Íslensk hönnun í brennidepli 18. ágúst 2007 02:00 Hjólabretti eftir Katrínu Pétursdóttur. Eru íslenskir hönnuðir að hleypa heimdraganum?
Tímana áður en tónleikadagskráin hefst á Klambratúninu gamla, sem er eftir sumartónleika Sigurrósar orðinn einn helsti útitónleikastaður borgarinnar, ætla menn að tala saman á Kjarvalsstöðum. Þar hefur hönnunarsýningin Kvika verið í fyrirrúmi í nokkrar vikur og eru þeir hjá Listasafni Reykjavíkur ánægðir með aðsókn og viðtökur. Hönnunarsýningin var fyrsta stóra sýningin í húsinu eftir viðamiklar breytingar á miðskipi þessa fyrsta sérsmíðaða sýningarhúss myndlistar í borginni. Nú skal þingað um stöðu hönnunar í landinu á okkar útrásartímum. Er stefnt að tveggja tíma törn með inngangserindum og umræðum undir stjórn Þorsteins J. Vilhjálmssonar: Yfirskrift þingsins er Íslensk hönnun - gildi og innihald. Hefst það kl. 13 og er því tvískipt. Fyrri hlutinn fjallar um hugmyndaheim íslenskra hönnuða, sérstöðu þeirra eða einsleitni og þann brunn sem íslenskir hönnuðir sækja innblástur í. Síðari hlutinn fjallar um gildi íslenskrar hönnunar fyrir íslenskan iðnað og stöðu á alþjóðlegum markaði auk þess sem fjallað verður um kosti þess og galla að starfa á litlum markaði. Þátttakendur eru m.a.: Guðrún Lilja Gunnlaugsdóttir sýningastjóri MAGMA/KVIKU en hún hefur með sýningarstjórn sinni öðlast einstaka innsýn í hvað er á seyði meðal íslenskra hönnuða og fyrirtækja þeirra heima og erlendis. Guðmundur Oddur, prófessor við Listaháskóla Íslands, hefur um langt skeið lagt sig í líma við að skilgreina anda og uppsprettu íslenskrar hönnunar og er einn fárra sem hefur sett fram kenningar um hvað er á seyði í íslenskri hönnun. Þrír hönnuðir taka til máls í inngangserindum: Katrín Pétursdóttir sem hefur starfað mest á erlendum vettvangi í samstarfi við mann sinn Michael Young og ekki síður staðið á eigin fótum. Guðfinna Mjöll Magnúsdóttir hönnuður og Hrafnkell Birgisson, hönnuður og formaður samtaka hönnuða, FORM Ísland. Þá leggja þau sitt til málanna Elísabet V. Ingvarsdóttir, hönnunarsagnfræðingur, innanhússarkitekt og nýráðinn hönnunargagnrýnandi Morgunblaðsins, Guðbjörg Gissurardóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarvettvangs og Finnur Árnason hjá Nýsköpunarsjóði. Sýningin MAGMA/KVIKA hefur, ásamt nokkrum fleiri sýningum af sama toga, starfsemi Hönnunarsafns Íslands og stórauknum áhuga almennings á hönnun af ýmsum toga, hleypt nýju lífi í umræðu um hönnun hér á landi og erindi okkar verka á erlendan markað og vettvang. Sú tíð er liðin að hönnuðir líti á heimamarkað sem sinn einvörðungu. Nú er litið til alþjóðlegrar framleiðslu af ýmsu tagi. Allt þetta kemur til með að vera í umræðu á þinginu fram til klukkan 15 þegar ungir tónlistarmenn fara að þenja hljómkerfið á gamla Klambratúninu. Það er Listasafn Reykjavíkur sem boðar til þingsins.
Mest lesið „Það eru komnir þrír mánuðir síðan pabbi minn sá fram á það að geta ekki lifað lengur“ Lífið Janet Jackson biðst afsökunar á undarlegum ummælum Lífið Var talin vera hommi og lögð í einelti Lífið Borðar það sem alltaf hefur verið til og léttist og léttist Lífið Ísland með auga fuglsins Lífið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Aldrei litið betur út þrátt fyrir alvarlegt slys Lífið Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið Eignaðist alvöru pungsa með alvöru pungsa Lífið Fleiri fréttir Opna fyrstu umboðsstofuna í eigu leikara Baráttan innra með manni eins og ljós og skuggar Bein útsending: Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Bong Joon Ho verður stafrænn heiðursgestur á RIFF Ævar Þór Benediktsson hlýtur verðlaun Guðrúnar Helgadóttur Ráðinn markaðs- og kynningarstjóri Tónlistarmiðstöðvar Verk Arnhildar og félaga valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr Lyfjameðferð við meðvirkni: „Æ, ég væri bara til í að taka eina töflu“ „Mann- og listfjandsamleg þvæla“ Salman Rushdie hlýtur verðlaun Halldórs Laxness Þarf ekkert að þvælast fyrir sjálfri sér „Smá eins og maður sé allsber fyrir framan alþjóð“ Forstöðumaðurinn fannst í Salnum Óður til kvenlíkamans í öllu sínu veldi Óli Egils snýr sér að Ladda eftir Bubba Snæbjörn nýr leikhússtjóri í Tjarnarbíói Sjá meira