Kómedíuleikhúsið frumsýnir einleikinn Skrímsli í Baldurshaga á Bíldudal í dag. Mun þetta vera í annað sinn sem atvinnnuleikhús frumsýnir á Bíldudal, en áður hefur Kómedíuleikhúsið frumsýnt þar einleikinn um Mugg.
Viðeigandi er að verk þetta sé frumsýnt á Bíldudal því Arnarfjörðurinn er sagður eitt mesta skrímslasvæði landsins en skrípildi hafa frá örófi alda sést reglulega í sjó og vötnum á Íslandi. Þetta eru dularfullar skepnur af ýmsum toga, mishættulegar víst en í leikritinu leitast skrímslafræðingurinn Jónatan Þorvaldsson, sem leikinn er af Elfari Loga Hannessyni, við að setja fram óvefengjanlegar sannanir fyrir tilvist þeirra hér á Íslandi.
Bílddælingar vinna nú að opnun sérstaks skrímslaseturs sem verður opnað á Bíldudal sumarið 2008. Það má því segja að frumsýningin sé eins konar upphitun fyrir opnun skrímslasetursins enda er stefnt að því að leikurinn verði sýndur þar í framtíðinni.
Höfundur og leikstjóri er Pétur Eggerz, tónlist er eftir Guðna Franzson og Marsibil G. Kristjánsdóttir gerir skrímslamyndir. Leikritið verður síðan sýnt í Möguleikhúsinu við Hlemm næstkomandi laugardag en verkið verður síðar sýnt í skólum og víðar um land.