Menning

Réttur klæðnaður í unglingavinnuna

Fyrir þá svartsýnu (sumir segja raunsæju) er rétt að líta í Húsasmiðjuna fyrir helgina þar sem regnföt eru á tilboði þessa dagana."Regnfatatilboðinu er ekkert sérstaklega beint gegn 17. júní enda eru þessir gallar alls ekki nógu sparilegir fyrir það tilefni," segir Sonja Viðarsdóttir, innkaupastjóri hjá Húsasmiðjunni. "Það verður vonandi sól á þjóðhátíðardaginn." Verðið á þessum regngöllum er afar hagstætt eða 995 krónur. Gallarnir fást í tveimur gerðum, annars vegar grænn jakki og mittisbuxur og hinsvegar appelsínugular smekkbuxur og jakki. Þeir eru til í stærðunum frá medium og upp í extra-extra large og eru sérhannaðir og saumaðir í Asíu fyrir Húsasmiðjuna. "Þessir gallar eru frekar ætlaðir til útivinnu og í útileguna," segir Sonja og bætir við að einnig sé tilboð á vinnustígvélum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×