Kerry þarf að herða róðurinn II 3. október 2004 00:01 Sjónvarpskappræður forsetaframbjóðendanna í Bandaríkjunum, George W. Bush forseta og John Kerry öldungardeildarþingmanns, sem fram fóru á fimmtudagskvöld, virðast litlu eða engu hafa breytt um stöðu þeirra í kosningabaráttunni. Fréttaskýrendur eru flestir sammála um að þeir hafi báðir staðið sig ágætlega og hvorugum tekist að slá hinn út af laginu. Könnun meðal kjósenda sem gerð var að kappræðunum loknum sýndi að mun fleiri töldu Kerry hafa komið betur frá kappræðunum en Bush forseta, en kannanir sem birtar voru í gær benda ekki til þess að það sé að skila sér í auknu fylgi þingmannsins meðal óákveðinna kjósenda. Líklega er sá tími löngu liðinn að einvígi af þessu tagi geti valdið hvörfum í kosningabaráttu; stjórnmálamenn eru einfaldlega orðnir svo þaulvanir sjónvarpsframkomu og hafa svo góð tök á viðeigandi tækni að það þarf meira en lítið að bera út af til að þeim verði á í messunni. Sterkasti punktur Bush forseta í umræðunum var að benda á ósamkvæmni Kerrys og ístöðuleysi í skoðunum. "Hann er eingöngu sjálfum sér samkvæmur í ósamkvæmninni," sagði forsetinn hnyttilega. Ef vinna ætti stríðið gegn hryðjuverkunum yrði að sýna staðfestu. Kerry féllst á að hann hefði komist óheppilega að orði um fjárveitingar til stríðsrekstrarins í Írak en hitti í mark þegar hann spurði á móti: "Forsetinn gerði sjálfur mistök með því að ráðast inn í Írak. Hvor mistökin eru verri?" Flestir sem sagt hafa álit sitt á kappræðunum leggja áherslu á að þær hafi verið málefnalegar. Óhróðurinn sem einkennt hefur kosningabaráttuna að undanförnu með áherslum á svik Kerrys í Víetnam og undanbrögð Bush frá herþjónustu var víðs fjarri. Forsetinn var sem fyrr sannfærður um réttmæti þeirrar stefnu sem hann hefur fylgt. Kvað hann heiminn betri án Saddams Hussein og fullyrti jafnframt að þróunin í Írak væri í rétta átt, til friðar, stöðugleika og lýðræðis. Það má Bush eiga að hann talar um þessi mál eins og hann trúi því sjálfur sem hann er að segja. Það hefur áhrif á óákveðna kjósendur sem freistast til þess að setja jafnaðarmerki á milli sannfæringarkrafts forsetans og veruleikans. John Kerry benti hins vegar réttilega á að stríðið gegn hryðjuverkunum og innrásin í Írak væru tvö aðskilin mál en ekki eitt eins og forsetinn leggur allt kapp á að sannfæra menn um. Hann hélt því fram að stærstu mistök forsetans væru að hafa enga áætlun haft um það í upphafi innrásarinnar hvernig hann ætlaði að "vinna friðinn". Atburðarásina í Írak að undanförnu taldi hann ekki benda til þess að tími friðar og stöðugleika væri framundan. Vandi Kerrys er sá að hans eigin hugmyndir um uppbygginguna í Írak eru ekki nægilega skýrar. Kerry leggur áherslu á þátt heimamanna og samstarf við Sameinuðu þjóðirnar og Atlantshafsbandalagið en allt eru þetta atriði sem Bush forseti hefur þegar tekið upp og reynt að vinna eftir. Á endanum snúast bandarísku forsetakosningarnar líklega um traust á frambjóðendunum. Skoðanakannanir utan Bandaríkjanna sýna að í því efni nýtur Kerry yfirburðastuðnings. En það eru Bandaríkjamenn einir sem ganga að kjörborðinu og skoðanakannanir meðal þeirra benda enn til þess að Bush verði endurkjörinn í kosningunum í byrjun nóvember. Sannfæringarkraftur hans virðist orka sterkar á kjósendur heima við en málefnaleg gagnrýni Kerrys. Greinilegt er að John Kerry þarf að herða róðurinn mjög ætli hann að eiga nokkurn möguleika á að bera sigurorð af forsetanum í kosningunum eftir rúman mánuð. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Guðmundur Magnússon Mest lesið Hörmulegur atburður í flugstöð Leifs Eiríkssonar Jón Pétursson Skoðun Forstjórinn stígur fram Örn Pálsson Skoðun Lífsgæði íbúa Mosfellsbæjar skert Regína Ásvaldsdóttir Skoðun Börnin á Gaza eru ekki í fríi Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir Skoðun Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun Tilvera okkar er undarlegt ferðalag Hópur meðlima No Borders Skoðun Brimrót og veðragnýr í alþjóðamálum Árni Þór Sigurðsson Skoðun Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út? Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Mannréttindi fatlaðs fólks - orð og efndir Unnur Helga Óttarsdóttir,Alma Ýr Ingólfsdóttir Skoðun Hinn óseðjandi Eiríkur Ólafsson Skoðun
Börnin á Gaza eru ekki í fríi Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir Skoðun
Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun
Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út? Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun
Börnin á Gaza eru ekki í fríi Bjarni Fritzson,Blær Guðmundsdóttir ,Elías Rúni Þorsteinsson,Elísabet Thoroddsen,Gunnar Helgason,Linda Ólafsdóttir,Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir,Yrsa Þöll Gylfadóttir Skoðun
Uppbygging í Grafarvogi eflir hverfið og mætir húsnæðiskrísunni á skynsaman hátt Dóra Björt Guðjónsdóttir Skoðun
Lestur lykillinn að endurhæfingu? Hvað ef lestur væri lykillinn út? Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun