Hægði á hækkun eignaverðs 13. október 2005 15:10
Heldur hægði á hækkun eignaverðs í október samkvæmt hálffimmfréttum KB banka. Tólf mánaða hækkun eignaverðsvísitölu bankans fer úr 25,5% niður í 20,5%. Ástæða þess liggur í að eignaverðsvísitalan lækkaði um 2,2% að raunvirði í október að sögn bankans. Hlutabréfaverð lækkaði um 11,5% í október. Svo mikil lækkun hefur veruleg áhrif á vísitöluna en hlutabréf vega um 20% í vísitölunni. Einnig var gengi skuldabréfa fremur dapurt í október og hækkaði ávöxtunarkrafa skuldabréfa lítillega eða var óbreytt í mánuðinum. Þannig var það einungis fasteignamarkaðurinn sem hækkaði að raunvirði en fasteignaverð hækkaði um tæpt 1% og náði sú hækkun ekki að yfirvinna mikla lækkun á hlutabréfamarkaði. Líklegt er að heldur sé að draga úr á hækkun eignamarkaða en tólf mánaða hækkun eignaverðs hefur verið frá 18% upp í 25% frá miðju sumri 2003. Hækkun eignaverðsvísitölunnar síðastliðið eitt og hálft ár er miklu meiri en hækkun eignaverðs í síðustu efnahagsuppsveiflu. Mest náði eignaverðshækkunin 15% hækkun á tímabilinu frá áramótum 1999 fram til byrjun árs 2000. Ljóst er að jafn langvarandi og mikil hækkun eignaverðs hefur töluverð áhrif á einkaneyslu í gegnum auðsáhrif samkvæmt KB banka, bæði vegna söluhagnaðar á eignum, hærri eiginfjárstöðu og aukins veðrýmis eigna.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Það verða fjöldagjaldþrot“ Viðskipti innlent „Klárum þetta með góðu partíi heima hjá mér í kvöld“ Atvinnulíf Byrjaði 18 ára í þjónustuverinu og hættir nú sem framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Þrjú kvár stýra fyrirtækjum Viðskipti innlent Telur neytendur hafa unnið pyrrosarsigur í vaxtamálinu Viðskipti innlent Veitingamenn uggandi yfir erfiðum rekstrarskilyrðum Viðskipti innlent Tengiltvinnari fyrir taugatrekkta Samstarf Meirihluti vill afnema áminningarskyldu Viðskipti innlent „Fer út í daginn uppfull af hundaknúsi“ Atvinnulíf Hyggjast opna lágvöruverslun og Orkustöð á Blönduósi Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Það verða fjöldagjaldþrot“ Veitingamenn uggandi yfir erfiðum rekstrarskilyrðum Meirihluti vill afnema áminningarskyldu Byrjaði 18 ára í þjónustuverinu og hættir nú sem framkvæmdastjóri Öll lónin full og vatnsbúskapur tók stökkbreytingum Tekjur Isavia jukust um tæpa 1,2 milljarða króna milli ára Þrjú kvár stýra fyrirtækjum Hyggjast opna lágvöruverslun og Orkustöð á Blönduósi Landsbankinn breytir framboði á lánum eftir vaxtadóminn Ljóst að kaupverð á íbúðum í Vesturbugt verði í hærri kantinum „Atvinnulífið er sannarlega að kólna“ Landsbankinn hagnast um tæpa 30 milljarða á níu mánuðum Síminn kaupir Motus og Pei Sjóvá hagnast um 666 milljónir það sem af er ári Húsleit hjá Terra Kampavínsklúbbar, innherjasvik og nú meint skattsvik Telur neytendur hafa unnið pyrrosarsigur í vaxtamálinu Samstöðin tapaði fimmtíu milljónum Bara tala kynnti „Bare si det“ til leiks í Noregi Getur tekið einstæða foreldra allt að átján ár að safna fyrir íbúð Fasteignamarkaðurinn „kaupendamarkaður“ að mati fasteignasala Hagnaður minnkar um 1,5 milljarða milli ára Skynjar kvíða og ótta meðal starfsmanna Gengi Eimskips lækkar vegna bilunarinnar Fleiri hundruð kröfur og líklegt að óeðlilegum greiðslum verði rift Seldu fyrir 634 milljónir og græddu 182 Selja Adalvo og stjórnandi frá Alvotech fylgir Hanna María nýr forstöðumaður hjá ELKO Úrvinnslusjóður svarar Sorpu Eigandi Remax ákærður fyrir markaðsmisnotkun Sjá meira