Viðskipti erlent
232 233 234 235 236 237 238 239 240 … 334 ›
Mágur Tchenguizbræðra flæktur í Kaupþingsmálið Viðskiptajöfurinn Vivian Imerman, mágur Tchenguiz bræðranna, hefur dregist inn í rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar á viðskiptum bræðranna við Kaupþing. Viðskipti erlent 20.3.2011 08:56
Árásin gæti haft áhrif á olíuverð Markaðir tóku að róast í lok vikunnar eftir stormasama daga vegna jarðskjálftanna og flóðbylgjunnar í Japan. Stærstu sjö iðnríki í heimi, svokölluð G7 ríki, gripu til aðgerða í fyrsta sinn í áratug. Talið er að þær aðgerðir hafi valdið því að japanska jenið féll um 3% gagnvart bandaríkjadal, úrvalsvísitalan í japan hækkaði um 2,7% og heimsmarkaðsverð á olíutunnunni lækkaði um 0,3%. Viðskipti erlent 19.3.2011 14:50
Segir rannsókn SFO ná til Banque Havilland Daily Mail segir frá því á vefsíðu sinni að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar SFO á Kaupþingsmálinu nái einnig til Banque Havilland bankans sem reistur var á rústum Kaupþings í Lúxemborg. Viðskipti erlent 18.3.2011 11:10
Svalasti Porsche heimsins til sölu Það er erfitt að ímynda sér svalari Porsche en þann sem settur verður á uppboð í Kaliforníu í sumar. Um er að ræða Porsche 911 S sem leikarinn Steve McQueen ekur í upphafsatriði myndarinnar Le Mans sem frumsýnd var árið 1971. Viðskipti erlent 18.3.2011 09:19
G7 ríkin samþykkja aðgerðir til að lækka gengi jensins Fjármálaráðherrar G7 ríkjanna hafa ákveðið að grípa til aðgerða á gjaldeyrismörkuðum heimsins til að þess að lækka gengi japanska jensins. Viðskipti erlent 18.3.2011 07:25
Verðbólgan hérlendis enn undir meðallaginu á evrusvæðinu Verðbólgan hér á landi miðað við samræmda vísitölu neysluverðs á evrusvæðinu mældist 2,3% í febrúar og hækkar lítillega frá því í janúar en þá var hún 2,2%. Þetta er í annar mánuðurinn í röð síðan í janúar árið 2008 sem verðbólgan hér á landi mælist undir meðalverðbólgu í ríkjum EES. Viðskipti erlent 17.3.2011 10:36
Tchenguiz tapaði milljörðum Vincent Tchenguiz, sem handtekinn var í síðustu viku vegna rannsóknar efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar á hruni Kaupþings, tapaði 43 milljónum sterlingspunda í fyrra. Upphæðin nemur um átta milljörðum. Viðskipti erlent 17.3.2011 10:18
Móðurfélag Norðuráls skilaði 7 milljarða hagnaði Century Aluminium móðurfélag Norðuráls á Grundartanga skilaði tæplega 60 milljón dollara, eða tæplega 7 milljarða króna, hagnaði eftir skatta og fjármagnsliði á síðasta ári. Viðskipti erlent 17.3.2011 09:38
Dýrasti hundur heims seldur á 180 milljónir Hreinræktaður Tíbethundur er sá dýrasti í heimi en hundur af þessu kyni sem heitir Hong Dong var nýlega seldur í Kína fyrir 10 milljónir yuan eða um 180 milljónir króna. Viðskipti erlent 17.3.2011 07:25
Markaðir í Japan tóku aðra dýfu í nótt Markaðir í Japan tóku aðra stóra dýfu í nótt og féll Nikkei vísitalan um rúmlega 4%. Aðrir markaðir í Asíu lokuðu einnig í rauðum tölum í morgun. Viðskipti erlent 17.3.2011 07:17
