Sama viðmiðunaraflamark hefur verið lagt til um fyrirkomulag úthafskarfaveiða í ár. Ákvörðun um þetta var tekin á fundi aðildarríkja Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar (NEAFC) í Kaupmannahöfn fyrr í þessum mánuði.
Lagt er til sama viðmiðunaraflamark og í fyrra, eða um 46 þúsund tonn. Ekki náðist samkomulag um heildarstjórnun veiðanna frekar en á undanförnum árum. Aðildarríkin munu því hvert um sig úthluta kvóta til eigin skipa eins og verið hefur. Gert er ráð fyrir að heildarúthlutunin verði því samanlagt nálægt 71.500 tonnum sem er heldur lægra aflamark en í fyrra. Ísland mun úthluta sama kvóta til íslenskra skipa og í fyrra, eða rúmu 21 þúsund tonni. Skráð árleg veiði á úthafskarfa á því svæði sem hér um ræðir hefur verið um og yfir 80 þúsund tonn síðustu árin.
Að mati Landssambands íslenskra útvegsmanna er íslenski kvótinn um 1,6 milljarða króna virði náist allur aflinn. Á undanförnum árum hefur það verið nokkrum vandkvæðum bundið.
- shá