Atorka Group hefur tilgreint til Kauphallarinnar í Lundúnum að félagið eigi nítján prósenta hlut í NWF Group.
Það var fyrst vorið 2004 sem Atorka tilkynnti til Kauphallarinnar um kaup sín í NWF og hefur frá þeim tíma verið að auka hlut sinn jafnt og þétt í breska framleiðslu- og dreifingarfélaginu.
Eignarhlutur Atorku er metinn á 2,2 milljarða króna.