Menning

Eitthvað gott í öllum bókum

Auður Jónsdóttir.
Auður Jónsdóttir.
Það er þétt setinn bekkurinn á Mokka. Í hverju sæti listamenn. Sumir viðurkenndir. Aðrir ekki. Margir framtíðarinnar. Fleiri nútíðarinnar. Skærasta stjarnan í flórunni, með hnausþykkan café latte í stórum bolla, er nýbakaður verðlaunahafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna á sviði fagurbókmennta; Auður Jónsdóttir. Það er erfitt að komast að henni fyrir hamingjuóskaregni, en buddan og sálin eru ríkari í dag en í gær og hún vill bjóða Þórdísi Lilju Gunnarsdóttur í freyðandi cappuchino.

"Hittu mig á Mokka. Ég skal bjóða þér í kaffi því ég fékk svo mikið af verðlaunapeningum í gær," segir hún nývöknuð, daginn eftir að hún hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir "Fólkið í kjallaranum". Eftir hressandi steypibað situr hún svo svartklædd og fíngerð í reykjarkófinu á Mokka; barnabarn Nóbelskáldins Halldórs Kiljan Laxness. Með djúpar, svarbrúnar perlur í augunum.

"Það væri hræðilegt að nota Laxness-nafnið, enda var það listamannsnafn afa," segir Auður Jónsdóttir; afastelpan sem skrifaði verðlaunabarnabókina Skrýtnastur er maður sjálfur um ævi stórskáldsins. "Það má segja margt gott um afa minn en hann er fyrirferðarmikill og ég alltaf að reyna að losna við hann af öxlunum þegar kemur að skáldskap. Við höfum jú sama starfsheiti en það er allt og sumt. Eigum ekkert sameiginlegt nema það sem allir rithöfundar eiga; að kljást við mannlegt atferli. Sem persónur erum við líka ólík, en ég á líka föðurfólk sem ég líkist mjög. Ég er þó alin upp við hlið Gljúfrasteins og var mikið hjá ömmu og afa, sem var yndislegur maður."

Það var óneitanlega skemmtileg tilviljun að annar verðlaunahafi Íslensku bókmenntaverðlaunanna var Halldór Guðmundsson fyrir ævisögu Halldórs Laxness. "Þessa fallegu stund fannst mér ég dálítið vera við hlið afa og þótti vænt um þetta, auk þess að vera við hlið Halldórs Guðmundssonar sem var fyrsti útgefandinn minn."

Að gefa og fá til baka

Auður var að gefa frostbitnum fuglum Kaupmannahafnar vítamínbætt fóður þegar hún fékk símtalið um verðlaunin, sem eru auk heiðursins peningaverðlaun upp á 750 þúsund krónur.

"Já, þetta kom á óvart, án þess að ég vilji hljóma eins og fegurðardrottning. En fuglarnir voru búnir að vera mjög gráðugir og mér fannst þetta gott karma; að gefa og fá til baka," segir hún hlæjandi; viss um ráðstöfun verðlaunafjárins.

"Þetta fer í visa-reikninginn; jólainnkaupin. Ég var að spá í að þakka þjónustufulltrúanum fyrir ótakmarkað umburðarlyndi í þakkaræðunni en fannst svo ekki viðeigandi að markaðssetja bankann við þetta tækifæri," segir Auður einlæg og kát.

Hún segist ekki vita af hverju "Fólkið í kjallaranum" vann, en tvisvar áður hefur Auður verið tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna; fyrst fyrir skáldsöguna "Stjórnlausa lukku" og seinna fyrir barnabókina "Skrýtnastur er maður sjálfur".

"Það er erfitt að segja með bækur. Maður skrifar og svo getur farið á alla kanta, en í sumum bókum liggur galdur sem nær til fólks."

Farvegur tilfinninga

Auður var barnung þegar hún hóf að skrifa fyrir skúffuna.

"Í upphafi var strembið að byrja skrifin því ég þurfti að verja mig og sýna fram á að það væri ekki gert af tilgerð eða vegna þess að ég væri svo upp með mér af afa. Ég fékk ung þessa dillu, en lítið mark var tekið á mér; fjörugum og óráðnum unglingnum. Skriftir voru eina stóra áhugamálið mitt; nokkuð sem mér leið vel með að gera. Sem barn skrifaði ég um stelpuna Filipínu og ljóð um hundinn sem dó þegar ég var ellefu ára; heilmikinn kvæðabálk. Fyrsta erindið var svona:

Nú ertu farinn, Sámur minn,

syrgi þig sáran, lubbalingur minn.

Okkur lékum saman um móa og grund,

það var nú mikil gleði um stund.

Þarna fann ég tilfinningum farveg og þannig laðast menn gjarnan að skáldskap. En maður skrifar ekki til að fá verðlaun, þótt það geri mann glaðan að verkið nái til fólks."

Glöð þegar fólk grætur

"Fólkið í kjallaranum" átti sér margra ára gerjun í kolli Auðar og hún segir skrif bókarinnar hafa breytt sér á lúmskan en góðan hátt.

"Ég er hreinlega afslappaðri. Náði að skrifa mig frá íþyngjandi vangaveltum. Sagan er um vanmátt nútímakonu sem lifir í því hversdagslega neysluumhverfi sem við hrærumst í og er að krebera á því; þjáist af vanmætti og hræðslu. Kannski langaði mig að vekja fólk til umhugsunar. Ég heyrði af konu sem leið virkilega illa eftir lesturinn og ég var ánægð með það. Mér er sama hvort fólki líði vel eða illa, þykir bara vænt um að það sýni einhver viðbrögð. Þá gleður mig þegar fólk grætur yfir bókunum mínum, en geri enga kröfu um að fólk stokki upp líf sitt eða endurmeti hlutina upp á nýtt. Það er til of mikils ætlast."

