Hársýning Sebastians 21. október 2004 00:01
Annað þemað í línunni er töffarinn James Bond. Heiti línunnar, License to Thrill, er vísun í Bond-kvikmyndina License to Kill. Línurnar í klippingum í haust eru mjúkar og þverar en sérstaða þeirra er að hver hárgreiðslumeistari getur formað klippinguna að andlitslagi hvers og eins og þannig gert klippinguna persónulegri. Samkvæmt Sebastian verða litirnir í ár frekar massífir, heilir og djúpir. Safarígrænn og fjólublár eru aðallitir í Trucco-förðunarlínu Sebastians sem heitir Seven. Sýning þessi var lokahnykkur á tvöföldu afmæli sem heildsalan Halldór Jónsson ehf. stóð fyrir. Í fyrra var haldið upp á þrjátíu ára afmæli Sebastians um allan heim og í ár upp á tuttugu ára afmæli Sebastians hér á landi. Aðalþema í haustlínu hárvöruframleiðandans Sebastians er sjötta skilningarvitið. Innblástur hennar er myndir ljósmyndarans Helmut Newton en sérstaða hans var að hann nýtti sér sjötta skilningarvitið til að gera sínar ljósmyndir öðruvísi en aðrar. Hárlínan var kynnt í Borgarleikhúsinu í septemberlok og sáu Diane Barbera og Marcy Landgraf frá Sebastian um hárgreiðslurnar.Hér sjást fyrirsæturnar tilbúnar eftir hárgreiðslu hjá fagmönnum Sebastian.Hérna sýna fyrirsætur Trucco-förðunarlínuna sem byggist á framtíðarsýn. Á þessari mynd eru þær að ímynda sér hvernig er að kyssa einhvern sem er kannski ekki til.
Mest lesið „Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“ Lífið Fyrsta jarðarförin í Flatey í 69 ár varð undursamlegt ævintýri Lífið Krakkatía vikunnar: Kirkjur, Gljúfrasteinn og nornahár Lífið Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana Tónlist „Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“ Lífið Guðmundur og Erna eru gift Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Mörg þúsund „glataðir ljósmyndarar“ sóttu um Lífið Fögnuðu nýrri líkamsræktarstöð í Grímsbæ Lífið Fréttatía vikunnar: Sjúkrabíll, guðshús og koss dauðans Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Sjóðheit tískusýning í Hörpu Innsýn í heim fatahönnuða framtíðarinnar Týndi strax 120 þúsund króna sokkum Varð að vera flottastur í eigin teiti „Ég vil ekki líkjast öllum öðrum“ Gabbana stígur til hliðar hjá Dolce & Gabbana Euphoria stjörnurnar gáfu ekkert eftir Kröfuharður og með öll smáatriði á lás Sjá meira