Þorvaldur komst inn, Magnús ekki 2. apríl 2007 09:15 Magnús Ragnarsson Komst ekki inn í leiklistardeild Julliard árið 1983.
Þorvaldur Davíð Kristjánsson hefur fengið inngöngu í hina virtu leiklistardeild Julliard-skólans í New York eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir helgi. Eftir því sem næst verður komist er Þorvaldur fyrsti Íslendingurinn sem fer alla leið í gegnum inntökuferlið í Julliard en nokkrir hafa reynt fyrir sér hjá skólanum í stóra eplinu. Einn þeirra er Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Skjás eins, sem reyndi að komast inn í skólann árið 1983 ásamt þremur öðrum Íslendingum. „Þetta voru ég, Jón Bjarni Guðmundsson og Árni Pétursson en hann hef ég reyndar ekki séð síðan," sagði Magnús sem var að vonum ánægður fyrir hönd Þorvaldar að hafa komist inn. „Ég komst hins vegar því miður ekki inn," bætir Magnús við. Þorvaldur mun í sumar eyða mestum tíma í vinnu en fer síðan út í ágúst þar sem hann hyggst koma sér vel inn í málið og kynna sér New York. Leiklistardeild Julliard er feykilega virt í leiklistarheiminum og þykir hafa einhverja bestu klassísku menntunina í þessum fræðum ásamt leiklistardeild Yale-háskólans. Meðal þeirra sem þarna hafa stundað nám má nefna Val Kilmer, Robin Williams og Kevin Spacey sem reyndar gafst upp eftir tvö ár. Og prófskírteinið ætti því að opna dyr að frekari heimsyfirráðum. Námið í Julliard er ekki ókeypis og er talið að kostnaðurinn við þessa útrás Þorvaldar nemi nokkrum milljónum. Skólinn mun þó koma að einhverju leyti til móts við leikarann unga frá Íslandi. „Þetta verður örugglega mjög gaman fyrir strákinn," segir Magnús.
Mest lesið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Hélt við konu besta vinar síns Lífið Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira