Leynivopnin í eldhúsinu 14. nóvember 2008 06:00 Guðrún Möller segir nauðsynlegt að eiga góð áhöld í eldhússkúffunum. „
Ég er nú enginn snillingur í eldhúsinu, það er alveg vitað mál, en ég veit þó að góðir hnífar eru nauðsynlegir,“ segir Guðrún Möller, framkvæmdastjóri Snyrtiakademíunnar, þegar hún er innt eftir því hvaða leynivopn hún eigi sér í eldhúsinu. „Maður þarf að eiga góðan brauðhníf og góðan hníf til að skera kjúklingabringurnar. Svo finnst mér líka, þegar verið er að borða góðan mat, að það verði að nota almennilega steikarhnífa til að komast í gegn.“ En ætli Guðrún forðist eldamennskuna fyrst hún gerir svo lítið úr hæfileikum sínum í eldhúsinu? „Nei, ég elda nú alveg en ég fengi kannski ekki hæstu einkunn fyrir matinn,“ segir hún hlæjandi. „Ég elda voða mikið venjulegan heimilismat. Við borðum mikinn fisk og svo góða kjúklingarétti. Þeir eru í uppáhaldi hjá fjölskyldunni. Ég er samt ekki dugleg að prófa mikið nýtt og þarf svolítið að fara eftir uppskriftum. Ég get ekki bara sett slettu af þessu og slettu af hinu út í, því miður. En mér finnst gaman að elda þegar ég er komin af stað. Það er skelfilegt að þurfa að ákveða hvað á að vera í matinn en ef einhver sæi um það fyrir mig gæti ég alveg klórað mig fram úr því sem á að gera.“ Það verður ekki hjá því komist að spyrja um jólabaksturinn þegar alltaf styttist í jólin og Guðrún segist hafa gaman af því að baka. „Ég var dugleg að baka og er duglegri í því en við eldamennskuna. Ég baka alltaf brúna lagtertu fyrir jólin og kannski tvær, þrjár smákökutegundir. Þá nota ég uppskriftir sem hafa gengið í minni fjölskyldu síðan ég man eftir mér.“ Innt eftir uppáhaldsmatnum sínum segist hún ekki eiga neitt uppáhald. „Mamma gerir samt góða aspassúpu og tengdapabbi gerir frábærar fiskibollur.“ heida@frettabladid.is
Mest lesið Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Lífið Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Gagnrýni Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Lífið Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Lífið Hvað veistu um... Mean Girls? Lífið Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bíó og sjónvarp Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Lífið Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Lífið Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Lífið Matthías Már með krabbamein Lífið