Viðskipti innlent

Með útrás byggist upp þekking

Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og Hilmar Janusson, framkvæmdastjóri þróunardeildar fyrirtækisins, skoða rafeindastýrðan gervifót.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, og Hilmar Janusson, framkvæmdastjóri þróunardeildar fyrirtækisins, skoða rafeindastýrðan gervifót. MYND/GVA

Það sem er efst í huga við liðið ár er hinn mikli þróttur sem er í íslensku efnahagslífi. Þó svo að nokkur hættumerki hafi sést, virðist það ekki hafa haft áhrif á uppganginn sem virðist vera óendanlegur, en hinsvegar gæti það verið mesta hættan.

Það sem mér fannst standa upp úr eru fjárfestingaverkefni erlendis sem fara ört stækkandi ásamt óvenjulega miklum sveiflum í gengi sem hefur haft áhrif á mörg fyrirtæki hér heima. Þessi verkefni sem hafa oft verið nefnd útrásarverkefni hafa byggt upp mikla og breiða þekkingu hér á landi og er það vel. Mest af þessu er drifið áfram af áhættuvilja og miklu framboði fjármagns.

Þessi þróun er hinsvegar ekki einungis bundin við Ísland, erlendis sjáum við að fjárfestingar á vegum fjárfestingasjóða hafa vaxið gríðarlega. Tengt þessu er ör vöxtur fjármálafyrirtækjanna, en tæplega 75 prósent af markaðsverðmæti fyrirtækja í Kauphöll Íslands eru í fjármálatengdri starfsemi. Árangur þessarar starfsemi hefur einnig verið mjög góður svo ekki sé dýpra í árinni tekið.

Árið hjá Össuri hefur verið viðburðaríkt eins og endranær. Við höfum komið út á markað með vörur sem vakið hafa verðskuldaða athygli fyrir framúrskarandi tækni og virkni. Það er óhætt að segja að tæknilega hafi Össur tekið afgerandi forystu á sviði stoðtækja. Varðandi stuðningsvörurnar þá einkennir það árið að mikil orka fór í að samræma starfsstöðvar og vöruframboð á hinum ýmsu mörkuðum, en okkar markmið er að ná afgerandi tækniforystu á sviði stuðningstækja eins og við höfum nú þegar náð í stoðtækjunum.

Ég er mjög bjartsýnn á komandi ár þó svo hagvöxtur gæti dregist eitthvað saman á næsta ári. Við hjá Össuri erum bjartsýn, enda fara saman góðar vörur, markaðsstaða og möguleikar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×