nóv - 21.des)
Dagurinn verður fremur viðburðarsnauður en þú hittir þó verulega áhugaverða persónu sem gefur þér nýjar hugmyndir.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Ekki vera með látalæti við þína nánustu, þeir sjá í gegnum þig. Þú ættir frekar að leita eftir aðstoð þeirra og stuðningi.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þetta verður góður dagur á vettvangi félagsmála. Þeir sem hafa gengið í gegnum erfiðleika í ástarlífinu fara nú að sjá bjartari tíð á því sviði.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þú nýtur þín einstaklega vel ef þú ert á ferðalagi eða að skipuleggja ferðalag, þó gætu minniháttar vandkvæði skotið upp kollinum.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Dagurinn verður annasamur og ef til vill vinnst þér ekki tími til að ljúka nauðsynlegum málum.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)
Þú ert að velta einhverju alvarlega fyrir þér og það gæti dregið athygli þína frá því sem þú ert að vinna að. Reyndu að hvíla þig.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þó að ákveðin manneskja virðist gera sér far um að ónáða þig skaltu passa þig að missa ekki stjórn á skapi þínu.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Einhver þér nákominn verður fyrir vonbrigðum í dag. Gættu að orðum þínum og varastu alla svartsýni. Það gæti gert illt verra.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Vinátta og fjármál gætu valdið þér hugarangri í dag og þú skalt fara einstaklega varlega í viðskiptum. Reyndu að forðast að lenda í illdeilum við vini þína.

Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Þú færð kjörið tækifæri til að sýna væntumþykju þína í verki í dag. Einnig mætirðu góðvild frá öðrum og færð þá hjálp sem þú þarfnast.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þér finnst allt ganga hægt í byrjun dagsins en það borgar sig að vera þolinmóður. Kvöldið verður ánægjulegt.

Ljónið (23.júlí - 22.ágúst)
Það er einhver spenna í kringum þig sem þú veist ekki alveg af hverju stafar. Sýndu fólkinu í kringum þig þolinmæði og góðvild.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Þú verður fyrir einstöku happi í dag. Ekki er þó víst að um fjárhagslegan ávinning sé að ræða. Félagslífið er fremur fjörugt.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þó að þú sért í góðu skapi skaltu vara þig á að verða ekki of kærulaus. Sýndu ábyrgðartilfinningu.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú verður líklega nokkuð óþolinmóður fyrri hluta dags og verður að gæta þess að halda ró þinni. Kvöldið notarðu til að slappa af.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Breytingarnar liggja í loftinu og það gerir rómantíkin líka. Kvöldið hentar vel til heimsókna.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Þér er alveg óhætt að láta í ljós áhuga á því sem þú hefur raunverulega áhuga á. Vinur þinn mun standa með þér í ágreiningsmáli.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Ekki trúa sögusögnum sem þér berast til eyrna. Það er ólíklegt að allt sé satt sem þar kemur fram. Hlustaðu á vin þinn sem á í vanda.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Mundu að sinna þínum nánustu. Þú munt uppskera eins og þú sáir í þeim efnum.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þakkaðu fyrir hlé sem verða fyrri hluta dags. Þá gefst þér tækifæri til að sinna hugðarefnum þínum. Þú getur líka lokið ýmsu sem hefur setið á hakanum.

Tvíburarnir (21.maí - 21.júní)
Þér gengur vel að vinna einn og segja fólki fyrir verkum fyrri hluta dagsins en seinni hluta hans á samvinna betur við.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Vinir þínir skipuleggja helgarferð og mikil samstaða ríkir meðal hópsins. Félagslífið tekur mikið af tíma þínum en þeim tíma er vel varið.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)
Eðlisávísun þín er einkennileg um þessar mundir. Hún getur verndað þig gegn ýmsu sem er þér ekki að skapi.

Krabbinn (22.júní - 22.júlí)
Þú ættir að koma þér beint að efninu af þú þarft að hafa samband við fólk í stað þess að vera með málalengingar. Það virkar ekki vel á þá sem þú átt samskipti við.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú eyðir miklum tíma með fjölskyldunni og færð þann tíma margfalt borgaðan til baka í ást og umhyggju.

Nautið (20.apríl - 20.maí)
Reyndu að gera vini þínum, sem á eitthvað bágt, greiða. Hann mun launa þér það margfalt til baka þó að síðar verði.

Steingeit (22.des - 19.jan)
Þú ert fullur áhuga vegna nýs verkefnis sem þú ert að fara að taka þátt í. Láttu þér ekki bregða þó að einhver öfundi þig.

Vogin (23.sept - 23.okt)
Það virðast allir vera tilbúnir að aðstoða þig þessa dagana og þú skalt ekki vera feiminn við að þiggja þá aðstoð. Farðu þó varlega því ekki er allt sem sýnist.

Hrúturinn (21.mars - 19.apríl)
Hikaðu ekki við að taka upp nýja lífshætti ef þér býður svo við að horfa. Það getur nefnilega haft mjög góð áhrif á þig.