Lyfjasala undir væntingum 27. maí 2005 00:01
Sala á lyfjum frá Actavis stóð ekki undir væntingum á fyrsta fjórðungi ársins. Afkoman var jákvæð um rúmar 900 milljónir króna sem er 900 milljónum minna en á sama tíma í fyrra þegar Ramipril-hjartalyfin fóru á markað. Afkoma Actavis var nokkuð undir spám bankanna. KB banki spáði ríflega 1,1 milljarðs króna hagnaði, Íslandsbanki spáði 1,2 milljörðum í hagnað og Landsbankinn spáði því að hagnaður fyrirtækisins næmi 1,4 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungnum. Tekjur Actavis lækkuðu um rúmt 21 prósent á milli ára en þær voru tæpar 130 milljónir evra á sama tímabili í fyrra en námu tæpum 102 milljónum evra fyrstu þrjá mánuði þessa árs. Á fyrsta ársfjórðungi í fyrra var hjartalyfið Ramipril sett á markað sem leiddi til þess að ársfjórðungurinn var sá besti í sögu félagsins. Sala eigin vörumerkja félagsins jókst um rúmlega 15 prósent frá sama tímabili í fyrra. Í tilkynningu til Kauphallar Íslands er haft eftir Róberti Wessman forstjóra að ársfjórðungurinn sé í samræmi við væntingar félagsins. Framtíðarhorfur félagsins séu góðar því fjöldi nýrra lyfja muni fara á markað á árinu. Þá kemur fram að eftir kaup félagsins á lyfjafyrirtækjum upp á síðkastið sé fyrirtækið með 136 lyf í þróun og skráningu sem sé með því mesta sem gerist í heiminum í dag.
Innlent Viðskipti Mest lesið Ný könnun sýnir hvað pirrar umsækjendur og vinnuveitendur mest Atvinnulíf Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Viðskipti innlent Play komið í eignasafn Icelandair Viðskipti innlent Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Viðskipti innlent Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Viðskipti innlent Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Viðskipti innlent Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Viðskipti innlent Klámfengið spjallmenni Zuckerbergs vekur ugg innan klámgeirans Viðskipti erlent Auglýsi sjúkdóma til að komast fram hjá reglum Neytendur Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Svona verða reglur um styrki til rafbílakaupa Rafnar fylgir Herði og segir upp Finnska hugbúnaðarfyrirtækið Finago kaupir Reglu Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar „Ef einhver mistök hafa átt sér stað þá gerum við allt til þess að leiðrétta það“ Malasar í samstarf við GreenFish Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Sjá meira