Kaupfélag ásælist sparisjóð 30. júní 2004 00:01
Valdabarátta hefur staðið í um ráðandi hlut í Sparisjóði Hólahrepps á Sauðarkróki um árabil og nú er svo komið að gömlu stofnfjáreigendurnir eru komnir í minnihluta en Kaupfélag Skagfirðinga ásamt stjórnendum félagsins og dótturfélaga eru með meirihluta sem þó er ekki virkur þar sem þeir eiga aðeins tvo fulltrúa af fimm í stjórn, þá Jón Eðvalds Friðriksson, framkvæmdastjóra Fiskiðjunnar Skagfirðings og Sigurjón Rúnar Rafnsson aðstoðarkaupfélagsstjóra KS. Alls eru yfir 10 stjórnendur kaupfélagsins stofnfjáreigendur auk þess að kaupfélagið sjálft keypti stofnhluti fyrir rúmar 8 milljónir króna en alls er stofnfé sparisjóðsins 22 milljónir króna. Kristján í skotlínunni Eldri stofnfjáreigendur telja víst að ætlun kaupfélagsmanna sé að ná sparisjóðnum í því skyni að stofna til bankarekstrar fyrir VÍS og önnur fyrirtæki sem kennd eru við gamla Sambandið. Upp úr sauð í seinustu viku þegar meirihluti stjórnar ákvað að losa sig við Kristján Hjelm sparisjóðsstjóra. Kristján hefur barist harkalega gegn kaupfélagsvaldinu og viljað forða sparisjóði sínum frá því að falla í hendur Þórólfs og hans manna. Þetta varð til þess að honum var gefinn kostur á að hætta í góðu eða verða úthýst annars. Þetta varð til þess að tveir af fimm stjórnarmönnum Sparisjóðsins, Sverrir Magnússon varaformaður og Valgeir Bjarnason sendu frá sér harðorða yfirlýsingu í gær: "Við undirritaðir stjórnarmenn í Sparisjóð Hólahrepps þökkum Kristjáni Hjelm, sparisjóðsstjóra fyrir trúmennsku og vel unnin störf í þágu Sparisjóðsins. Jafnframt hörmum við að hann hafi neyðst til að víkja úr starfi af óviðráðanlegum ástæðum. Kristján hefur reynst frábær starfsmaður og við hefðum gjarnan viljað njóta starfskrafta hans áfram. Við óskum honum og konu hans velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi". Sverrir og Valgeir eru fulltrúar gömlu stofnfjáreigendanna. Sverrir varaformaður segist ekki vilja tjá sig frekar um starfslok Kristjáns sparisjóðsstjóra og segir það vera hlutverk Magnúsar að útskýra þau. "Magnús Brandsson á að svara fyrir þessi mál. Sparisjóðurinn hefur vaxið mikið undir forystu Kristjáns Hjelm. Hann hefur verið mjög vinsæll á meðal fólksins," segir Sverrir. Oddamaður í stjórn Sparisjóðsins og formaður er Magnús Brandsson, sparisjóðsstjóri á Ólafsfirði, sem settur var inn í stjórnina á sínum tíma af Sambandi sparisjóða til að vera á milli stríðandi afla kaupfélagsmanna og eldri stofnfesta. Magnús hafði um það forgöngu að knýja Kristján til þess að hætta störfum en segir það ekki tengjast stríðandi fylkingum innan sparisjóðsins. 100 ára banki Upphaf sparisjóðs Hólahrepps má rekja allt aftur til þess að Hlöðubyggingarsjóður var stofnaður í Skagafirði árið 1900. Sjóðnum var breytt í sparisjóð árið 1905 og hefur starfað allar götur síðan. Grunur gömlu stofnfjárfestanna er sá að kaupfélagsmenn ætli að sölsa sparisjóðinn undir VÍS. Einn viðmælenda DV orðaði það sem svo að þetta yrði "rán aldarinnar" því bankaleyfi kosti hátt í 500 milljónir króna en Kaupfélag Skagfirðinga hefði aðeins lagt í kaupin á stofnfjárhlutum rúmar 8 milljónir króna sem þýddi þá að þeir myndu hagnast 50 falt á yfirtöku. Þeir sem vilja verja sparisjóðinn segja að kaupfélagsmennirnir bíði þess aðeins að ná fram kosningum til að knýja fram nýjan meirihluta. Síðan muni sparisjóðurinn falla í gin VÍS.rt@dv.is
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Þessir þrír drepa alla góða fundi Atvinnulíf „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Fólk geti nýtt séreignarsparnaðinn seinna á árinu Neytendur Fleiri fréttir Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Sjá meira