Hlutverk forsetans 2. maí 2007 22:22 Nú í aðdraganda alþingiskosninga hafa sést og heyrst bollaleggingar um hugsanleg áhrif forseta Íslands, ef til myndunar nýrrar ríkisstjórnar kemur að þeim loknum. Sú umræða hefur vakið upp það álitaefni hvort hætta geti verið á að forsetinn beiti sér fyrir niðurstöðu öndvert við lýðræðislegan vilja kjósenda. Á það er að líta í þessu sambandi að vald forseta Íslands eins og annarra handhafa ríkisvalds er háð þeim takmörkunum sem stjórnarskráin mælir fyrir um. Stjórnarskráin geymir engin bein fyrirmæli um myndun ríkisstjórnar. Þar um hafa hins vegar mótast nokkrar hefðir á grundvelli þingræðisreglunnar. Hún er stjórnlagaregla sem ekki verður vikið frá. Engum vafa er því undirorpið að allt vald varðandi myndun og setu ríkisstjórnar er í höndum Alþingis. Enga ríkisstjórn er unnt að mynda og engin ríkisstjórn getur setið án stuðnings eða hlutleysis meirihluta Alþingis. Forsetinn er hluti af framkvæmdavaldinu og verður að lúta vilja Alþingis í þessu efni. Þá vaknar sú spurning hvort forsetinn geti falið einhverjum myndun ríkisstjórnar gegn vilja meirihluta þingsins. Stjórnarskráin segir ekkert um svokallað umboð til stjórnarmyndunar. Um það eru engar lagareglur. Í reynd er það svo formlaus athöfn að hún hefur ekki verið skjalfest með öðrum hætti en fréttatilkynningu. Kjarni málsins er sá að í þeim efnum getur forseti ekki gengið framhjá ábendingum flokksformanna sem hafa meirihluta þings á bak við sig. Alþingi myndi einfaldlega fella slíka stjórn um leið og það kæmi saman. Hér eru engin álitaefni sem ástæða er til að óttast. Sú staða getur komið upp að forystumenn stjórnmálaflokkanna geti ekki gefið forseta vísbendingu um möguleika á myndun stjórnar með stuðningi eða hlutleysi meirihluta Alþingis. Í því falli hefur forseti nokkuð frjálsar hendur að biðja hvern sem er innan þings eða utan um að gera tilraun til stjórnarmyndunar eða láta kyrrt liggja. Gerist það hins vegar meðan á slíkri tilraun stendur að meirihluti Alþingis vilji beina henni í annan farveg verður forseti á grundvelli þingræðisreglunnar að taka tillit til þess. Komi engir flokkar sér saman um myndun starfhæfrar ríkisstjórnar er við þingið sjálft að sakast en ekki forsetann. Best fer á því að forseti feli engum að gera tilraun til stjórnarmyndunar nema hann hafi fyrir fram ríka ástæðu til að ætla að hún takist. Loks kemur til skoðunar hvort forseti geti beitt áhrifum sínum, vegna tengsla við forystumenn í stjórnmálum, í þeim tilgangi að skapa samstöðu um að ríkisstjórn verði mynduð á einn veg fremur en annan. Ekkert kemur í veg fyrir það. Slík tengsl geta reyndar virkað á báða bóga. Ef forsetinn er á annað borð opinn fyrir því geta stjórnmálaforingjarnir líka notað hann í þessu skyni. Beiting áhrifa felur hins vegar ekki í sér neitt beint stjórnskipulegt vald. Í hverjum flokki má finna áhrifamenn sem geta beitt sér með svipuðum hætti og í sama tilgangi gagnvart einstökum flokksformönnum. Vilji forsetinn blanda sér í þann hóp er það í sjálfu sér ekkert ólýðræðislegra af hálfu hans en annarra. Það getur hins vegar haft víðtækari áhrif á álit hans og stöðu. Hver sem hugur forsetans er getur hann aldrei tekið sér vald eða gengið í aðra átt en meirihluti Alþingis er fús að sætta sig við. Þar er ekkert stjórnskipulegt tómarúm. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þorsteinn Pálsson Mest lesið Fokk, ég er með ristilkrabbamein! Matthías Freyr Matthíasson Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Var Stonehenge sláturhús? Ása Hlín Benediktsdóttir Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Það er alltaf til fé fyrir næstu framkvæmd—Hvenær ætlum við að læra? Vilhelm Jónsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Landsréttur gefur út óútfylltan tékka fyrir hvers kyns ofbeldi Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir Skoðun
Lofthjúpurinn er ekki verðbólguspá – þegar prófessorinn villist út fyrir sitt sérfræðisvið Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun