Reynt að skýra verkaskiptingu 15. febrúar 2005 00:01
Gerð er tilraun til að draga úr óvissu um verkaskiptingu í eftirliti með verðbréfamarkaði með sameiginlegri yfirlýsingu Fjármálaeftirlitsins og Kauphallar Íslands. Yfirlýsingunni er ætlað að skýra betur verkaskiptinguna á milli þessarra tveggja stofnana og auka skilvirkni. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að von stofnananna sé sú að félög á markaði og fjölmiðlar skynji betur það samstarf sem eigi sér stað á milli Kauphallarinnar og Fjármálaeftirlitsins og minni óvissa ríki um þá verkaskiptingu sem sé á milli stofnananna. Samstarfið hafi mótast á liðnum árum og sé að mörgu leyti mjög gott eins langt eins og það nái samkvæmt gildandi lögum. Verið sé að reyna að auka gegnsæi en jafnframt sé beðið eftir lagabreytingu sem geri störf stofnananna enn skýrari. Líkur eru á að nýtt frumvarp um verðbréfaviðskipti verði að lögum, en þar er m.a. kveðið á um aukið gegnsæi í störfum Fjármálaeftirlitsins og Kauphallarinnar. Spurður hvort nógu langt sé gengið í frumvarpinu segir Páll þetta sé skynsamlegt fyrsta skref en síðan megi velta fyrir sér hvort bæta megi við það, t.d. í auknu gegnsæi í því hvernig Fjármálaeftirlitið geti sagt frá niðurstöðum í athugunum á því hvernig stórir eigendur í bönkunum og vátryggingarfélögunum starfa.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira