Háir og lágir – bókstaflega! Þráinn Bertelsson skrifar 29. október 2007 06:00 Oliver Curry framtíðarrýnir við Hagfræðiskóla Lundúna spáir því að mannkynið nái hátindi um næstu árþúsundamót. Þá verða aðeins tveir kynþættir á jörðinni, báðir eins og mjólkurkaffi á litinn. Ekki verður jafnræði með þessum kynþáttum: Annar rasinn hávaxinn, fallegur og gáfaður og lifir á belgísku súkkulaði og lífrænt ræktuðu fæði. Hinn ljótur, lítill og heimskur og lifir á hamborgurum og sjoppufæði. ÞESSI SPÁ er ekki út í bláinn. Þróunin er þegar hafin. Með ofuráherslu á frelsi og hagsmuni sterkra einstaklinga umfram hagsmuni heildarinnar er augljóst að framtíðin mun tilheyra þeim sem eru greindir og siðlausir eins og fortíðin tilheyrði þeim sem voru líkamlega sterkir og siðlausir. Það tók mannkynið mörg þúsund ár að læra að það væri andstætt hagsmunum heildarinnar að láta sterkbyggða einstaklinga komast upp með að kraka til sín auðæfum með færni sinni í að beita ofbeldi með sverðum eða bareflum. Á sama hátt má gera ráð fyrir því að það taki mannkynið langan tíma að átta sig á því að það er andstætt hagsmunum heildarinnar að láta greinda einstaklinga komast upp með að kraka til sín auðæfum með skörpum skilningi á pólitík og viðskiptum. ÁRIÐ 3000 þurfa sigurvegarar ekki lengur að aðgreina sig frá hinum sigruðu með Landrover-jeppum, Rolex-úrum og Prada-fatnaði. Þá verður mannslíkaminn orðinn æðsta og augljósasta stöðutáknið. Hinir háu verða háir í bókstaflegum skilningi og hinir lágu verða lágir vexti. Til þess að hraða þessari þróun þarf aðeins að ganga ofurlítið lengra í að taka frelsi einstaklingsins til að græða og þjóna eðli sínu framyfir frelsi heildarinnar til að lifa frjálsu og friðsömu lífi. SVO er líka til í dæminu að snúa þróuninni við og koma í veg fyrir að spáin rætist. En til þess þyrfti að setja skorður við því að fáir hafi frelsi til að eiga allt og margir frelsi til að eiga ekkert. Það er reyndar ekki hægt fyrr en við nennum að setjast niður og gera okkur grein fyrir því í hverju frelsi okkar er í raun og veru falið. En kannski er það óþarfi. Kannski verða afkomendur okkar Íslendinga allir í sigurliðinu. Og skítt veri með þá sem tapa. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þráinn Bertelsson Mest lesið Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Breyttur einkunnakvarði gerir námsmatið ekki skýrara Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Súri sannleikurinn um rakastjórnun - Þekkingin er til, en húsin leka samt enn Sigurður Sigurðsson Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun