Viðskipti innlent

Umfangsmestu viðskipti íslenskrar viðskiptasögu

Baugur hefur tryggt sér fjármögnun á kaupum á Big Food Group. Eftir mikla dramatík aðfaranótt laugardags lá ljóst fyrir að búið væri að ganga frá öllum þáttum málsins og tilboð var lagt fram með samþykki stjórnar Big Food Group sem hljóðar upp á 95 pens á hlut.

Bank of Scotland sér um stærstan hluta fjármögnunarinnar og tekur einnig níu prósenta hlut í eignarhaldsfélaginu Giant BidCo sem hyggst kaupa Big Food Group. Heildarumfang fjármögnunar kaupanna er 112 milljarðar króna. Big Food er metið á 40 milljarða og endurfjármögnun skulda er upp á 42 milljarða og fjármögnun rekstrar og birgða hljóðar upp á 30 milljarða. Þetta eru umfangsmestu og flóknustu viðskipti sem íslenskt fyrirtæki hefur staðið fyrir. KB banki, Burðarás og Landsbankinn koma einnig að kaupunum.

Rekstur Iceland verður undir sérstöku eignarhaldsfélagi þar sem Baugur og Pálmi Haraldsson verða stærstu hlutahafar. Pálmi mun gegna stjórnarformennsku hjá Iceland. Í hóp hluthafa Iceland bætist Milestone við, sem er undir forystu Karls Wernerssonar, kjölfestufjárfestis í Íslandsbanka, og hópur undir forystu Malcolms Walker stofnanda Iceland-keðjunnar.

Það vekur athygli hversu stóran eignarhlut Bank of Scotland tekur í eignarhaldsfélaginu. Það er talið til marks um mikla trú bankans á forystu Baugs í þessum kaupum. Kaup Baugs eru stór, jafnvel á breskan mælikvarða og meðal breskra kaupsýslumanna er talið að ef Baugi takist að vinna úr þessari fjárfestingu og skila arðsemi af henni, þá verði þeim allir vegir færir í breskum fjármálaheimi.

Tilboð Giant BidCo verður lagt fyrir hluthafafund Big Food Group í janúar og verði tilboðið samþykkt, eins og flest bendir til, mun Baugur og samstarfsaðilar taka við stjórn fyrirtækisins 11. febrúar.

Með í kaupunum fylgja fasteignir, meðal annars vel staðsettar búðir Iceland þar sem umtalsverð dulin verðmæti eru talin liggja.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×