Trúður selur húsið sitt Casper Christensen og fyrrverandi eiginkona hans Iben Hjejle eru búin að selja glæsihúsið sitt á Norðursjálandi, en þau skildu á dögunum. Fasteignasalan Mette Lykken bolig, sem sá um söluna á húsinu staðfestir þetta við fasteignavefinn Boliga.dk. Ekkert fæst þó gefið upp um kaupverðið, en sjálf keyptu þau húsið fyrir upphæð sem nemur um 110 milljónum íslenskra króna. Það var fyrir þremur árum. Casper og Ibensen hafa verið eitt umtalaðasta parið í Danmörku að undanförnu. Þau leika hjón í Klovn þáttunum vinsælu. Viðskipti erlent 16.3.2011 09:59
Heimsmarkaðsverð á olíu snarlækkar Heimsmarkaðsverð á olíu hefur snarlækkað undanfarna daga vegna ástandsins í Japan. Tunnan af Brentolíunni lækkaði um 4,5% í gærdag og er komin undir 108 dollara. Bandaríska léttolían lækkaði um tæp 4% og er komin niður í tæpa 97 dollara á tunnuna. Viðskipti erlent 16.3.2011 07:12
Danir draga verulega úr Facebook notkun sinni Ný könnun sýnir að verulega hefur dregið úr notkun Dana á samskiptavefnum Facebook á síðasta ári. Könnunin þykir þó ekki gefa nákvæma mynd af notkuninni. Viðskipti erlent 16.3.2011 07:10
Japanska kjarnorkuógnin leikur markaði grátt Óttinn við umfangsmikið kjarnorkuslys í Japan hefur leitt til þess að markaðir í Evrópu hafa allir byrjað daginn með rauðum tölum. Þetta er framhald þróunar á markaðinum í Tókýó en þar hrundi Nikkei vísitalan um rúm 14% í nótt. Viðskipti erlent 15.3.2011 10:15
Algert hrun í kauphöllinni í Tókýó Algert hrun varð í kauphöllinni í Tókýó í nótt vegna ástandsins í Japan. Nikkei vísitalan féll um rúmlega 14% eftir að hafa fallið um rúm 6% í gær. Viðskipti erlent 15.3.2011 07:48
Robert Tchenguiz íhugar málaferli gegn SFO Breski auðmaðurinn Robert Tchenguiz, fyrrum stærsti viðskiptavinur Kaupþings, íhugar nú málaferli gegn efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar (SFO). Viðskipti erlent 15.3.2011 07:23
Edge innlánin notuð til að falsa gengi Kaupþingshluta Kevin Stanford stjórnarformaður All Saints, og fyrrum í hópi stærstu viðskiptavina Kaupþings, heldur því fram að Kaupþing hafi notað það fé sem lagt var inn á Edge reikninga bankans til þess að falsa gengið á hlutabréfum Kaupþings. Viðskipti erlent 14.3.2011 10:42
Krafa um að bresk skýrsla um íslensku bankanna verði opinber Tony Shearer fyrrum bankastjóri Singer & Friedlander bankans í London krefst þess að gerð verði opinber skýrsla sem breska fjármálaeftirlitið FSA gerði um fall Kaupþing og Landsbankans. Viðskipti erlent 14.3.2011 10:01
Jarðskjálftinn kostar Japani 11.500 milljarða Áhættumatsfyrirtækið Equecat hefur áætlað að efnahagskostnaður Japans vegna jarðskjálftans og flóðbylgjunnar muni nema um 11.500 milljörðum kr. Viðskipti erlent 14.3.2011 09:26
Undirbúningur að sölu Iceland kominn á fullt skrið Undirbúningur að sölunni á Iceland Food verslunarkeðjunni í Bretlandi er nú kominn á fullt skrið. Talið er að skilanefnd Landsbankans vilji selja keðjuna fyrir árslok. Viðskipti erlent 14.3.2011 07:39
Hafa enn ekki fengið 140 milljarða úr íslensku bönkunum Breskir skattgreiðendur hafa enn ekki fengið 750 milljónir punda, eða 140 milljarða króna, borgaða úr þrotabúum íslensku bankanna. Viðskipti erlent 14.3.2011 07:27
Jarðskjálftinn í Japan lækkar olíuverðið Jarðskjálftinn í Japan hefur leitt til þess að fleiri olíuhreinsistöðvar í landinu hafa lokað. Þetta hefur svo aftur haft þau áhrif að heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað töluvert í dag. Viðskipti erlent 11.3.2011 10:57
Bakkavör lokar matvinnslufyrirtæki í Bretlandi Yfir hundrað manns munu missa vinnu sína í Lincolnshire í Bretlandi þar sem Bakkavöru hefur ákveðið að loka Exotic Farm Produce, einu af matvinnslufyrirtækjum sínum sem þar er staðsett. Exotic Farm Produce sérhæfir sig í pökkun og sölu á grænmeti. Viðskipti erlent 11.3.2011 07:58
Hafa ekki verið lægri í tvö ár Peningastefnunefnd Englandsbanka, seðlabanka Bretlands, tilkynnti í gær að stýrivöxtum yrði haldið í 0,5 prósentum. Vaxtastig hefur nú haldist óbreytt þar í landi í tvö ár. Þetta var í takti við væntingar. Breska dagblaðið Guardian segir vaxtastig kunna að hækka þegar líður á árið, ekki síst þar sem aukinn þrýstingur sé á vaxtahækkun innan Viðskipti erlent 11.3.2011 06:00
Rússneskir vopnasalar slá fyrri sölumet Rússneski hergagnaiðnaðurinn sló fyrra sölumet í vopnasölu á síðasta ári. Útflutningur á rússneskum vélbyssum, herþotum, skriðdrekum o. sv. fr. nam rétt tæpum 1.000 milljörðum kr. á síðasta ári. Þetta er ívið hærri upphæð en árið 2009. Viðskipti erlent 10.3.2011 12:56
Evran hefur gefið eftir í vikunni Evran hefur gefið nokkuð eftir þessa vikuna og er komin á svipaðar slóðir og hún var um miðja síðustu viku. Nú þegar þetta er ritað (kl. 11:45) stendur evru/dollar krossinn í 1,3830 en í vikubyrjun náði hann sínu hæsta gildi á árinu, eða 1,4039. Viðskipti erlent 10.3.2011 12:21
Færa áhættulán í annað fyrirtæki Bank of America, einn umsvifamesti banki Bandaríkjanna, íhugar nú að loka einu af hverjum tíu útibúum sínum á næstu árum og færa tæpan helming af áhættusömustu fasteignaútlánunum inn í annað fjármálafyrirtæki, eins konar vondan banka sem mun halda utan um lélegar eignir bankans. Viðskipti erlent 10.3.2011 11:00
Danska stjórnin hefur hækkað skatta 295 sinnum Danska ríkisstjórnin hefur hækkað skatta í Danmörku 295 sinnum eða að meðaltali tvisvar á mánuði þau tíu ár sem stjórnin hefur verið við völd. Samt sem áður hefur skattastopp verið einn af hornsteinum í pólitík hægri flokkanna frá því að þeir náðu völdum árið 2001. Viðskipti erlent 10.3.2011 10:24
Krafa um rannsókn á tengslum Tchenguiz við Íhaldsflokkinn Stjórnarandstaðan á breska þinginu hefur gert kröfu um að tengsl Tchenguiz fjölskyldunnar við Íhaldsflokkinn verði rannsökuð. Viðskipti erlent 10.3.2011 09:24
Banna brask með skuldatryggingar Evrópuþingið hefur samþykkt löggjöf þar sem settar eru þröngar skorður við þeim viðskiptum sem sætt hafa hvað mestri gagnrýni í kjölfar efnahagskreppunnar, þ.e.a.s. skuldatryggingar ríkisskulda annars vegar og skortsölur hlutabréfa hins vegar. Viðskipti erlent 10.3.2011 09:00