Menning

Má reyna að prútta

Útsala stendur yfir hjá versluninni Svefn og heilsa í Listhúsinu í Laugardal og Dalsbraut á Akureyri allt fram til 15. þessa mánaðar. Þar eru rafmagnsrúm á verksmiðjutilboði meðan birgðir endast og nemur lækkunin allt að 35% miðað við staðgreiðslu. Chiropractic classic millistífar heilsudýnur eru á lækkuðu verði í tilefni 12 ára afmælis vörumerkisins á Íslandi. Þá eru útlitsgallaðar dýnur á allt að 50% afslætti og hið sama gildir um dýnur sem fólk hefur fengið heim til prófunar en skipt út innan 30 daga. Einnig er rýmingarsala á eldri rúmum, völdum húsgögnum og teppasettum og aðspurður segir Matthías Ásgeirsson afgreiðslumaður að afsláttur geti numið allt að 60%. En ætli þýði eitthvað að prútta? "Já, já, það má reyna það," svarar hann glaðlega.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×