
Viðskipti erlent

United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk
Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti í gær að það hefði ákveðið að hefja beint áætlunarflug milli New York og Nuuk, höfuðstaðar Grænlands, næsta sumar. Flugið hefst 14. júní og stendur yfir sumartímann til 24. september 2025.

Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða
Fyrrverandi viðskiptavinir rafmyntakauphallarinnar FTX eiga von á allt að 16,5 milljörðum dollurum upp í kröfur sínar þegar skiptum á þrotabúinu lýkur. Sumir þeirra gætu fengið allt að fimmtungi hærri upphæð til baka en þeir áttu þegar félagið fór í þrot.

Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla
Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur fengið vilyrði fyrir því að leggja allt að 45 prósent refsitoll á kínverska rafbíla þrátt fyrir andstöðu stærsta bílaframleiðanda álfunnar. Tollarnir eru svar við ríkisaðstoð við kínverska rafbílaframleiðslu sem ESB er ósátt við.

Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna
Samkomulag hefur náðst á milli stéttarfélaga hafnarverkamanna og eigenda hafna um að binda enda á þriggja daga langt verkfall sem hefur stöðvað skipaflutninga til stórra hafna á austurströnd Bandaríkjanna og við Mexíkóflóa.

Kærasta rafmyntamógúls í fangelsi vegna FTX-svikanna
Dómstóll í New York dæmdi Caroline Ellison, stjórnanda hjá rafmyntafyrirtækinu FTX, í tveggja ára fangelsi fyrir sinn þátt í stórfelldum fjársvikum. Hún hlaut vægari dóm fyrir að segja til Sams Bankman-Fried, stofnanda FTX og fyrrverandi kærasta hennar.

Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár
Bandaríski seðlabankinn hefur lækkað stýrivexti um hálft prósentustig. Um er að ræða fyrstu lækkunina í rúmlega fjögur ár, en vextir hafa verið óbreyttir í Bandaríkjunum í 14 mánuði.

Tupperware lýsir yfir gjaldþroti
Tupperware Brands og nokkur dótturfyrirtæki þess hafa lýst yfir gjaldþroti í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur staðið frammi fyrir gríðarlegu tapi vegna hækkandi kostnaðar og aukinnar samkeppni.

Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi
Dómstóll í Svíþjóð hefur snúið við sýknudómi yfir Birgitte Bonnesen, fyrrverandi forstjóra Swedbank, og dæmt hana í eins árs og þriggja mánaða fangelsi fyrir gróf fjársvik.

Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta
Evrópudómstóllinn hefur snúið við úrskurði neðra dómstigs í máli sambandsins gegn risafyrirtækinu Apple. Fyrirtækið mun því þurfa að greiða um 14,35 milljarða dala, plús vexti, í skatta.

Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu
Fjármálaráðherra Þýskalands hafnaði metnaðarfullum tillögum fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu um efnahagslega endurreisn álfunnar aðeins örfáum klukkustundum eftir að þær voru lagðar fram í gær. Nær útilokað virðist að þær nái fram að ganga.

Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar
Forsvarsmenn Apple kynna í dag nýjustu græjur fyrirtækisins á viðburði í Kaliforníu. Búist er við því að sýndir verði nýjustu símar fyrirtækisins, snjallúr og önnur tæki. Þá er einnig búist við því að gervigreind muni spila stóra rullu í kynningunni, sem ber titilinn: „It‘s glowtime“.

Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa
Efnahagsleg hnignun Evrópu þýðir að lífsgæði íbúa álfunnar skerðast ef ekkert verður að gert. Marshall-aðstoðin eftir seinna stríð bliknar í samanburði við þá fjárfestingu sem Evrópa þarf að ráðast í samkvæmt nýrri skýrslu fyrrverandi seðlabankastjóra Evrópu.

Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030
Bílaframleiðandinn Volvo hefur nú dregið í land með þær áætlanir sínar að bjóða einungis upp á alrafdrifna bíla árið 2030.

Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega
Hollenska fyrirtækið Elysian hefur kynnt áform um smíði 90 sæta rafmagnsflugvélar sem þjóna á allt að 800 kílómetra löngum flugleiðum. Fyrirtækið stefnir að því að hún verði komin í farþegaflug árið 2033, eftir níu ár.

Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens
Mark Zuckerberg forstjóri Meta segist sjá eftir því að hafa látið undan þrýstingi ríkisstjórnar Joe Biden um að ritskoða upplýsingar á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram. Efnið sem hann var beðinn um að fjarlægja voru það sem stjórnvöld kölluðu misvísandi upplýsingar um ýmislegt tengt Covid-19, og fréttir um upplýsingar á fartölvu Hunter Biden, sonar Joe Biden Bandaríkjaforseta.

Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll
Breska ríkisstjórnin hefur samþykkt áætlun sem felur í sér að farþegum um London City-flugvöll fjölgar úr 6,5 milljónum á ári upp í níu milljónir farþega á ári fyrir árið 2031. Þetta gerist með því að fleiri flugferðir verða leyfðar snemma á morgnana virka daga vikunnar. Ósk um rýmkun opnunartíma vallarins á laugardögum var hins vegar hafnað.

Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann
Alþjóðlegt eyðsluæði Sádiaraba er sagt byrjað að renna af þeim og setja þeir nú ríkari skilyrði um að fjárfestingar þjóðarsjóðs þeirra skili sér heima fyrir. Sjóðurinn hefur veitt milljörðum og milljarða ofan víða um heim á undanförnum árum.

Susan Wojcicki er látin
Hin bandaríska Susan Wojcicki lést í gær, föstudag, 56 ára að aldri eftir tveggja ára baráttu við lungnakrabbamein. Eiginmaður hennar Dennis Troper greinir frá andlátinu á samfélagsmiðlum.

Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka
Fullyrðingar Donalds Trump um að Bandaríkjaforseti ætti að hafa áhrif á ákvarðanir Seðlabanka Bandaríkjanna hafa vakið áhyggjur af sjálfstæði bankans komist Trump aftur til valda. Trump telur sig hafa meira vit á peningum en stjórnendur bankans.

Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun
Nikkei-hlutabréfavísitalan japanska skaust upp um rúm tíu stig í dag, aðeins sólarhring eftir mesta hrun hennar í hátt í fjóra áratugi sem skók vestræna hlutabréfamarkaði. Aðrir asískir markaðir tóku einnig við sér eftir minni lækkun.

Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli
Google braut margvísleg samkeppnislög sem girða fyrir einokun á markaði og misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Þetta er niðurstaða dómara í Washington í máli sem samkeppnisyfirvöld í Bandaríkjunum höfðuðu gegn Google.

Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra
Hlutabréfaverð á mörkuðum í Bandaríkjunum féll umtalsvert í dag, í kjölfar mikillar lækkunar í Asíu og Evrópu. Lækkunin í Asíu og Evrópu kom til vegna áhyggna af bandaríska efnahagnum.

Stærstu fyrirtækin orðið af 747 milljörðum
Ein umfangsmesta kerfisbilun sögunnar er talin hafa kostað Fortune 500 fyrirtæki minnst 5,4 milljarða bandaríkjadali, eða um 747 milljarða íslenskra króna. Þetta er mat bandarísks vátryggingafélags.

Taylor Swift talin valda verðbólgu í Bretlandi
Verðbólga í Bretlandi mældist 2 prósent á ársgrundvelli í júní, og var örlítið meiri en búist var við. Gífurlegar verðhækkanir á hótelgistingu voru helsta orsökin, en mikil tengsl virðast hafa verið milli þeirra og tónleikaferðalags Taylor Swift um landið.

Flytur fyrirtækin vegna löggjafar um trans börn
Auðjöfurinn og athafnamaðurinn Elon Musk hefur ákveðið að flytja höfuðstöðvar samskiptamiðilsins X og geimferðafyrirtækisins SpaceX frá Kaliforníu til Texas.

Boeing samþykkir að játa sök og greiða 34 milljarða sekt
Stjórnendur Boeing hafa samþykkt að játa sök og greiða 243 milljónir dala, jafnvirði tæpra 34 milljarða króna, í sekt vegna brota fyrirtækisins á samkomulagi við yfirvöld.

Kjarnorkubréf Einsteins til sölu
Bréf sem Albert Einstein skrifaði til Franklíns D. Roosevelt Bandaríkjaforseta árið 1939 verður falt á uppboði. Í bréfinu hvatti Einstein forsetann til að hefja þróun á kjarnorkusprengjum þar sem að Þýskaland nasismans væri farið að gera það.

Nvidia verðmætasta skráða fyrirtæki heims
Nvidia hefur tekið fram úr Microsoft og Apple og er nú verðmætasta skráða fyrirtæki heims. Eftirspurn eftir örflögum fyrirtækisins hefur stóraukist síðustu ár, meðal annars vegna örra tækniframfara á sviði gervigreindar.

Ekki lengur hægt að sjá hvað aðrir „læka“
Samfélagsmiðillinn X, áður Twitter, hefur fjarlægt þann möguleika, sem notendur höfðu áður, að sjá hvað aðrir notendur „læka“, eða kunna að meta, á miðlinum.

Lætur mál gegn OpenAI niður falla
Auðjöfurinn Elon Musk hefur óvænt beðið dómstól í Kaliforníuríki um að draga kæru sína gegn tæknifyrirtækinu OpenAI til baka. Hann sakaði fyrirtækið og Sam Altman, forstjóra þess, um að hafa gengið á bak orða sinna hvað varðar stofnsamning fyrirtækisins.