Menning

Ástarflónið norður

Uppsetning Silfurtunglsins á Fool for Love hlaut góðar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda fyrr á árinu.
Uppsetning Silfurtunglsins á Fool for Love hlaut góðar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda fyrr á árinu.

Leikritið Fool for Love eftir bandaríska leikskáldið Sam Shepard, í uppsetningu leikhópsins Silfurtunglið, verður frumsýnt á Akureyri í kvöld. Fyrirhugaðar eru tólf sýningar á leikritinu fyrir norðan; uppselt er á fyrstu sex sýningarnar og er óðum að seljast upp á þær sex sem eftir standa.

Þessi takmarkaði sýningafjöldi helgast einna helst af önnum meðlima Silfurtunglsins, en leikararnir og leikstjórinn eru öll komin á kaf í verkefni hjá hinum ýmsu menningarstofnunum víða um land.

Silfurtunglið hlaut sjö tilnefningar til Grímunnar fyrr á árinu fyrir uppsetningu sína á Fool for Love. Hinn landskunni tónlistarmaður KK er tónlistarstjóri sýningarinnar og fer einnig með hlutverk karlsins í verkinu. KK var tilnefndur sem flytjandi ársins og lagahöfundur ársins á Grímuhátíðinni. Hann samdi nokkur lög sérstaklega fyrir sýninguna, þar á meðal „Í eigin vanmætti" sem fór í spilun í fyrra og náði þar með eyrum landsmanna. Nú er nýtt lag úr sýningunni komið í spilun í útvarpi; lagið nefnist „ég óttaðist" og fjallar um samskipti aðalpersóna leikritsins.

Fool for Love var áður sett upp á efri hæðinni í Austurbæ við Snorrabraut. Þar spiluðu upprunalegar innréttingar skemmtistaðarins Silfurtunglsins, sem leikhópurinn dregur einmitt nafn sitt af, stórt hlutverk í því að draga fram þá áþreifanlegu stemningu sem skapaðist á sýningum leikritsins. Því stóð hópurinn frammi fyrir ákveðnu vandamáli þegar kom að því að færa sýninguna um set: hvernig væri best að flytja stemninguna með?

Leikmyndahönnuðurinn Mekkín Ragnarsdóttir leysti vandann og hefur af mikilli natni endurskapað Silfurtunglið á Akureyri; þannig er nú viðarpanellinn, parketið og andrúmsloftið úr Austurbæ komið norður.- vþ






Fleiri fréttir

Sjá meira


×