Menning

Nýtt Íslandshefti Merian

Þýska ferðatímaritið Merian helgar nýjasta hefti sitt, sem kom út nú um mánaðamótin, umfjöllun um Ísland. Þetta er þriðja heftið um Ísland sem Merian gerir á þeirri rúmu hálfu öld sem þetta vandaða mánaðarrit hefur komið út; fyrsta Íslandsheftið kom út árið 1972 og annað árið 1989.

Höfundar efnis í þessu nýjasta Íslandshefti Merian eru bæði þýskir og íslenskir, þar á meðal þýski blaðamaðurinn og Íslandsvinurinn Henryk M. Broder, ljósmyndarinn Sigurgeir Sigurjónsson og rithöfundurinn Hallgrímur Helgason. Í ritinu er einnig grein um íslenskt efnahagslíf eftir Auðun Arnórsson, blaðamann á Fréttablaðinu.

"Hið stórfenglega landslag, síðasta ósnortna víðerni Evrópu, er og verður aðall Íslands - bæði fyrir flesta ferðamenn og fyrir þetta Merian-hefti," skrifar aðalritstjórinn Andreas Hallaschka í inngangsorðum. "Þar við bætist hin lifandi höfuðborg eyríkisins, sem var sofandalegur bær þegar síðasta Íslandshefti kom út árið 1989. Núna virkar Reykjavík sem segull fyrst og fremst á unga borgarferðamenn frá Norður-Ameríku og Evrópu, sem finna hér líflegt tónlistar- og tískulíf. Andstæður, sem gera Ísland enn áhugaverðara, einnig fyrir lesendur [þessa heftis]," skrifar ritstjórinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×