Tekur sér stöðu á hliðarlínunni 29. september 2006 00:01 Jafet Ólafsson tekur sæti í stjórn VBS þegar hann lýkur störfum þann 1. nóvember næst komandi. MYND/GVA
Jafet S. Ólafsson, stofnandi og framkvæmdastjóri VBS fjárfestingarbanka, hefur selt 24 prósent hlutafjár í VBS til Fjárfestingarfélags sparisjóðanna (FSP) sem er í eigu tuttugu sparisjóða. Jafet, sem heldur eftir smáhlut, ætlar að halda utan um stjórnartaumana fram til fyrsta nóvember en sest þá í stjórn fyrirtækisins. Maður er að fara á hliðarlínuna eins og það kallast í boltanum. Ég verð ekki lengur í sókninni. Ekki hefur verið gengið frá ráðningu eftirmanns hans en stefnt er að því að ráða Jón Þórisson, sem fer fyrir fyrirtækjasviði VBS, til starfa. Jafet segir að VBS hafi vaxið um fimmtíu prósent árlega frá því að Verðbréfastofan var stofnuð fyrir áratug. Við byrjuðum með þrjá starfsmenn og erum 24 í dag. Fyrirtækið hagnaðist um fjögur hundruð milljónir króna í fyrra. Hann býst ekki við stórvægilegum breytingum en telur að FSP, með sína sterku bakhjarla, gefi VBS færi á frekari landvinningum. Eftir kaupin verður FSP leiðandi hluthafi í VBS með 37 prósenta hlut en samanlagt eiga sparisjóðir tæpan helmingshlut í bankanum þar sem SPM og Sparisjóðurinn í Vestmannaeyjum eiga beinan eignarhlut. Jafet telur ekki ólíklegt eftir eigendaskiptin að horft verði á samþættingu milli reksturs VBS og Verðbréfaþjónustu sparisjóðanna.
Viðskipti Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Sjá meira