Viðskipti innlent

Varar við óðagoti í sölu Símans

Félag ungra framsóknarmanna í Reykjavíkurkjördæmi suður sendi frá sér ályktun í dag þar sem það varar við óðagoti við sölu Landssímans. Þá sé algert lykilatriði ef hann verður seldur að eignaraðild verði dreifð þannig að fólkið í landinu geti átt hlut í fyrirtækinu. Enda verði að hafa í huga það skilyrði sem sett var fyrir sölunni í ríkisstjórnarsáttmála Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að þjónusta við almenning verði ekki skert.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×