Menning

Kringlukast í Kringlunni

Nú um helgina eru fjölmargar vörur á lækkuðu verði í verslunum Kringlunnar því þar stendur yfir svokallað Kringlukast fram á þann 20. Er nánast sama hvar borið er niður, alls staðar er eitthvað að hafa á hagstæðara verði en undanfarna daga. Gildir það jafnt um gjafavörur og skart, sumarfatnað og búsáhöld, snyrtivörur og viðlegudót. Því ættu einhverjir að geta gert góð kaup og ekki spillir að komið er nýtt kortatímabil ef menn kjósa að draga greiðsluna á langinn.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×