Bíó og sjónvarp

Frumsýning í Japan

Fimmta kvikmyndin um Harry Potter og ævintýri hans verður frumsýnd 28. júní.
Fimmta kvikmyndin um Harry Potter og ævintýri hans verður frumsýnd 28. júní.

Fimmta kvikmyndin um Harry Potter og ævintýri hans, The Order of the Phoenix, verður heimsfrumsýnd í Japan hinn 28. júní.

Talið er að Japan hafi orðið fyrir valinu eftir að önnur framhaldsmynd, Spider-Man 3, var frumsýnd þar í landi og sló öll aðsóknarmet.

Fyrri Harry Potter-myndirnar fjórar hafa tekið inn um 200 milljarða króna alls í miðasölu víðsvegar um heiminn og er vitaskuld búist við góðri aðsókn á nýju myndina. Sjöunda og síðasta Harry Potter-bókin, Harry Potter and the Deathly Hallows, kemur út síðar í sumar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×