Birgir úti í kuldanum eins og er 31. ágúst 2007 17:44 NordicPhotos/GettyImages
Birgir Leifur Hafþórsson mátti sætta sig við að fá skolla á síðustu holunni sinni í dag og því bendir allt til þess að hann muni ekki komast í gegnum niðurskurðinn en fleiri kylfingar eiga enn eftir að ljúka leik. Birgir kom í hús í dag á einu höggi yfir pari eða samtals á 74 höggum en hann lék á parinu í gær eða á 73 höggum. Birgir fékk fimm fugla á hringnum, átta pör, fjóra skollla og einn tvöfaldan skolla. Birgir byrjaði vel í dag en hann hóf leik á síðari níu holunum og að þeim loknum var hann á tveimur höggum undir pari. Hann hóf síðari níu holurnar á skolla, svo kom fugl, tvöfaldur skolli, fugl, skolli, fugl, skolli, par og loks skolli. Frekar sveiflukennar síðari níu holurnar hjá Birgi í dag og bendir allt til þess að hann nái ekki í gegnum niðurskurðinn þriðja mótið í röð. Eins og stendur eru Thomas Levet og Simon Wakefield efstir í mótinu á níu höggum undir pari. Kylfingur.is
Golf Mest lesið Cristiano Ronaldo óttast að tími hans sé að renna út Fótbolti Coote dómari í enn verri málum Enski boltinn Sjáðu allt sem Rúben Amorim gerði á móti Man. Utd í Meistaradeildinni Enski boltinn Martröð fyrir markakónginn í lokaumferðinni Fótbolti Gerði aðeins betur en mamma sín og jafnaði met landsliðsins Körfubolti Popovich fékk heilablóðfall Körfubolti Skuldar engum neitt vegna Guðjohnsen nafnsins Fótbolti Viðurkennir mistök sem bitnuðu illa á Man Utd í lokaleik Ten Hag Enski boltinn Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Handbolti Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Handbolti Fleiri fréttir McIlroy skaut niður dróna „Orðinn þreyttur á Venna strax á fyrstu holu“ McIlroy kemur „úr felum“ eftir óvenjulegar æfingabúðir Golfstjarnan mætti á upp svið með Trump Kylfingur blindur á auga eftir golfbolta Hundur hljóp inn á og stal golfkúlu Bales Sigurður sótti silfur fyrstur Íslendinga til Makaó: „Rosalega stoltur“ Íslendingur efstur í Arkansas: „Hann er nýnemi!“ Sjá meira