Frosti skattakóngur Íslands 29. júlí 2005 00:01
Upplýsingar um álagningu opinberra gjalda detta nú inn úr hverju umdæminu af öðru og er það hin forvitnilegasta lesning. Skattakóngur Reykjavíkur er Frosti Bergsson sem greiðir samtals tæpar 123 milljónir króna. Í öðru sæti er Vilhelm Róbert Wessmann með tæpar 107 milljónir króna, í þriðja sæti Björgólfur Guðmundsson, einnig með tæpar hundrað og sjö milljónir króna, og í fjórða sæti Jón Ásgeir Jóhannesson með rétt tæpar eitt hundrað milljónir króna.REYKJANESUMDÆMI Skattakóngur í Reykjanesumdæmi er Arngrímur Jóhansson, flugstjóri og stofnandi Atlanta, sem greiðir tæplega eitt hundrað og tvær milljónir króna. Næst honum er Nanna Renate Möller í Mosfellsbæ sem greiðir rúmar fjörutíu og sjö milljónir og í þriðja sæti Guðmundur R. Hallgrímsson Reykjanesbæ með rúmlega fjörutíu og eina milljón króna.VESTURLAND Á Vesturlandi greiðir Eiríkur Helgason Snæfellsbæ hæstu gjöldin, tæpar tuttugu og fjórar milljónir króna. Í öðru sæti er Ólafur Ólafsson, Eyja- og Miklaholtshreppi, með tæpar nítján milljónir króna. Í þriðja sæti Kristinn Jónsson Stykkishólmi með fjórtán og hálfa milljón króna.VESTFIRÐIR Skattakóngur Vestfjarða er Finnbogi Jakobsson í Bolungarvík sem greiðir tæplega þrettán milljónir króna. Snorri Sturluson á Suðureyri greiðir tæpar ellefu milljónir króna og í þriðja sæti er Jakob Ólafsson á Ísafirði með rúmlega sex milljónir króna.NORÐURLAND VESTRA Á Norðurlandi vestra greiðir Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki, tæplega níu milljónir króna. Í öðru sæti er Jón Eðvald Friðriksson með tæplega sjö milljónir króna og í þriðja sæti er Ómar Ragnarsson, læknir á Blönduósi. með rúmar sex milljónir króna.NORÐURLAND EYSTRA Það kemur líklega ekki á óvart að Þorsteinn Már Baldvinsson er skattakóngur á Norðurlandi eystra með rúmlega sautján milljónir króna. Númer tvö er Eiríkur S. Jóhannsson á Akureyri með rúmlega sextán milljónir króna og í þriðja sæti er Jóhannes Jónsson Bónusforingi með rúmar fjórtán milljónir króna.AUSTURLAND Á Austurlandi er hæst Kristín Guttormsson í Neskaupstað með tæpar níu milljónir króna. Hannes Sigmarsson á Eskifirði greiðir rúmlega sjö og hálfa milljón og í þriðja sæti er Björn Magnússon í Neskaupstað sem greiðir tæplega sjö og hálfa milljón króna.SUÐURLAND Á Suðurlandi greiðir hæstu gjöldin Guðmundur A. Birginsson Ölfusi tæpar fjörutíu og þrjár milljónir króna. Í öðru sæti er Óskar Magnússon í Rangáarþingi eystra með tæplega tuttugu og sex milljónir króna og í þriðja sæti er Gunnar A. Jóhannsson Rangárþingi ytra sem greiðir tuttugu og tvær milljónir króna.
Skattar Tekjur Mest lesið Trump hækkar tolla á öll lönd Viðskipti erlent Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið Viðskipti innlent Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Atvinnulíf Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Viðskipti innlent Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Samstarf Einn stofnenda ASOS fannst látinn Viðskipti erlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samrunaviðræðum Íslandsbanka og Skaga slitið „Við reiknum með því að bandarísk stjórnvöld séu með plan B“ Engin viðvarandi markaðssetning frá 2023 Bestu íslensku vörumerkin 2025 heiðruð í Hörpu Allt á uppleið á Grundartanga Nova kaupir Ofar Byrja á þremur verslunum og skoða sameinaða verslun á Selfossi Ólafsson gin aftur í eigu Íslendinga Hagnaður af grunnrekstri nam 36 milljörðum Sölvi genginn til liðs við KAPP Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Prófessor slær á áhyggjuraddir 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Hæstiréttur gefur ÁTVR á baukinn Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Skiptastjóri Play þarf að víkja Innkalla brúna rúllutertu Taka Amaroq af markaði í Kanada Ríkið niðurgreiddi losun Icelandair um rúmar 400 milljónir Deilt um kjör Wolt-sendla Síminn tekur upp nýtt nafn og hagnast um 1,6 milljarða Ólafur Björnsson ráðinn fjármálastjóri Inchcape á Íslandi Loka Duck & Rose á sunnudaginn „Vel skipulögð herferð“ gegn ETS-losunarkerfinu Þóra og Eva sameinaðar á ný í Efstaleitinu Sjá meira