Í alfaraleið 16. mars 2005 00:01 Sú tíð er liðin að Reykvíkingar þyrpist niður að höfn þegar skip birtast til að spyrja "Lever Kongen?" eða eitthvað í þá veru eins og alsiða var á nítjándu öld og fyrr þegar vorskip og haustskip erlendra kaupmanna voru helsti tengiliður landsmanna við umheiminn. Þá voru nýjustu fréttir á Íslandi almælt tíðindi í nágrannalöndunum mörgum mánuðum fyrr. Samtímaviðburðir fara ekki lengur framhjá þjóðinni, þökk sé fjölmiðlum og fjarskiptum, þótt vissulega komi þeir dagar að einhverjir hljóta að spyrja sig hvers virði allar þessar fréttir, sem því miður eru æði margar af hörmungum og böli, séu fyrir sálarheill og daglegt líf okkar. Kannski biðu menn takmarkað tjón af fásinni og fréttaleysi fyrri alda? En ekki dugar annað en að taka í útrétta hönd nútímans og reyna þá fremur að nýta sér til gagns og gamans möguleikana til aukins þroska, menntunar og víðsýni, sem bjóðast þegar heimurinn skreppur saman, heldur en að dvelja við hitt sem er dapurlegt og niðurdrepandi. Það hafa Íslendingar ekki síst gert á sviði listanna, þar sem hvern viðburðinn öðrum áhugaverðari hefur rekið á fjörur okkar á undanförnum vikum og mánuðum. Hingað koma í röðum fremstu listamenn veraldar, söngvarar, hljóðfæraleikarar, dansarar, skáld og rithöfundar, myndlistarmenn og skemmtikraftar af ýmsu tagi. Þótt fleiri listamenn komi við sögu í stórborgum eins og New York, Lundúnum, París og Róm er fjölbreytnin í menningarlífinu í höfuðborginni okkar á heimsmælikvarða. Það hefur svo aftur gefið íslenskri ferðaþjónustu tækifæri sem forðum hefðu ekki hvarflað að nokkrum manni hér á landi. Hin alþjóðlega gróska í menningunni er ekki bara til orðin vegna byltingar í fjölmiðlun og fjarskiptum. Ekki má gleyma þeim sem ruddu brautina og tengdu Ísland við umheiminn á öldinni sem leið. Með ferðum íslenskra flugfélaga milli Bandaríkjanna og Evrópu sköpuðust möguleikar sem menningarlífið hefur getað notfært sér áratugum saman og í síauknum mæli á undanförnum árum eftir því sem ferðum hefur fjölgað. Kannski voru Ragnar í Smára og Tónlistarfélagið einna fyrst til að kveikja á þeim möguleikum sem millilendingin í Keflavík skapaði til að fá erlenda listamenn til landsins. Aðrir hafa síðan fetað í fótspor þeirra. Drýgstur hefur verið þáttur Listahátíðar í Reykjavík, sem segja má að hafi umskapað listalíf okkar og menningarlegan sjóndeildarhring á örfáum áratugum. Það brautryðjandastarf verður seint fullþakkað. Menningarstraumarnir liggja ekki aðeins til Íslands heldur einnig frá landinu og um heim allan. Við eigum marga frambærilega listamenn, nokkra í alþjóðlegum sérflokki, sem heimsbyggðin hefur áhuga á. Ekki leikur vafi á því að nýjar kynslóðir íslenskra listamanna hafa örvast af kynnum af erlendum listamönnum og listastefnum og heimsóknir og kynning því haft tvöfalt gildi fyrir land og þjóð. Ísland er nú orðið í alfaraleið og það eigum við að notfæra okkur til að bæta menningu og mannlíf í landinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fastir pennar Guðmundur Magnússon Mest lesið Björgum okkur frá þeim sem ætla að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér Þórður Snær Júlíusson Skoðun Kristján Loftsson og stalínistarnir Arngrímur Stefánsson Skoðun Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun Að þýða texta er ekki það sama og að búa til námsefni Bogi Ragnarsson Skoðun Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun Lögreglan auglýsir eftir vilja löggjafans Elías Blöndal Guðjónsson Skoðun Ofveiðin í ESB fyrir 500 árum Sigurjón Þórðarson Skoðun Almyrkvinn 2026 – besta áhorfssvæðið gæti verið heima hjá þér Dagbjartur Kr. Brynjarsson Skoðun Getum við gert betur fyrir íslensk heimili? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Pílagrímaganga fyrir líkama og sál Sr. Arna Grétarsdóttir Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun
Kynslóðaskipti í ferðaþjónustu: Ástríða dugar ekki ein og sér. Díana Mjöll Sveinsdóttir,Sveinn Sigurbjarnarson Skoðun
Lýðræði í skugga sérhagsmuna – sjálfseyðingarbarátta íslensks samfélags Sigurður Sigurðsson Skoðun