Steinunn seldi Burðarási 8. júní 2005 00:01 "
Okkur buðust þessi bréf í dag og við ákváðum að kaupa þau með stuttum fyrirvara," sagði Friðrik Jóhannsson, forstjóri Burðaráss, í gær eftir að tilkynnt var að félagið hefði keypt rúm fjögur prósent í Íslandsbanka. Seljandi hlutabréfanna var Steinunn Jónsdóttir, stjórnarmaður í bankanum. Söluverðmæti hlutanna er um 7,3 milljarðar króna. Steinunn keypti hlut í Íslandsbanka í júlí á síðasta ári og bætti við sig hlutum í október. Erfitt er að fullyrða um hagnað hennar af sölunni en líklegt er að hann sé á annan milljarð. Eftir að Jón Helgi Guðmundsson í BYKO, faðir Steinunnar, seldi nýlega sinn hlut í bankanum til stjórnenda Íslandsbanka hefur verið hörð barátta um hennar hlut. Tengjast þau átök valdabaráttu innan Íslandsbanka. Ekkert liggur fyrir um hvort knúið verður á um stefnubreytingu í bankanum með boðun hluthafafundar. Ef til átaka kemur er líklegt að Burðarás verði samstíga Straumi, stærsta hluthafa bankans, en Steinunn hefur stutt núverandi stjórnendur bankans. Salan í gær getur því breytt valdahlutföllum í bankanum þótt ekki sé víst að á það reyni á næstunni. Friðrik vildi ekkert segja til um það hvort Burðarás ætlaði að bæta við sig í bankanum. Steinunn vildi ekki tjá sig um þessi viðskipti í gær.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Viðskipti erlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru Sjá meira