Framsókn í útrýmingarhættu 12. febrúar 2007 06:15 Skoðanakönnun Fréttablaðsins frá því um helgina er sérstaklega athyglisverð fyrir tvennt. Í fyrsta lagi gefur hún sterka vísbendingu um vinstri sveiflu í samfélaginu, og í öðru lagi að raunveruleg hætta er á því að Framsóknarflokkurinn verði nánast þurrkaður út af sjónarsviði íslenskra stjórnmála í vor. Fyrir þá framsóknarmenn sem neita að horfast í augu við vandann og kjósa frekar að efast um framkvæmd könnunarinnar er rétt að rifja upp að fyrir síðustu alþingiskosningar sögðu kannanir Fréttablaðsins betur til um niðurstöður kosninganna en kannanir Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands og kannanir IBM. Kannanir Fréttablaðsins þá voru gerðar með nákvæmlega sama hætti, nema hvað nú er úrtakið í könnuninni stærra, 800 manns í stað 600. Nýjasta könnun Fréttablaðsins sýnir vissulega að enn eru margir óákveðnir, en það dregur á engan hátt úr þeirri punktmælingu sem hún er á fylgi flokkanna. Auðvitað hljómar það sárt fyrir framsóknarmenn en full ástæða er til að álykta að flokkurinn þeirra sé nú kominn í svipaða stöðu á landsvísu og hann var fyrir borgarstjórnarkosningarnar á síðasta ári. Þá tókst Framsóknarflokknum með ærnum tilkostnaði og elju að koma að einum manni í borgarstjórn og fagnaði þeim árangri sem varnarsigri. Í því samhengi er fróðlegt að rifja upp að á sama tíma fyrir fjórum árum mældu kannanir Fréttablaðsins Framsóknarflokkinn með 11,3 prósenta fylgi, og þótti það slæm staða innan flokksins. Framsókn ýtti þá úr vör sérlega vel heppnaðri auglýsingaherferð þar sem formaðurinn birtist óvænt og eftirminnilega brosandi út að eyrum. Þeirri breyttu ásýnd fylgdi hann eftir með því að stíga mjög ákveðið til vinstri frá Sjálfstæðisflokknum á lokametrum kosningabaráttunar, meðal annars með harðri gagnrýni á skattalækkunarloforð samstarfsflokksins. Hvort Framsóknarflokknum dugi aftur að skipta um ham og rödd er ómögulegt að spá um. Flokkurinn hefur sýnt að innan hans er sjóað baráttufólk sem kann sitt fag þegar kemur að því að búa til viðkunnanlegar og grípandi auglýsingar. Fyrir fjórum árum var uppskeran 17,7 prósenta fylgi og tólf þingmenn. Þá tókst að keyra fylgið upp um 56 prósent á síðustu þremur mánuðunum fyrir kosningar, og þótti frábær árangur. Sama aukning á næstu þremur mánuðum myndi hífa flokkinn úr 3,9 prósentunum, sem hann mældist með um helgina, upp í 6,1 prósent, sem væri afhroð sama hvernig á það er litið. Afneitun er auðvitað vel þekkt viðbrögð þeirra sem eru í vondum málum en dugar skammt. Framsóknarmönnum liggur lífið á að komast fram úr rúminu. Það verður spennandi að sjá hvorum megin það verður. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Jón Kaldal Mest lesið Homo sapiens að öðrum toga: Af hverju ætti ég eiginlega að mæta á PIFF-kvikmyndhátíðina? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson Skoðun Hagræðing á kostnað fjölbreytni og gæðamenntunar Ida Marguerite Semey Skoðun Greindarskerðing eða ofurgáfur með gervigreind Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun Snorri Másson er ekki vandinn – hann er viðvörun Helen Ólafsdóttir Skoðun Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun Loftslagsverkfallið krefst aðgerða strax! Tinna Hallgrímsdóttir Skoðun Látum draumana rætast, á kostnað hverra? Takmarkanir menntastefnu Reykjavíkurborgar Ingólfur Dan Þórisson,Margrét Dan Þórisdóttir,Ana Victoria Cate,Helga Dögg Yngvadóttir Skoðun Sumt er bara ekki hægt að rökræða Ása Lind Finnbogadóttir Skoðun
Homo sapiens að öðrum toga: Af hverju ætti ég eiginlega að mæta á PIFF-kvikmyndhátíðina? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Látum draumana rætast, á kostnað hverra? Takmarkanir menntastefnu Reykjavíkurborgar Ingólfur Dan Þórisson,Margrét Dan Þórisdóttir,Ana Victoria Cate,Helga Dögg Yngvadóttir Skoðun
Homo sapiens að öðrum toga: Af hverju ætti ég eiginlega að mæta á PIFF-kvikmyndhátíðina? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson Skoðun
Að hafa hemil á nýjum ófjármögnuðum útgjöldum er lykillinn að sjálfbærum rekstri sveitarfélaga Jón Ingi Hákonarson Skoðun
Þúsundir kusu Sönnu Anna Bentína Hermansen Einarsdóttir,Ármann Hákon Gunnarsson,Baldvin Björgvinsson,Brynja Guðnadóttir,Haraldur Ingi Haraldsson,Jón Hallur Haraldsson,Kolbrún Erna Pétursdóttir,Ólafur H. Ólafsson,Rakel Hildardóttir,Sigrún Jónsdóttir Skoðun
Ófullnægjandi vinnubrögð ófaglærðra „iðnaðarmanna“: Áhrif á húskaupendur Kristinn R Guðlaugsson Skoðun
Látum draumana rætast, á kostnað hverra? Takmarkanir menntastefnu Reykjavíkurborgar Ingólfur Dan Þórisson,Margrét Dan Þórisdóttir,Ana Victoria Cate,Helga Dögg Yngvadóttir Skoðun