Níu leikarar útskrifuðust frá Listaháskóla Íslands fyrir skemmstu og er ábyggilega ekki langt að bíða þar til andlit þeirra verða Íslendingum að góðu kunn. Á næstu dögum munu þessir nýjustu leikarar landsins sitja fyrir svörum hjá Fréttablaðinu, hver í sínu lagi. Í dag er það Hallgrímur Ólafsson sem situr fyrir svörum.
Aldur: 30 ára
Draumahlutverkið? Það hlýtur að vera Hamlet.
Bókin á náttborðinu? Furðulegt háttalag hunds um nótt. Skyldulesning!
Hvíta tjaldið eða leiksviðið? Bæði betra.
Hverjum er það að kenna að þú fórst í leiklist? Benna Erlings. Hann kom mér inn í skólann í gegnum klíku. Þannig virkar það.
Besta æskuminningin? Þegar ég fékk BMX-safari hjól. Felldi tár og allt.
Með eða á móti kvótakerfinu? Ef það er til eitthvað betra þá er ég á móti því.
Sáttur við nýju ríkisstjórnina? Já, ég er sáttur.
Hvar er best að vera? Uppi í rúmi með konunni.
Þú ert orðinn of seinn á frumsýningu. Það er rautt ljós en enga löggu að sjá. Hvað gerirðu? Fer yfir á rauðu! Eða svona appelsínugulu.
Hvers getur þú síst verið án? Nikótíntyggjós.
Versta starf sem þú hefur unnið? Þegar ég vann við að raða lambalærum í kör í sláturhúsi í Borgarnesi. Það var viðbjóður, enda mætti ég oft of seint.
Ef þú værir síamstvíburi, hvern vildirðu helst hafa fastan við þig? Ég myndi ekki vilja leggja það á nokkurn mann að vera fastur við mig.
Þjóðleikhúsið eða Borgarleikhúsið? Leikfélag Akureyrar.
Hvernig týpa ertu? Bolur sem þykist vera lopi en er samt enginn ullarhattur, nema þegar það á við.