Kompás og Út og Suður eru frétta- og/eða viðtalsþættir ársins 11. nóvember 2007 20:15 Jóhannes Kr. Kristjánsson er ritstjóri Kompáss.
Kompás og Út og Suður fengu sameiginlega Edduverðlaun í flokknum frétta- og/eða viðtalsþáttur ársins. Kiljan, þáttur Egils Helgasonar, sem sýndur er á RÚV, hlaut verðlaun í flokknum menningar/lífstílsþáttur ársins. Gettu Betur var valinn skemmtiþáttur ársins. Nanna Kristín Magnúsdóttir var valin leikkona ársins og Ingvar E. Sigurðsson var valinn leikari ársins, en bæði léku þau í myndinni Foreldrar og Jörundur Ragnarsson var valinn leikari ársins í aukahlutverki fyrir myndina Veðramót. Syndir feðranna fékk verðlaun í flokkum heimildarmynd ársins. Þetta er mynd um afdrif drengja sem voru vistaðir á upptökuheimilinu að Breiðavík í Rauðasandshreppi 1955-1974. Leikstjórar myndarinnar eru Ari Alexander Ergis Magnússon og Bergsteinn Björgúlfsson, en Bergsteinn fékk einnig verðlaun í flokknum Myndataka og klipping fyrir myndina Foreldrar. Gunnar Árnason fékk verðlaun í flokknum hljóð og tónlist, en hann sá um hljóðvinnslu fyrir Kalda slóð. Árni Páll Jóhannsson, sem sá um leikmyndina í Kaldri slóð, fékk verðlaun fyrir útlit myndar. Bræðrabylta var valin stuttmynd ársins og sjónvarpsmaður ársins er Egill Helgason. Útsending frá Edduverðlaununum hófst klukkan tuttugu mínútur fyrir átta. Veðramót, mynd Guðnýjar Halldórsdóttur, hlaut flestar tilnefningar eða ellefu talsins.
Eddan Menning Mest lesið „Ekkert gengið að casha út á pabba“ Menning Hélt við konu besta vinar síns Lífið Fréttatía vikunnar: Trump, Parkinson og fótbolti Lífið Selur íbúð með náttúruparadís í bakgarðinum Lífið Tom Cruise hrasar á síðasta snúning Gagnrýni Heldur sér við efnið og burt frá efnunum Tónlist Einn heppinn vinnur frítt flug í heilt ár með PLAY Lífið samstarf Garðar Gunnlaugs og Fanney Sandra flytja á Selfoss Lífið Ævintýralegur sumarfögnuður í Haukadal Lífið Vinsælasta ABBA sýning heims kemur til Íslands Lífið samstarf Fleiri fréttir Nýju Harry, Ron og Hermione fundin Staupasteinsstjarna er látin Gurra og Georg hafa eignast litla systur Joe Don Baker látinn Frumsýning: Ólafur Darri og Hera Hilmar í glænýrri seríu Óskarsverðlaunaleikstjórinn Robert Benton látinn Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Trump tollar kvikmyndir: „Eins og reiður, fullur pabbi sem ætlar að hætta við jólin“ Sjá meira