Óhefðbundin málsvörn 18. ágúst 2005 00:01 Þáttaskil urðu í Baugsmálinu svokallaða í gær, þegar málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þetta er eitt stærsta mál dómsins að mati dómstjórans. Að nokkru leyti minnir þetta mál dálítið á kaffibaunamálið svokallaða, sem snerist um innkaup Sambandsins á kaffibaunum hingað til lands. Önnur mál sem koma upp í hugann við þingfestingu Baugsmálsins eru Geirfinnsmálið og Hafskipsmálið. Bæði þessi mál bárust inn á Alþingi og heit þjóðfélagsumræða varð um þau. Stóð hún í mánaðavís og er enn í minnum höfð. Gengu margir sárir frá borði eftir þá orrahríð. Fram til þessa hefur ekki verið mikil bein pólitísk umræða um Baugsmálið, en þeir sem mest koma þar við sögu hafa sent fyrrverandi forsætisráðherra hvöss skeyti vegna upphafs málsins. Ákæruvaldið hefur reitt hátt til höggs í Baugsmálinu og að baki er nærri þriggja ára vinna við það. Þetta er langur tími og spurning hvort nægur mannafli og þekking sé til staðar hjá yfirvöldum þegar um svo umfangsmikil mál er að ræða. Í það minnsta virðast flestir sammála um að rannsóknin hafi tekið of langan tíma. Sakborningarnir hafa í þessu máli beitt óhefðbundnum varnaraðferðum og segja má að málsvörnin hafi hafist af fullum krafti utan dómsala fyrir nokkrum vikum, um það leyti sem ákærurnar voru birtar þeim. Þeir sakborningar sem einna mest mæðir á í þessu máli hafa tjáð sig opinberlega í mörgum fjölmiðlum og innlendir og erlendir lögfræðingar hafa komið við sögu við kynningu málsins. Þannig hefur miklu verið til kostað við að upplýsa almenning um málsatvik frá sjónarhóli hinna ákærðu. Það er eins með birtingu ákæranna og hve langan tíma rannsóknin tók, að í nútímaþjóðfélagi er ekki hægt að una við það að líða skuli heilar sex vikur frá því ákærurnar voru birtar sakborningum, þar til þær voru birtar opinberlega. Þetta er mál sem dómskerfi þarf að taka til athugunar. Lengi vel áttu fjölmiðlar von á því að geta birt ákærrnar fljótlega eftir að sakborningar fengu þær, en það var svo ekki fyrr en breskt blað hafði birt frétt um ákærurnar að þær voru birtar í Fréttablaðinu. Þá fyrst gat almenningur í landinu kynnt sér þær og mótrök verjendanna. Sakborningar völdu virðulegt breskt dagblað til að koma þessu á framfæri í Bretlandi og svo Fréttablaðið - stærsta fjölmiðilinn hér á landi. Það er ekki margt sem fjölmiðlar hér hafa getað byggt á varðandi fréttaflutning af ákærunum, og það verður ekki fyrr en vitnaleiðslur og málflutningur hefst að glögg mynd fæst af málinu. Málflutningur á eftir að standa vikum saman og það verður fróðlegt að sjá hverjir verða kallaðir í vitnastúkuna fyrir utan hina ákærðu, sem allir neituðu sök við þingfestinguna í gær. Æskilegt væri að þessu máli lyki sem allra fyrst, en dómsvaldið og verjendur verða líka að fá sinn tíma til leiða það til lykta. Í svona stóru Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Fastir pennar Kári Jónasson Mest lesið Háskólinn á Bifröst – Öflugur og sjálfstæður fjarnámsskóli Sólveig Hallsteinsdóttir Skoðun Það eru fleiri fiskar í sjónum og fleiri sjónarmið í hafstjórn Guðbjörg Ásta Ólafsdóttir Skoðun Skapandi menntun skilar raunverulegum árangri Bryngeir Valdimarsson Skoðun Sex ára sáttmáli Davíð Þorláksson Skoðun Heiðursgestur Viðreisnar vill heimsveldi Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun Styrkjum stöðu leigjenda Kristján Þórður Snæbjarnarson Skoðun
Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun
Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun
Af hverju kynjafræði? Og hvaða greinar hafa fengið svipaðar mótbárur í gegnum tíðina? Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun
Háskólasamfélagið geri skyldu sína strax, stjórnvöld hafa brugðist Auður Magndís Auðardóttir,Elí Hörpu og Önundar,Eyrún Ólöf Sigurðardóttir,Helga Ögmundardóttir,Íris Ellenberger,Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Framtíðarskipulag Keldnalands er ekki útópía – og þaðan af síður dystópía Birkir Ingibjartsson Skoðun