Eru ekki allir í stuði? 11. júlí 2007 07:00 Í síðustu viku fór ég með tveggja ára gamlan son minn til Kaupmannahafnar til að sýna honum Tívolíið og dýragarðinn. Þegar ég velti framtíðinni fyrir mér sé ég alltaf fyrir mér hvað við eigum eftir að ferðast mikið saman. Ég myndi til að mynda bjóða honum á Hróarskelduhátíðina þegar hann fermdist. Þangað fór ég fyrir sjö árum og sá meðal annars Travis, Kent, Willy Nelson og Moloko. Ein uppáhaldshljómsveitin mín, Pearl Jam, var líka mætt en hún hafði aðeins leikið nokkur lög þegar Eddie Vedder kraup á sviðið. „Han gråter" sögðu Svíarnir fyrir aftan mig. Tónleikarnir voru blásnir af og það var ekki fyrr en ég kveikti á sjónvarpinu næsta dag að ég áttaði mig á því hvað hafði gerst. Átta ungir menn höfðu troðist til bana undir mannfjöldanum. Augnblýanturinn lak í svörtum taumum niður andlit Gotharanna þegar ég kom aftur inn á tónleikasvæðið. Gleðin var búin og þótt ég hafi fengið smjörþefinn af stemningunni sem ríkir á hátíðinni finnst mér ég verða að fara aftur. Og þá býð ég sko syni mínum með. Nú hefur hann aftur á móti áhuga á allt öðru en rokki. Hann setti á sig sjóræningjahatt og tók sér bæði sverð í hönd og danskan fána, sem honum hafði tekist að pissa á fyrr um daginn, og fór þannig útlítandi í Tívolíið. Saman snerumst við mæðginin um í hringekju og klöppuðum í takt við leik lúðrasveitar skipuðum taktföstum drengjum. Þegar við komum aftur inn á hótel stóðu niðurrignd norsk ungmenni forug upp á lær í móttökunni. Þau vildu herbergi og sem betur fer voru þau til því annars hefði ég staflað þessum þrándheimsku krökkum inni hjá okkur syni mínum. Meðan krakkarnir biðu eftir lyklunum heyrði ég þá ræða böndin sem þeir áttu í vændum. Ég heyrði nöfnin Arcade Fire og Arctic Monkies. Eða var það Arcade Monkeys og Arctic Fire? Það rann upp fyrir mér að ég var ekkert inn í þessari tónlist. Líklega yrði ég ekkert minna úti á þekju sumarið 2018. Ef ég færi á Hróarskeldu það árið myndi ég líklega bara snúast um sjálfa mig föst á fortíðartrippi í leit að Pearl Jam, Kent og Travis. Willy Nelson verður líkast til kominn undir græna torfu. Sonur minn myndi skammast sín fyrir mig og þegar ég spyrði hann hvort við ættum ekki bara að skella okkur í hringekjuna í Tívolíinu, „þér fannst það nú einu sinni svo gaman", myndi hann endanlega stinga mig af. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Gerður Kristný Mest lesið Stórveldi eiga hagsmuni en ekki vini: Deilur tveggja NATO ríkja um Grænland Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun „Þetta er algerlega galið“ Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Vinnulag í rannsóknaverkefnum er ekki vísbending um stjórnarhætti þess sem borgar Haraldur Ólafsson Skoðun Hvernig getum við stigið upp úr sorginni? Birna Guðný Björnsdóttir Skoðun Fersk fyrirheit: máttur nýársheita og skýrra markmiða Árni Sigurðsson Skoðun Er þetta alvöru? Bjarni Karlsson Skoðun Opið bréf til valkyrjanna þriggja Björn Sævar Einarsson Skoðun „Forðastu múslímana,“ sögðu öfgahægrimenn mér Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun Gott knatthús veldur deilum Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun
Stórveldi eiga hagsmuni en ekki vini: Deilur tveggja NATO ríkja um Grænland Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun
Vinnulag í rannsóknaverkefnum er ekki vísbending um stjórnarhætti þess sem borgar Haraldur Ólafsson Skoðun
Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun
Stórveldi eiga hagsmuni en ekki vini: Deilur tveggja NATO ríkja um Grænland Hilmar Þór Hilmarsson Skoðun
Vinnulag í rannsóknaverkefnum er ekki vísbending um stjórnarhætti þess sem borgar Haraldur Ólafsson Skoðun
Opið bréf til forystu Kennarasambands Íslands (KÍ): Endurskoðum aðferðafræði verkfallsins Valgerður Bára Bárðardóttir Skoðun