Frelsi hvítu arkarinnar

Það skemmtilegasta sem Auður gerir er að skrifa.

"Skrifunum fylgir frelsi; þessi hvíta örk sem maður getur gert hvað sem er við. Ég vann áður sem blaðamaður og fannst frábærlega gaman. Stundum hefur verið sagt að blaðamennska fari illa með skáldgáfuna en mér finnst útrýma þeirri kenningu að Gabriel Garcia Lorca var blaðamaður. Blaðamennskan kenndi mér að vinna hnitmiðað og í afköstum; ramminn er þröngur, sem og tíminn og hraðinn, auk þess sem maður verður víðsýnni en ella. Þetta var góður skóli sem gaf mér sjálfsaga og sjálfsöryggi."

Hún segir undarlegt hve fáar ungar konur taki af skarið og skrifi skáldsögur.

"Konur eru helmingur mannkyns og eiga jafnt erindi á við karla. Rödd þeirra verður að hafa sama vægi. Hræðsla við gagnrýni er svo eldskírn sem allir rithöfundar lenda í, en maður verður að hafa kjark til að taka vondum dómum á sama hátt og verðlaunum. Ég hef fengið svo vonda gagnrýni að vera í uppnámi vikum saman, en er fegin í dag og ekki lengur hrædd því misjafn er smekkur manna og þannig á það að vera. Þannig er ég sjálf."

Olía fyrir heilann

Auður er næturhrafn. Skrifar mest um nætur. Nema þegar hún les yfir sköpunarverk sitt í lokafrágangi þess. Og hún skrifar heima.

"Ég hef alltaf búið þröngt og orðin vön að hafa páfagauka, manninn minn og dóttur hans yfir mér; með fullt af húsgögnum og drasli í kringum mig. Leigði skrifstofu í sumar en var orðin svo vön hinu að mér fannst það betra. Líka vegna þess að ég hef unnið sem blaðamaður í þröngu rými fullu af fólki. Ég get ekki skrifað nema með tónlist í eyrum, en tónlist er eins og olía á heilann. Þegar ég skrifaði fyrstu bókina í uppsveitum Svíþjóðar, ein með skóginum og vatninu, fékk ég mér stundum kaffi og Baileys til að örva skáldagyðjuna, en núna er það bara músíkin."

Hún segist rólegheitamanneskja og stundum afar löt. Býst við að lífsreynslan sé besta veganestið til að skrifa.

"Maður þarf örugglega að vera óhræddur við að vera til og þannig hef ég alltaf verið. Oft átt erfitt með að hemja mig. Flosnaði ung úr skóla og var óviðráðanleg; full af hormónum. Ég er rétt þrítug en tvígift og hef alltaf gert það sem mig langar að gera. Hvatvísin er stundum fullmikið ráðandi," segir hún og skellir upp úr. "En rithöfundar eru eins og rauðvín. Verða betri með hærri aldri og meiri lífsreynslu."

Laxness ekki fyrir börn

Henni finnst líklegt að Nóbelskáldið hefði verið ánægður með verðlaun afabarnsins, en segir mestu hvatninguna koma frá eiginmanninum og myndskreytinum Þórarni Leifssyni, sem og sálufélaganum Guðrúnu Evu Mínervudóttur, rithöfundi.

"Svo getur vel verið að afi hefði orðið hundfúll út í mínar bækur og tekið mig á beinið, því hann skóf ekki utan af hlutunum. Hann var góður afi, en óvæginn í skoðunum, eins og fólk á að vera. Var á þeirri skoðun að hættulegast íslenskum skáldskap væri öll þessi vinatengsl og vinahygl."

Auður hefur lesið bróðurpartinn af skáldverkum afa síns og segist hafa verið bókaormur frá barnsaldri. "Ég var með líkamlega verki því ég hreyfði mig ekki nógu mikið heldur las og las og át kökur. Var þá send í djassballett til að koma blóðinu á hreyfingu. En afi var lítt hrifinn af því að ég læsi bækurnar hans sem barn og eitt sinn er ég veifaði montin Íslandsklukkunni framan í hann varð hann bálvondur og spurði hvað barnið væri að gera með þetta! Vildi ekki að börn læsu fullorðinsbækur fyrr en þau skildu þær, sem var auðvitað rétt hjá honum."

Rithöfundur, en ekki skáld

Kaffibollinn góði á Mokka er tæmdur. Tími til kominn að kveðja.

"Ritstörfin eru einmanaleg þegar maður er að koma sér í gang, en um leið og tónlistin er komin í eyrun finnst mér vinnan vera besti vinur minn. Svo finnst mér gaman að hjóla, lesa bækur og horfa á bíómyndir. Einnig að vera úti og gefa fuglunum. Vera með ástinni minni; en frá því við kynntumst fyrir fimm árum höfum við verið saman upp á dag. Það er ómetanlegt að búa með listamanni enda Þórarinn harðsvíraður yfirlesari og uppbyggjandi í gagnrýni sinni. Og nú er ég að leggja drögin að nýrri bók, þótt ég sé enn hálfvönkuð eftir þá síðustu. Mér finnst ekki raunhæft að koma með eina bók á ári og hvort hún verður góð eða slæm verður að koma í ljós. Það er eitthvað gott í öllum bókum. Mér hefur þótt skrýtið að kalla mig rithöfund, en því lengur sem maður vinnur við þetta verður það afslappaðra. Svo lengi sem ég þarf ekki að kalla mig skáld, því það er svo þungt að bera," segir Auður brosandi og borgar fyrir kaffið. Með verðlaunafénu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×