Í svörtum fötum 19. júlí 2004 00:01 Fólk hefur verið að áreita mig töluvert í sumarblíðunni fyrir það hvernig ég klæði mig en ég geng alltaf og eingöngu í svörtum fötum frá toppi til táar hvernig sem viðrar. Þessar sjálfskipuðu tískulöggur hafa flestar fallist á þau rök mín, með semingi þó, að ég klæði mig í samræmi við andlega líðan mína og lífsviðhorf almennt og því sé svart eini kosturinn þar sem ég sjái aldrei til sólar.Þetta er auðvitað bölvuð lygi og fyrirsláttur þar sem ég hef ekki yfir neinu að kvarta á meðan ég ét prósakkið mitt reglulega. Svörtu fötin hafa því ekkert með geðheilsu mína að gera en þau eru þó fyrir löngu orðin lífsstíll sem ég hef ekki einu sinni getað brotið upp þó einhver lummuleg íslensk hljómsveit hafi tekið mikinn sjarma af klæðaburði mínum með því að kenna sig við svört föt.Ástæðan fyrir því að ég festist í svörtu fötunum er nefnilega fyrst og fremst hégómleg og ber viðleitni minni til þess að vera óháður óþolandi dyntum tískunnar kolsvart vitni. Svart fer nefnilega aldrei úr tísku og á alltaf við. Tíminn hefur ekki sigrast á svörtu og mun ekki gera það. Ég brest iðulega í grát þegar ég sé ljósmyndir af mér sem barn en þá var þetta hippadót ekki alveg útdautt og því eru allir eins og fífl, börn og fullorðnir. Svörtu fötin mín eru því lærdómur dreginn af litskrúðugri og ljótri fortíð og ég veit að ég get alltaf borið hausinn hátt þegar ég sé myndir af mér fullorðnum eftir 20-30. Þær gætu hafa verið teknar í gær - vegna þess að ég er í svörtu.Talandi um hippa þá er auðvitað helsta framlag þeirra til framara í heiminum að ryðja ljótum en þægilegum fötum braut og festa joggingallann í sessi sem er í sjálfu sér glæpur gegn mannkyninuBlómabörnin ætluðu að bæta heiminn en visnuðu hratt og skilja ekkert eftir sig nema hroðalegan fatastíl og kynslóð ungs fólk sem skilur ekki gömlu hugsjónirnar og nauðgar þeim nú í borgaralegum söngleik leikstýrðum af ungum sjálfstæðismanni. Ha, ha, gott á hippana. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Stuð milli stríða Mest lesið Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun Glerbrotin í ryksugupokanum Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Túrverkir og hitakóf – má ræða það í vinnunni? Já endilega! Katrín Björg Ríkarðsdóttir Skoðun Draghi-skýrslan og veikleikar Íslands Pawel Bartoszek Skoðun Nokkur orð um sérlausn í flugi Birna Sigrún Hallsdóttir,Hrafnhildur Bragadóttir Skoðun Kína mun ekki bjarga Vesturlöndum að þessu sinni Sæþór Randalsson Skoðun Stóriðjutíminn á Íslandi er að renna sitt skeið Guðmundur Franklin Jónsson Skoðun Átta mýtur klesstar inn í raunveruleikann - hvað er satt og hvað er logið um gervigreindina? Sigvaldi Einarsson Skoðun Geta öll dýrin í skóginum verið vinir? Steinar Bragi Sigurjónsson Skoðun Iðjuþjálfun í verki Þóra Leósdóttir Skoðun
Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun
Átta mýtur klesstar inn í raunveruleikann - hvað er satt og hvað er logið um gervigreindina? Sigvaldi Einarsson Skoðun
Er þetta virkilega svarið frá Þjóðkirkjunni? – þegar barn þarf að flýja úr helgidóm Hilmar Kristinsson Skoðun
Átta mýtur klesstar inn í raunveruleikann - hvað er satt og hvað er logið um gervigreindina? Sigvaldi Einarsson Skoðun